„Bara á Íslandi væri bróðir þess sem þú braust á í gæslunni að passa þig“ Sindri Sverrisson skrifar 23. maí 2023 10:33 Karl Friðleifur Gunnarsson fékk að líta rauða spjaldið þegar korter var til leiksloka, og Víkingar 2-0 yfir gegn HK. Þeir lönduðu þó sigri og juku forskot sitt á toppi Bestu deildarinnar. Stöð 2 Sport Rauða spjaldið á Karl Friðleif, leikaraskapur Eyþórs Arons og olnbogaskot Nikolaj Hansen voru til umræðu í Stúkunni á Stöð 2 Sport eftir mikil læti í Kórnum, í 2-1 sigri Víkinga gegn HK í Bestu deildinni í fótbolta. Víkingar unnu leikinn þrátt fyrir að vera manni færri síðasta korterið eftir að Karl Friðleifur Gunnarsson var rekinn af velli fyrir brot á Eyþóri Aroni Wöhler. Eyþór hafði skömmu áður fengið gult spjald eftir furðuleg viðskipti við Gunnar Vatnhamar þar sem Eyþór kastaði sér niður í gervigrasið. Sérfræðingarnir í Stúkunni byrjuðu á að skorað rauða spjaldið sem Karl Friðleifur fékk en dómari leiksins virtist fyrst ætla að gefa gult spjald. Alla umræðuna og atvikin má sjá í klippunni hér að neðan. Klippa: Stúkan: Lætin í Kórnum „Dómarinn virðist hafa gott sjónarhorn. Virðist sjá þetta alveg „clean“. Ég held að hann hafi endað á réttri ákvörðun. Ég skil ekki hvað Karl Friðleifur er að gera. Hann í rauninni sest á rassinn, fer reyndar ekki á neitt ofboðslegum hraða inn í þetta, en hann fer niður með báðar lappir beinar, aðra uppi, og samkvæmt bókinni þá held ég að þetta sé bara rétt ákvörðun,“ sagði Baldur Sigurðsson. Guðmundur Benediktsson, stjórnandi þáttarins, benti svo á skemmtilega staðreynd þegar hann sýndi mynd af gæslumanninum sem „gætti“ Karls Friðleifs utan vallar eftir rauða spjaldið. Sá var nefnilega Frans, bróðir Eyþórs Arons. „Bara á Íslandi væri bróðir þess sem þú braust á í gæslunni að passa þig eftir að þú fékkst rautt spjald,“ sagði Guðmundur léttur í bragði. Karl Friðleifur Gunnarsson kominn af velli eftir rauða spjaldið, í gæslu hjá bróður þess sem hann braut á.Stöð 2 Sport Höfum allir lent í að fá olnboga í andlitið Sérfræðingarnir skoðuðu einnig olnbogaskot Nikolaj Hansen í Eið Atla Rúnarsson þegar þeir voru í skallabaráttu. Guðmundur spurði hvort að þessu atviki yrði vísað til aganefndar, eins og olnbogaskoti Kjartans Henrys Finnbogasonar í Hansen á dögunum, en Baldur og Atli Viðar Björnsson töldu að það ætti ekki að gera. „Við vitum það náttúrulega ekki en ég myndi ekki gera það. Mér finnst í rauninni galið að einhverjir Hafnfirðingar séu að líkja þessu saman. Mér finnst vera mikill stigsmunur á þessum tveimur atvikum. Nikolaj Hansen lítur aldrei aftur á bak, hann er að nota hendurnar til að stökkva upp, hann er á undan upp. Því miður, þetta gerist bara. Við höfum allir lent í þessu, að fá olnboga í andlitið. Menn fara upp með hendurnar. Sumir dómarar gefa gult á þetta en þetta er heiðarleg barátta sem því miður endar svona fyrir Eið Atla,“ sagði Baldur og Atli Viðar tók undir: „Það að menn fái aðeins á lúðurinn er bara því miður óhjákvæmilegur hluti af leiknum, þegar reglurnar eru eins og þær eru.