Felldi TM í Landsrétti vegna vinnuslyss eftir tap í héraði Árni Sæberg skrifar 15. október 2021 18:09 Landsréttur. Vísir/Vilhelm Landsréttur viðurkenndi í dag bótaskyldu TM vegna slyss sem karlmaður varð fyrir er hann var að færa tvö hundruð lítra olíutunnu. TM hélt því fram fyrir dómi að ekki hefði verið um slys í skilningi bótaréttar að ræða.
Héraðsdómur hafði þegar sýknað TM tryggingar af öllum kröfum mannsins á þeim grundvelli að tjón hans hefði ekki orsakast af atburði sem telst slys í skilningi vátryggingaskilmála og meginreglu bótaréttar. Í dómi Landsréttar segir að maðurinn hafi slasast á tvíhöfða annarar handar þegar hann var að færa tvö hundruð lítra olíutunnu á palli. Honum hafi fundist að hönd hans væri að klemmast á milli tveggja tunna og því kippt henni til. Við það hafi hann fundið mikinn verk í höndinni. Við læknisskoðun þremur dögum síðar hafi komi í ljós að hann hafi slitið sin í tvíhöfða. Í tilkynningu til Vinnueftirlitsins sagði: „Var að færa til olíutunnu og þegar tunnan fellur til baka þá ætlar A að halda við tunnuna en fær slink á handlegg og við það hefur hann rifið vöðva.“ Læknir staðfesti áverkann Þremur árum eftir slysið var áverki mannsins metinn og í mati læknis sagði að maðurinn hafi hlotið áverka á vinstri tvíhöfða þegar hann greip undir olíutunnu. Læknirinn taldi ómögulegt að áverki mannsins hafi getað orsakast af hreyfingu einni saman. Ekki slys nema tjón sé að rekja til skyndilegs utanaðkomandi atburðar Líkt og áður segir hélt TM því fram á áverka mannsins mætti ekki rekja til atburðar sem telst slys í skilningi bótaréttar en til þess þarf tjón að orsakast af skyndilegum utanaðkomandi atburði. Í dóminum segir að af dómaframkvæmd sé ljóst að meiðsl sem verða vegna þess að þungum hlut er lyft falli ekki undir slysahugtak vátryggingaréttar enda sé þau ekki að rekja til skyndilegs utanaðkomandi atburðar nema meira komi til. Þó segir að staðan geti breyst fari eitthvað úrskeiðis við verkið sem leiðir til dæmis til þess að meiri byrði lendir á þeim sem lyftir eða átakið verður skyndilega annað en hann var búinn undir, enda geta meiðsli sem af slíku leiða þá talist verða vegna utanaðkomandi atvika. Þar sem dómurinn taldi sannað að olíutunna hafi hreyfst meðan maðurinn var að færa hana var fallist á málsástæður mannsins þess efnis að eitthvað hafi farið úrskeiðis við verkið. Því hafi tjón hans orsakast af skyndilegum utanaðkomandi atburði eða slysi líkt og það er oftast kallað. TM greiði bætur og allan málskostnað Niðurstaða Landsréttar var sú að TM bæri að greiða manninum bætur úr slysatryggingu launþega sem atvinnuveitandi hans hafði keypt hjá félaginu. Þá var TM gert að greiða tæplega 1,5 milljón króna í málskostnað sem renna í ríkissjóðs þar sem maðurinn hafði fengið gjafsókn í málinu.
Dómsmál Tryggingar Neytendur Vinnuslys Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Innlent Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Innlent Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Innlent Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Innlent Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu Innlent Myndband sýnir árás Diddy Erlent „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Innlent „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Innlent Fleiri fréttir Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn „Alls ekki svo að við tútturnar séum að taka yfir“ Framkvæmdir hafnar við brú yfir Fjarðarhornsá Segist kallaður „stríðsæsingarmaður“ vegna fyrirhyggju Sjúklingum Landspítala fjölgaði um 4.500 milli ára Skólastjóradrama í Kóraskóla fær óvæntan endi Sjá meira