Ólafur vildi lítið tjá sig um mál Eggerts sem æfði með FH á meðan leyfinu stóð Valur Páll Eiríksson skrifar 15. maí 2022 16:55 Ólafur Jóhannesson, þjálfari FH, var ánægður með sigur dagsins en síður glaður að þurfa að svara spurningum um mál Eggerts Gunnþórs. Vísir/Hulda Margrét Ólafur Jóhannesson, þjálfari FH, var ánægður með innkomu Eggerts Gunnþórs Jónssonar inn í lið hans í dag er FH vann 2-0 sigur á ÍBV í Bestu deild karla í fótbolta í Kaplakrika í Hafnarfirði. Að öðru leyti vildi hann lítið tjá sig um mál hans.
Matthías Vilhjálmsson og Davíð Snær Jóhannesson voru á skotskónum er FH hafði betur gegn nýliðum ÍBV í dag. Um er að ræða annan sigur FH í deildinni, en hinn sigurinn kom gegn öðrum nýliðum, Fram, þann 25. apríl síðastliðinn. Sigurinn er því kærkominn. „Ég er náttúrulega mjög ánægður. Mér fannst við vera ofan á lungann úr leiknum og vera betri en þeir. Það er jákvætt að halda markinu hreinu eftir smá ströggl á okkur en það gefur okkur mikið að vinna þetta í dag.“ Ólafur stillti upp í þriggja hafsenta kerfi í dag, 3-5-2, sem hann segir hafa komið vel út. Hann ítrekar þá mikilvægi sigursins fyrir framhaldið. „Við höfum notað þetta stundum, ásamt öðrum leikkerfum, og mér finnst það koma ágætlega út. Við erum náttúrulega með fínt lið, en gengið ekki verið alveg eins og við höfum viljað, svo það er smá skjálfti í okkur sem við þurfum að ná úr okkur og sigurinn í dag gerir það.“ „Það er lífsnauðsynlegt. Þrátt fyrir að við höfum ekki spilað neitt sérstaklega fallegan fótbolta í dag, þá gefa stigin okkur mikið og við vinnum út frá því.“ segir Ólafur. Eggert æfði á meðan hann var í leyfi frá félaginu Eggert í leik dagsins.Vísir/Hulda Margrét Mál sem snerist um meint kynferðisofbeldi Arons Einars Gunnarssonar og Eggerts Gunnþórs Jónssonar, leikmanns FH, var látið niður falla á föstudag. Eftir að hafa spilað fyrsta leik tímabilsins gegn Víkingi var Eggert sendur í tímabundið leyfi frá störfum sínum fyrir FH, vegna þrýstings frá bæði almenningi og styrktaraðilum félagsins. Eggert sneri beint aftur í byrjunarliðið í dag, sem Ólafur segir mikilvægt fyrir félagið. „Eggert er einn af betri leikmönnunum í þessari deild og það er geysilega öflugt að fá hann inn. Frábært.“ FH sendi frá sér stuttorða yfirlýsingu í morgun þar sem greint var frá því að Eggert hefði snúið aftur til starfa sinna hjá félaginu. Aðspurður um hvort það hefði aldrei verið spurning um að setja hann aftur í liðið sagði Ólafur hann hafa æft með FH-ingum á meðan leyfinu stóð. „Hann er búinn að æfa með okkur allan tímann og það var aldrei vafi í mínum huga.“ Ólafur var þá spurður hvort samhugur hefði verið innan félagsins um ákvarðanirnar tvær, annars vegar að senda hann upprunalega í leyfi, og hins vegar að setja hann beint aftur inn í liðið. „Félagið sendi frá sér yfirlýsingu bæði fyrir og eftir. Lesið þið bara hana þá vitið þið allt.“ Aðspurður um áhrif máls Eggerts á leikmannahóp FH svaraði Ólafur með sjö sekúndna þögn áður en hann sagði: „Mér fannst við bara spila vel í dag og er ánægður með það.“ sagði Ólafur. Ólafur brást ókvæða við spurningum blaðamanns um mál Eggerts og lét óánægju sína í ljós í lok viðtals.