“ „Eyþór á náttúrulega bara að hætta þessu“ Loks var farið yfir fyrrnefndan leikaraskap Eyþórs Arons sem Baldur sagði vera ljóð á ráði hans: „Eyþór á náttúrulega bara að hætta þessu. Spilaðu eins og þú spilar, og vertu óþolandi, en hættu að kasta þér niður. Þetta er í annað sinn sem við sjáum þetta.“ Besta deildin er á Stöð 2 Sport. Smelltu hér til að horfa á leiki og þætti. Besta deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 4.990 kr. á mánuði og má kaupa hér. Besta deild karla HK Víkingur Reykjavík Stúkan Mest lesið Í beinni: Lokaumferðin í enska | Hvaða lið verður meistari? Enski boltinn Usyk fyrstur til að vinna Fury Sport Telur að Usyk hafi unnið vegna stríðsins í Úkraínu Sport Var spáð falli en eru á leið í Meistaradeildina Fótbolti Daníel stórbætti þrjátíu ára Íslandsmet Jóns Arnars Sport Tapið í gær þýðir að Kane missir af enn einum titlinum Fótbolti Manchester City Englandsmeistari fjórða árið í röð Fótbolti Skytturnar gerðu sitt en horfa samt á eftir titlinum Enski boltinn Klopp segir að Liverpool verði í góðum höndum hjá Slot Enski boltinn „Eins og að spila við landslið Þýskalands nasismans“ Sport Fleiri fréttir Leiknir vann Breiðholtsslaginn og Njarðvík með fullt hús stiga Sandra María lagði upp bæði mörk Þórs/KA í bikarsigri á Dalvík Bikarmeistarar Víkings í næstu umferð ásamt Keflavík og Fylki Uppgjör: Stjarnan - KR 5-3 | Endurkoma KR-inga hófst of seint gegn Stjörnunni Margrét Lára: Mér finnst hún hafa verið stórkostleg „Sá að þeim leið aldrei illa“ Uppgjörið og viðtöl: Fylkir - Breiðablik 0-2 | Blikar enn með fullt hús Uppgjörið: Þróttur - Víkingur 0-1 | Þróttarar enn án sigurs Illa orðað samningsákvæði varð KA að falli Albert gáttaður á Lárusi Orra: „Hvað meinarðu? Hvað er í gangi hérna?“ „Þegar við skorum að þá er gaman“ „Þetta var eins og handboltaleikur“ „Fórum af bensíngjöfinni í staðin fyrir að gefa í” Uppgjör og viðtöl: Stjarnan - FH 4-3 | Markasúpa í Garðabænum Uppgjör og viðtöl: Þór/KA - Keflavík 4-0 | Heimakonur ekki í vandræðum Uppgjör, viðtöl og myndir: Valur - Tindastóll 3-1 | Meistararnir lentu undir en komu til baka KA dæmt til að greiða Arnari tæpar ellefu milljónir Heiðruðu mömmur leikmanna á sérstakan hátt „Ef KR-ingar vita að Óskar sé til í að koma, skiptir einhverju máli hvað Gregg gerir?“ „Búinn að vera tilfinningarússibani“ „Til skammar að koma úr atvinnumennsku eins og hann er að koma“ Sjáðu rauðu spjöld KR-inga, mark beint úr horni og öll hin mörkin í gær „Það er eitt að vera góður og annað að fá eitthvað fyrir það“ Uppgjörið og viðtöl: Víkingur R. - FH 2-0 | FH fatast flugið en Víkingur aftur á beinu brautinni Uppgjör: Fylkir - Breiðablik 0-3 | Öruggur sigur Blika á lánlausum Fylkismönnum Uppgjör: KR-HK 1-2 | Frækinn sigur HK á Meistaravöllum Meiðslavandræði Vestra virðast engan enda ætla að taka Patrick til bjargar eftir klúður Gylfa og klaufamörk á Akranesi Uppgjörið: Valur - KA 3-1 | Vítaklúður Gylfa kom ekki að sök Uppgjörið: ÍA - Vestri 3-0 | Öruggt hjá ÍA í slag nýliðanna Sjá meira
