Björguðu 250 kg manni út af heimili sínu Jóhann Hlíðar Harðarson skrifar 28. maí 2023 15:00 Maðurinn var nokkuð illa haldinn eftir að hafa legið í tæpa viku á gólfinu heima hjá sér. Twitter Slökkviliðið í Barcelona þurfti að hjálpa 250 kílóa manni að komast út úr íbúð sinni í vikunni. Maðurinn hafði ekki farið út úr íbúðinni sinni síðan fyrir Covid-faraldurinn.
Þegar slökkviliðið kom að heimili Alejandros í vikunni mætti þeim stoppfull íbúð af drasli. Sorpi hreinlega. Mitt í sorpinu lá Alejandro, 48 ára og 250 kíló. Hann hafði hrasað, gat ekki staðið upp og fann sig á endanum knúinn til að hringja í lögregluna. Þá hafði hann reyndar legið matar- og vatnslaus á gólfinu í tæpa viku, en óbærilegur þorsti og hungur knúðu hann á endanum til að kalla eftir hjálp. Brjóta þurfti gat á húsvegginn svo hægt væri að moka út ruslinu áður en hægt var að ná manninum út úr íbúðinni.Twitter Skurðgrafa mokaði ruslinu út Björgunaraðgerðirnar tóku sjö klukkustundir. Ekki var hægt að opna dyrnar fyrir drasli og því þurfti að brjóta gat á vegg íbúðarinnar. Skurðgrafa var svo notuð til að moka út öllu ruslinu áður en hægt var að koma manninum út með því að nota krana. Hér er myndband þar sem hægt er að fylgjast með björgunaraðgerðunum. Slökkviliðsmennirnir íklæddust hlífðarfatnaði og grímum áður en þeir fóru inn í íbúðina og lögreglan segir að þeir hafi aldrei upplifað annað eins á ferli sínum. Reyndar furðaði talsmaður félagsyfirvalda sig á því að enginn nágranni skyldi hafa kvartað yfir megnri fýlu sem barst frá íbúð mannsins. Hefur ekki farið út úr húsi í þrjú ár Samkvæmt upplýsingum lögreglunnar fór maðurinn að vinna í fjarvinnu þegar útgöngubann var sett á á Spáni vorið 2020, vegna Covid-faraldursins. Borgaryfirvöld höfðu síðast afskipti af manninum í október síðastliðnum vegna kvartana nágranna hans sem höfðu áhyggjur af heilsufari hans. Maðurinn hleypti fulltrúa borgarinnar ekki inn í íbúðina og þar við sat, enginn aðhafðist neitt frekar. Maðurinn dvelur nú á sjúkrahúsi en ekki hefur verið ákveðið hvað verður um hann að dvöl lokinni. Hann er sagður þjást af Díógenesarheilkenni, sem felst í því að fólk hættir að hirða sig og viðar að sér ómældu magni af rusli. Það er kennt við gríska heimspekinginn Díógenes sem uppi var á 4. öld fyrir Krist, en þversögnin í nafninu er merkileg að því að leyti að Díógenes safnaði alls ekki rusli, þvert á móti, hann var meinlætamaður sem var þekktur fyrir að hafa búið í tunnu.
Spánn Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Innlent Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Innlent „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Innlent Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni Innlent Myndband sýnir árás Diddy Erlent Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Erlent Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Innlent Fleiri fréttir Myndband sýnir árás Diddy Færeyingar felldu frumvarp um fóstureyðingar Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Segir Rússa ekki hafa í hyggju að taka Kharkív Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Reyndi að kveikja í bænahúsi gyðinga og var skotinn til bana Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Vill bjóða NATO að byggja nýjan flugvöll í Færeyjum Þorir að veðja bjór á að hún verði áfram forsætisráðherra Lokað á grein um barnadráp í Bretlandi Drápu fangaverði og hjálpuðu fanga að strjúka Sjá meira