Besta deild karla FH Landsliðsmenn sakaðir um kynferðisofbeldi Tengdar fréttir Umfjöllun: FH 2-0 ÍBV | FH-ingar aftur á sigurbraut FH vann 2-0 sigur á nýliðum ÍBV í 6. umferð Bestu deildar karla í Kaplakrika í Hafnarfirði í dag. FH fer upp í sjö stig en Eyjamenn leita enn síns fyrsta sigurs. 15. maí 2022 16:20 Eggert Gunnþór snýr aftur til fyrri starfa hjá FH Knattspyrnumaðurinn Eggert Gunnþór Jónsson hefur fengið leyfi til að snúa aftur til fyrri starfa hjá FH eftir að mál hans og Arons Einars Gunnarssonar var fellt niður. 15. maí 2022 10:09 Mál Arons Einars og Eggerts Gunnþórs fellt niður Kynferðisbrotamál knattspyrnumannanna Arons Einars Gunnarssonar og Eggerts Gunnþórs Jónssonar hefur verið fellt niður af héraðssaksóknara. 13. maí 2022 18:34 Mest lesið Óbein yfirlýsing frá DeAndre Kane Körfubolti McIlroy sækir um skilnað nokkrum dögum fyrir PGA-meistaramótið Golf United íhugar að ráða stjóra Ipswich sem eftirmann Ten Hags Enski boltinn Benedikt Guðmundsson hættur með Njarðvík: Ofboðslega þakklátur Körfubolti Hvað var LeBron að gera í Cleveland? Körfubolti Sagði sína menn hafa þurft að þjást og hrósaði varamarkverðinum Enski boltinn Telja að Bruno verði áfram á Old Trafford Enski boltinn Ten Hag vísar gagnrýni Rooneys til föðurhúsanna Enski boltinn Uppgjörið og viðtöl: Grindavík - Keflavík 112-63 | Grindvíkingar í úrslit eftir ruglaðan síðari hálfleik Körfubolti Kristófer Acox: „Fokkin passion“ Körfubolti Fleiri fréttir „Þegar við skorum að þá er gaman“ „Þetta var eins og handboltaleikur“ „Fórum af bensíngjöfinni í staðin fyrir að gefa í” Uppgjör og viðtöl: Stjarnan - FH 4-3 | Markasúpa í Garðabænum Uppgjör og viðtöl: Þór/KA - Keflavík 4-0 | Heimakonur ekki í vandræðum Uppgjör, viðtöl og myndir: Valur - Tindastóll 3-1 | Meistararnir lentu undir en komu til baka KA dæmt til að greiða Arnari tæpar ellefu milljónir Heiðruðu mömmur leikmanna á sérstakan hátt „Ef KR-ingar vita að Óskar sé til í að koma, skiptir einhverju máli hvað Gregg gerir?“ „Búinn að vera tilfinningarússibani“ „Til skammar að koma úr atvinnumennsku eins og hann er að koma“ Sjáðu rauðu spjöld KR-inga, mark beint úr horni og öll hin mörkin í gær „Það er eitt að vera góður og annað að fá eitthvað fyrir það“ Uppgjörið og viðtöl: Víkingur R. - FH 2-0 | FH fatast flugið en Víkingur aftur á beinu brautinni Uppgjör: Fylkir - Breiðablik 0-3 | Öruggur sigur Blika á lánlausum Fylkismönnum Uppgjör: KR-HK 1-2 | Frækinn sigur HK á Meistaravöllum Meiðslavandræði Vestra virðast engan enda ætla að taka Patrick til bjargar eftir klúður Gylfa og klaufamörk á Akranesi Uppgjörið: Valur - KA 3-1 | Vítaklúður Gylfa kom ekki að sök Uppgjörið: ÍA - Vestri 3-0 | Öruggt hjá ÍA í slag nýliðanna Sjáðu frábært spil skila tveimur mörkum í Garðabæ „Við erum helvíti seigir“ Bragi Karl tryggði ÍR-ingum stig á elleftu stundu Uppgjörið og viðtöl: Stjarnan - Fram 1-1 | Aftur komu Rúnarsmenn til baka Oliver með þrennu gegn gömlu félögunum Sextán ára stelpa skoraði í Bestu eftir stoðsendingu frá einni fimmtán ára „Hrafninn svífur yfir Vesturbænum“ Eysteinn ráðinn framkvæmdastjóri KSÍ Bláa flautan hjálpar bæði foreldrum og þjálfurum Rankaði við sér í sjúkrabíl: „Þekki hve alvarlegar afleiðingar þetta getur haft“ Sjá meira
Umfjöllun: FH 2-0 ÍBV | FH-ingar aftur á sigurbraut FH vann 2-0 sigur á nýliðum ÍBV í 6. umferð Bestu deildar karla í Kaplakrika í Hafnarfirði í dag. FH fer upp í sjö stig en Eyjamenn leita enn síns fyrsta sigurs. 15. maí 2022 16:20
Eggert Gunnþór snýr aftur til fyrri starfa hjá FH Knattspyrnumaðurinn Eggert Gunnþór Jónsson hefur fengið leyfi til að snúa aftur til fyrri starfa hjá FH eftir að mál hans og Arons Einars Gunnarssonar var fellt niður. 15. maí 2022 10:09
Mál Arons Einars og Eggerts Gunnþórs fellt niður Kynferðisbrotamál knattspyrnumannanna Arons Einars Gunnarssonar og Eggerts Gunnþórs Jónssonar hefur verið fellt niður af héraðssaksóknara. 13. maí 2022 18:34
Uppgjörið og viðtöl: Grindavík - Keflavík 112-63 | Grindvíkingar í úrslit eftir ruglaðan síðari hálfleik Körfubolti
Uppgjörið og viðtöl: Grindavík - Keflavík 112-63 | Grindvíkingar í úrslit eftir ruglaðan síðari hálfleik Körfubolti