Víkingar unnu leikinn þrátt fyrir að vera manni færri síðasta korterið eftir að Karl Friðleifur Gunnarsson var rekinn af velli fyrir brot á Eyþóri Aroni Wöhler. Eyþór hafði skömmu áður fengið gult spjald eftir furðuleg viðskipti við Gunnar Vatnhamar þar sem Eyþór kastaði sér niður í gervigrasið. Sérfræðingarnir í Stúkunni byrjuðu á að skorað rauða spjaldið sem Karl Friðleifur fékk en dómari leiksins virtist fyrst ætla að gefa gult spjald. Alla umræðuna og atvikin má sjá í klippunni hér að neðan. Klippa: Stúkan: Lætin í Kórnum „Dómarinn virðist hafa gott sjónarhorn. Virðist sjá þetta alveg „clean“. Ég held að hann hafi endað á réttri ákvörðun. Ég skil ekki hvað Karl Friðleifur er að gera. Hann í rauninni sest á rassinn, fer reyndar ekki á neitt ofboðslegum hraða inn í þetta, en hann fer niður með báðar lappir beinar, aðra uppi, og samkvæmt bókinni þá held ég að þetta sé bara rétt ákvörðun,“ sagði Baldur Sigurðsson. Guðmundur Benediktsson, stjórnandi þáttarins, benti svo á skemmtilega staðreynd þegar hann sýndi mynd af gæslumanninum sem „gætti“ Karls Friðleifs utan vallar eftir rauða spjaldið. Sá var nefnilega Frans, bróðir Eyþórs Arons. „Bara á Íslandi væri bróðir þess sem þú braust á í gæslunni að passa þig eftir að þú fékkst rautt spjald,“ sagði Guðmundur léttur í bragði. Karl Friðleifur Gunnarsson kominn af velli eftir rauða spjaldið, í gæslu hjá bróður þess sem hann braut á.Stöð 2 Sport Höfum allir lent í að fá olnboga í andlitið Sérfræðingarnir skoðuðu einnig olnbogaskot Nikolaj Hansen í Eið Atla Rúnarsson þegar þeir voru í skallabaráttu. Guðmundur spurði hvort að þessu atviki yrði vísað til aganefndar, eins og olnbogaskoti Kjartans Henrys Finnbogasonar í Hansen á dögunum, en Baldur og Atli Viðar Björnsson töldu að það ætti ekki að gera. „Við vitum það náttúrulega ekki en ég myndi ekki gera það. Mér finnst í rauninni galið að einhverjir Hafnfirðingar séu að líkja þessu saman. Mér finnst vera mikill stigsmunur á þessum tveimur atvikum. Nikolaj Hansen lítur aldrei aftur á bak, hann er að nota hendurnar til að stökkva upp, hann er á undan upp. Því miður, þetta gerist bara. Við höfum allir lent í þessu, að fá olnboga í andlitið. Menn fara upp með hendurnar. Sumir dómarar gefa gult á þetta en þetta er heiðarleg barátta sem því miður endar svona fyrir Eið Atla,“ sagði Baldur og Atli Viðar tók undir: „Það að menn fái aðeins á lúðurinn er bara því miður óhjákvæmilegur hluti af leiknum, þegar reglurnar eru eins og þær eru.“ „Eyþór á náttúrulega bara að hætta þessu“ Loks var farið yfir fyrrnefndan leikaraskap Eyþórs Arons sem Baldur sagði vera ljóð á ráði hans: „Eyþór á náttúrulega bara að hætta þessu. Spilaðu eins og þú spilar, og vertu óþolandi, en hættu að kasta þér niður. Þetta er í annað sinn sem við sjáum þetta.“ Besta deildin er á Stöð 2 Sport. Smelltu hér til að horfa á leiki og þætti. Besta deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 4.990 kr. á mánuði og má kaupa hér.
