ÍBV getur komist í hóp hinna ósigruðu í úrslitakeppninni Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 26. maí 2023 10:01 Dagur Arnarsson og félagar í ÍBV geta orðið Íslandsmeistarar í kvöld. vísir/hulda margrét Ef ÍBV vinnur Hauka í þriðja leik liðanna um Íslandsmeistaratitilinn í handbolta karla í kvöld komast Eyjamenn í hóp liða sem hafa farið ósigruð í gegnum úrslitakeppnina.
ÍBV hefur unnið alla sjö leiki sína í úrslitakeppninni og getur sett punktinn yfir i-ið með því að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn með sigri á Haukum í Eyjum í kvöld. Þrjú lið hafa afrekað það að vinna alla leiki sína í úrslitakeppni karla á Íslandi, tvö í átta liða úrslitakeppni og eitt í fjögurra liða. Haukar urðu fyrstir til að vinna alla leiki sína í úrslitakeppninni 2005. Þá unnu þeir FH í átta liða úrslitum, 2-0, Val í undanúrslitum, 2-0, og ÍBV í úrslitum, 3-0. Á árunum 2004 og 2005 töpuðu Haukar aðeins einum af fjórtán leikjum sínum í úrslitakeppninni. Páll Ólafsson var þjálfari Hauka bæði árin. HK vann alla leiki sína í úrslitakeppninni 2012 þegar liðið varð Íslandsmeistari í fyrsta og eina sinn. HK tryggði sér sæti í fjögurra liða úrslitakeppni í síðustu umferð deildakeppninnar en vann svo Hauka og FH, bæði 3-0, í úrslitakeppninni. Annar þjálfara HK var Erlingur Richardsson, núverandi þjálfari ÍBV. Haukar urðu einnig Íslandsmeistarar eftir að hafa unnið alla leiki sína í úrslitakeppninni 2015. Haukar, undir stjórn Patreks Jóhannessonar, enduðu bara í 5. sæti Olís-deildarinnar en voru óstöðvandi í úrslitakeppninni. Þar unnu þeir FH, 2-0, Val, 3-0, og Aftureldingu, 3-0. ÍBV getur nú komist í þennan fámenna en góðmenna hóp með sigri á Haukum í kvöld. Fimm lið hafa aðeins tapað einum leik í úrslitakeppninni: Valur 1993, Haukar 2004, ÍBV 2018, Selfoss 2019 og Valur 2022. Leikurinn hefst klukkan 19:15 og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport. Upphitun Seinni bylgjunnar hefst klukkan 18:30.
Olís-deild karla ÍBV Mest lesið Hristir hausinn yfir „glórulausum“ og „smásálarlegum“ ummælum Körfubolti Heimsmet Japanans gildir ekki Sport Krakkalæti og langt bann eða gult og málið dautt? Íslenski boltinn Krókur Liverpool á móti bragði Enski boltinn „Eins og að fá hníf í bakið“ Sport Hamrén hafnaði 388 milljóna samningi Fótbolti Tíu KR-ingar skoruðu níu í gölnum leik Íslenski boltinn Taka gamlar hetjur fram skóna í bikarnum í dag? Íslenski boltinn Hafa ekki áhyggjur af fækkandi Elo-stigum Sport Bayern hyggst ráða manninn sem United losaði sig við Fótbolti Fleiri fréttir Bjarni í Selvindi semur við Val Norðmenn töpuðu milljónum á því að halda HM í handbolta „Þetta einvígi er bara rétt að byrja“ Uppgjörið: Afturelding 28-25 Valur | Mosfellingar leiða einvígið eftir sveiflukenndan leik Haukur hafði betur í Meistaradeildarslagnum við Magdeburg „Það er ekkert plan B“ Ungir strákar þarna úti sem gætu spilað á HM á Íslandi „Ég hefði bara átt að taka leikhlé“ Uppgjör, viðtöl og myndir: Fram - Haukar 23-27 | Gestirnir sterkari undir lokin Íslandsmeistararnir byrja undanúrslitaeinvígið á sigri Teitur Örn öflugur og Flensburg í góðri stöðu Árs bann fyrir árás á eftirlitsmann og þjálfarinn fékk líka bann Carlos tekur við Selfossi: „Hann er algjör handboltaheili“ Aue ævintýri Óla Stef tekur enda eftir tímabilið „Mun stærri sigur en ég bjóst við“ Umfjöllun: Valur - Minaur Baia Mare 36-28 | Fara út með átta marka forskot „Hefðum þegið betri markvörslu“ „Höfðum stjórn á leiknum allan tímann“ Uppgjörið: FH - ÍBV 36-31 | FH komið í forystu í einvíginu við ÍBV Óðinn með 9 mörk þegar Kadetten tók forystuna í einvíginu „Við erum góðir og þeir eru góðir“ Aldís Ásta atkvæðamikil þegar Skara jafnaði einvígið Zwickau sogast niður í fallbaráttu Orri Freyr fór mikinn í stórsigri Sporting Fredericia missti toppsætið til Skjern Haukur og félagar byrja undanúrslitin vel Þýðir ekki að mæta með hangandi haus: „Það er ekkert bull“ „Hef enga trú á því að Þjóðarhöll verði risin árið 2031“ Fjórtán íslensk mörk og Magdeburg á toppinn Úlfurinn gæti farið til Magdeburg Sjá meira