Erlent

Undirbúa rannsókn á upptökum faraldursins í Kína

Kjartan Kjartansson skrifar
Skimun fyrir kórónuveirunni í Wuhan í Kína þar sem faraldurinn hófst seint í fyrra. Sérfræðingar WHO ætla að kanna hvernig veiran stökk úr dýrum yfir í menn og undirbúa nánari rannsókn á upptökum faraldursins.
Skimun fyrir kórónuveirunni í Wuhan í Kína þar sem faraldurinn hófst seint í fyrra. Sérfræðingar WHO ætla að kanna hvernig veiran stökk úr dýrum yfir í menn og undirbúa nánari rannsókn á upptökum faraldursins. Vísir/EPA

Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) hefur sent tvo sérfræðinga til Kína til að leggja drög að rannsókn á upptökum heimsfaraldurs nýs afbrigðis kórónuveiru sem hefur orðið meira en hálfri milljón manna að bana. Faraldurinn er enn í vexti víða í Bandaríkjunum, miðpunkti faraldursins.

Talið er að veiran hafi fyrst borist í menn úr dýrum á markaði í borginni Wuhan seint á síðasta ári. Starfsmenn WHO sem eru farnir til Kína eru sérfræðingar í faraldsfræði og dýraheilsu. Þeir eiga að vinna með kínverskum vísindamönnum að því að rannsaka hvernig veiran tók stökkið yfir í menn til að fá betri mynd af umfangi rannsóknar á upptökum faraldursins.

„Við vitum að hún er mjög lík veiru í leðurblökum en fór hún í gegnum aðrar tegundir í millitíðinni? Þetta er spurning sem við verðum öll að fá svar við,“ sagði Margaret Harris, talskona WHO, í dag.

Fleiri en tólf milljónir manna hafa smitast af kórónuveirunni, sem veldur Covid-19 öndunarfærasjúkdómnum, á heimsvísu. Af þeim hafa hátt í 560.000 manns látið lífið.

Flest dauðsföllin hafa orðið í Bandaríkjunum, rúmlega 130.000, til þessa. Sex ríki tilkynntu um metfjölda nýrra smita í dag og í Flórída, sem er orðið að miðpunkti faraldursins vestanhafs, fjölgaði smitum mikið annan daginn í röð, að sögn Reuters-fréttastofunnar.

Útlit er fyrir að fjölgun smita í Georgíu, Lúisíana, Montana, Ohio, Utah og Wisconsin þýði að enn verði sett met yfir fjölda nýrra daglegra smita í Bandaríkjunum í dag. Þrátt fyrir fjölgun smita í Flórida ætlar afþreyingarrisinn Walt Disney að halda sig við áform um að opna Disney World-skemmtigarðinn aftur fyrir gestum.

Bandaríkjastjórn staðfesti í vikunni að hún ætli sér að segja skilið við Alþjóðaheilbrigðisstofnunina vegna óánægju Donalds Trump forseta með viðbrögð hennar við faraldrinum.


Tengdar fréttir

WHO viðurkennir möguleika á að smit berist með lofti

Opið bréf hóps vísindamanna hefur orðið Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni (WHO) tilefni til að viðurkenna að frekari vísbendingar komi nú fram um að nýtt afbrigði kórónuveiru gæti smitast með lofti.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×