Besta deildin er á Stöð 2 Sport. Smelltu hér til að horfa á leiki og þætti. Besta deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 4.990 kr. á mánuði og má kaupa hér.
Besta deild karla HK Víkingur Reykjavík Stúkan Mest lesið Í beinni: Lokaumferðin í enska | Hvaða lið verður meistari? Enski boltinn Usyk fyrstur til að vinna Fury Sport Telur að Usyk hafi unnið vegna stríðsins í Úkraínu Sport Var spáð falli en eru á leið í Meistaradeildina Fótbolti Daníel stórbætti þrjátíu ára Íslandsmet Jóns Arnars Sport Tapið í gær þýðir að Kane missir af enn einum titlinum Fótbolti Manchester City Englandsmeistari fjórða árið í röð Fótbolti Skytturnar gerðu sitt en horfa samt á eftir titlinum Enski boltinn Klopp segir að Liverpool verði í góðum höndum hjá Slot Enski boltinn „Eins og að spila við landslið Þýskalands nasismans“ Sport Fleiri fréttir Leiknir vann Breiðholtsslaginn og Njarðvík með fullt hús stiga Sandra María lagði upp bæði mörk Þórs/KA í bikarsigri á Dalvík Bikarmeistarar Víkings í næstu umferð ásamt Keflavík og Fylki Uppgjör: Stjarnan - KR 5-3 | Endurkoma KR-inga hófst of seint gegn Stjörnunni Margrét Lára: Mér finnst hún hafa verið stórkostleg „Sá að þeim leið aldrei illa“ Uppgjörið og viðtöl: Fylkir - Breiðablik 0-2 | Blikar enn með fullt hús Uppgjörið: Þróttur - Víkingur 0-1 | Þróttarar enn án sigurs Illa orðað samningsákvæði varð KA að falli Albert gáttaður á Lárusi Orra: „Hvað meinarðu? Hvað er í gangi hérna?“ „Þegar við skorum að þá er gaman“ „Þetta var eins og handboltaleikur“ „Fórum af bensíngjöfinni í staðin fyrir að gefa í” Uppgjör og viðtöl: Stjarnan - FH 4-3 | Markasúpa í Garðabænum Uppgjör og viðtöl: Þór/KA - Keflavík 4-0 | Heimakonur ekki í vandræðum Uppgjör, viðtöl og myndir: Valur - Tindastóll 3-1 | Meistararnir lentu undir en komu til baka KA dæmt til að greiða Arnari tæpar ellefu milljónir Heiðruðu mömmur leikmanna á sérstakan hátt „Ef KR-ingar vita að Óskar sé til í að koma, skiptir einhverju máli hvað Gregg gerir?“ „Búinn að vera tilfinningarússibani“ „Til skammar að koma úr atvinnumennsku eins og hann er að koma“ Sjáðu rauðu spjöld KR-inga, mark beint úr horni og öll hin mörkin í gær „Það er eitt að vera góður og annað að fá eitthvað fyrir það“ Uppgjörið og viðtöl: Víkingur R. - FH 2-0 | FH fatast flugið en Víkingur aftur á beinu brautinni Uppgjör: Fylkir - Breiðablik 0-3 | Öruggur sigur Blika á lánlausum Fylkismönnum Uppgjör: KR-HK 1-2 | Frækinn sigur HK á Meistaravöllum Meiðslavandræði Vestra virðast engan enda ætla að taka Patrick til bjargar eftir klúður Gylfa og klaufamörk á Akranesi Uppgjörið: Valur - KA 3-1 | Vítaklúður Gylfa kom ekki að sök Uppgjörið: ÍA - Vestri 3-0 | Öruggt hjá ÍA í slag nýliðanna Sjá meira