Einfalt svar: Já

Tite og Thiago Silva á fréttamannafundinum í Katar í dag.
Tite og Thiago Silva á fréttamannafundinum í Katar í dag. AFP/Nelson Almeida

Tite, landsliðsþjálfari Brasilíu í knattspyrnu, var snöggur að svara spurningu á fréttamannafundi í Katar í dag, um hvort Neymar yrði með liðinu gegn Suður-Kóreu í sextán liða úrslitum heimsmeistarakeppninnar annað kvöld.

Tite greip hljóðnemann af varnarmanninum Thiago Silva sem sat við hlið hans á fundinum og sagði einfaldlega: „Já.“

Neymar fór af velli meiddur á ökkla í fyrsta leik Brasilíumanna, gegn Serbíu, og missti af hinum tveimur leikjunum í riðlakeppninni, gegn Sviss og Kamerún.

Áður hafði Neymar sagt á Twitter í gærkvöld að sér liði vel.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert