Innlent

Vilja gamla götumynd á Bíldudal og endurreisa Kaupmannshúsið

Kristján Már Unnarsson skrifar
Hugmynd að nýjum sjávarbakka á Bíldudal. Kaupmannshúsið fyrir miðju.
Hugmynd að nýjum sjávarbakka á Bíldudal. Kaupmannshúsið fyrir miðju. Áhugahópur um Bíldudal.

Áform eru uppi á Bíldudal um að endurbyggja eitt veglegasta hús nítjándu aldar, Kaupmannshús Péturs J. Thorsteinssonar útgerðarmanns, þar sem sonur hans, listamaðurinn Muggur fæddist. Tvö önnur hús yrðu endurreist og þannig búin til gömul götumynd.

Greint var frá málinu í fréttum Stöðvar 2. Pétur J. Thorsteinsson byggði húsið þegar veldi hans stóð sem hæst. Hann var um tíma einn auðugasti maður Íslands og stofnaði Milljónafélagið ásamt Thor Jensen. 

Minnisvarði á Bíldudal um hjónin Pétur J. Thorsteinsson og Ásthildi Guðmundsdóttur, foreldra Muggs.Egill Aðalsteinsson

Pétur var fæddur í Otradal við Arnarfjörð og stóð fyrir umfangsmiklum atvinnurekstri á Bíldudal á árunum 1880 til 1914. Kaupmannshúsið brann árið 1928 en teikningar hafa varðveist af húsinu.

Gömul ljósmynd af Kaupmannshúsinu á Bíldudal frá aldamótaárinu 1900.

Kaupmannshúsið var bæði verslunarhús og heimili Péturs og eiginkonu hans, Ásthildar Guðmundsdóttur. Þar fæddist sonur þeirra, Guðmundur Thorsteinsson, árið 1891, betur þekktur sem rithöfundurinn og myndlistarmaðurinn Muggur.

Kaupmannshúsin, höll PJ Thorsteinssonar, stendur við þessa teikningu.Teikning/Ingvaldur Nikulásson.

Húsið þótti eitt það veglegasta á Íslandi á sínum tíma og til dæmis stóð gosbrunnur framan við innganginn að íbúð kaupmannsins. Kaupfélag Arnfirðinga reisti síðar verslunarhús á lóðinni sem enn stendur og hýsir núna skrifstofur Arnarlax.

Það eru einmitt stofnendur Arnarlax ásamt forystumönnum Vesturbyggðar sem myndað hafa hóp um að endurreisa Kaupmannshúsið sem og tvö önnur frá sama tíma, húsið Svalborg og svokallað Bullshús.

Hugmyndin er að húsin verði reist innan við smábátabryggjuna.Vilhelm Gunnarsson

Staðsetningin er hugsuð við höfnina. Þannig yrði byggt við götumynd sem þegar er til staðar og mynduð gata fyrir aftan í gömlum stíl. Húsið Svalborg stendur núna hjá kirkjunni en hugmyndin er að það yrði flutt. Bullshúsið hafði áður verið tekið niður fjöl fyrir fjöl en yrði reist að nýju.

Teikningin sýnir herbergjaskipan í Kaupmannshúsinu á Bíldudal.Minjasafnið, Hnjóti

Iða Marsibil Jónsdóttir, forseti bæjarstjórnar Vesturbyggðar, segir hópinn sjá þetta sem leið til að mýkja ásýnd Bíldudals. Þarna gæti fólk setið á bryggjunni og fylgst með athafnalífinu við höfnina og snætt veitingar um leið. 

Vesturbyggð hefur þegar stigið fyrsta formlega skrefið með því að sækja um styrk til Fiskeldissjóðs til að frumhanna húsin.

Hér má sjá frétt Stöðvar 2:

Veldi Péturs Thorsteinssonar teygði sig fljótlega yfir á Patreksfjörð,  og síðan víðar um land, eins og minnst var á í þessum þætti fyrir fjórum árum:


Tengdar fréttir

Nýr miðbær á Selfossi: Eldra fólk með tár á hvarmi

Nýr miðbær opnaði á Selfossi í dag með pompi og prakt. Svæðið er sagt vera lyftistöng fyrir atvinnulífið á staðnum og Selfoss breyttur bær. Opnun miðbæjarins, grillhátíð og hjólakeppni leiddu til þess að örtröð myndaðist í bænum í dag, þrátt fyrir tilraunir til þess að koma í veg fyrir það.

Matthías mættur til að skapa 150 störf á Bíldudal

Laxeldi stefnir í að valda byltingu á Vestfjörðum á næstu árum og skapa mörghundruð störf. Matthías Garðarsson, fiskeldisfrömuður í Noregi, kom til landsins fyrir helgi til að byggja upp 150 manna fyrirtæki á Bíldudal.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×