Átján ára strákur deilir efsta sætinu á Íslandsmótinu í golfi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. ágúst 2020 13:39 Tómas Eiríksson Hjaltested spilaði vel á fyrsta degi Íslandsmótsins og náði meðal annars fugli á þremur holum í röð. Mynd/GSÍ/Seth
Tómas Eiríksson Hjaltested og Aron Snær Júlíusson eru efstir af þeim sem hafa lokið fyrsta hring á Íslandsmótinu í golfi nú klukkan hálf tvö. Tómas Eiríksson Hjaltested kemur úr Golfklúbbi Reykjavíkur og er nýorðinn átján ára gamall. Hann lék holurnar átján í dag á 69 höggum eða þremur höggum undir pari. Tómas Eiríksson Hjaltested fékk þrjá af fjórum fuglum sínum á seinni níu en hann fékk þá fugl á 12., 13. og 14. holu. Besta skor það sem af er 1. keppnisdegi á Íslandsmótinu í golfi 2020 í karlaflokki. -3, Tómas Eiríksson Hjaltested, GR, Aron Snær Júlíusson, GKG https://t.co/D9IP2YEXdm pic.twitter.com/mIVQ3lXYov— Golfsamband Íslands (@Golfsamband) August 6, 2020 Hin 24 ára gamli Aron Snær Júlíusson úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar lék líka á þremur höggum undir pari og deilir með honum efsta sætinu. Aron Snær Júlíusson fékk meðal annars örn á tólftu holu en hann var með fjóra fugla og einn örn á hringnum. Aron Snær fékk aftur á móti tvöfaldan skolla á fimmtu og svo annan skolla á þeirri tíundu. Viktor Ingi Einarsson úr Golfklúbbi Reykjavíkur var kominn á fjögur högg undir par en tapaði tveimur höggum á lokaholunum. Rúnar Arnórsson kláraði líka á tveimur höggum undir pari eftir að hafa líka tapað tveimur höggum í blálokin á hringnum. Axel Bóasson úr Golfklúbbnum Keili kláraði á 71 höggi og er því tveimur höggum á eftir efstu mönnum.
Golf Mest lesið Varði pabba-kroppinn eftir mynd af sér og Swift á ströndinni Sport Boehly fær að fjúka 2027 Enski boltinn Þjálfari Leicester látinn fara vegna meints sambands við leikmann Enski boltinn Alonso fari hvergi og Liverpool snýr sér annað Enski boltinn Arna spilar með FH næstu þrjú árin Íslenski boltinn „Verð dæmdur fyrir þetta restina af ævi minni“ Sport „Það er ekkert sem stoppar Remy Martin“ Sport Arnór frá út tímabilið eftir ömurlega tæklingu Ísraelans Fótbolti Dagskráin í dag: Valur og Breiðablik mætast í úrslitum, enska B-deildin og LUÍH Sport Bjarki Már og félagar í góðri stöðu Handbolti Fleiri fréttir Tiger Woods verður meðal kylfinga á Masters Sjáðu höggin í mögnuðum sigri Scheffler: „Fengi kinnhest frá konunni“ Boðaðir á fund með Sádunum á bakvið LIV-mótaröðina Hefur áhyggjur af því að fólk sé að missa áhugann Fyrrverandi útkastari vann sitt fyrsta PGA-mót Sonur Tigers komst ekki á fyrsta PGA-mótið Sonur Tigers freistar þess að komast á sitt fyrsta PGA-mót Sögulegur sigur en svekktur að fá ekki mynd með Tiger Hent úr keppni eftir að hafa skráð vitlaust skor Tiger þurfti vökva í æð og hætti keppni á miðjum hring Tiger Woods segist vera verkjalaus Góður lokahringur kom Haraldi í 13. sæti Haraldur svaraði fyrir sig og er í toppbaráttu í Höfðaborg Spilaði besta golfhring sögunnar Sjá meira