Ekið á gangandi vegfaranda

Sjúkrabíll var kallaður á vettvang. Myndin er ótengd slysinu.
Sjúkrabíll var kallaður á vettvang. Myndin er ótengd slysinu. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ekið var á gangandi vegfarenda við Bústaðaveg í Reykjavík um þrjú leytið í dag. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynningin klukkan hálffjögur og varð slysið nærri flugvallaveginum, við Valsheimilið.

Voru bæði lögregla og sjúkraflutningamenn kölluð á vettvang.

Ekki var hægt að veita frekari upplýsingar um slysið eða líðan einstaklingsins að svo stöddu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert