Knattspyrnudeild Vals hefur gengið frá kaupum á þeim Lúkasi Loga Heimissyni frá Fjölni og Óliver Steinari Guðmundssyni frá Atalanta. Lúkas er 19 ára gamall og Óliver 18 ára.
Lúkas var hjá ítalska félaginu Empoli á síðasta ári en sneri aftur til Fjölnis fyrir síðasta sumar og skoraði átta mörk í 17 leikjum í 1. deildinni á síðustu leiktíð.
Hann hefur spilað 37 deildarleiki með Fjölni og skorað í þeim níu mörk. Sex leikjanna spilaði hann með liðinu í efstu deild árið 2020. Sóknarmaðurinn hefur leikið sex leiki fyrir U16 og U19 ára landslið Íslands.
Óliver er uppalinn hjá Haukum í Hafnarfirði en hann gekk til liðs við Atalanta sumarið 2021. Hann lék einn leik með Haukum í 2. deildinni, sumarið 2020, og þá á hann að baki þrjá landsleiki með U19-ára landsliði Íslands.