Hefði getað endað með fimm manna jarðarför á Eyrarbakka Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 15. mars 2023 20:04 Fjölskyldan á Eyrarbakka þar sem kviknaði í út frá hlaupahjóli, sem var í hleðslu inn í þvottahúsi. Þetta eru þau Birna og Ívar Björgvinsson, ásamt sonum sínum, þeim Daníel Erni 12 ára og Ívan Gauta 11 ára. Á myndina vantar Hlyn Fannar, 17 ára. Magnús Hlynur Hreiðarsson Fimm manna fjölskylda á Eyrarbakka átti fótum sínum fjör að launa þegar kviknaði í út frá hlaupahjóli, sem var í hleðslu á heimilinu. Húsið fylltist fljótt af reyk og er óíbúðarhæft vegna mikils sóts.
Bruninn varð seint á sunnudagskvöld, strákarnir þrír á heimilinu voru sofnaðir en hjónin voru enn þá vakandi og kettirnir og hundarnir. Hlaupahjólið var í hleðslu inn í þvottahúsi þar sem eldurinn kviknað út frá því. „Þetta er þannig að rafhlaðan sjálf er í stýrinu og svo kemur rör, þannig að þetta var eiginlega rörasprengja,“ segir Birna Gylfadóttir, húsmóðir á heimilinu. Mjög mikill hávaði fylgdi sprengjunni og allt fylltist af reyk einn, tveir og þrír, sem fór um allt húsið. „Hefðum við verið sofnuð eða eitthvað, ég veit að það er ljótt að segja það en ætli það hafi ekki endað í fimm manna jarðarför hefði engin vaknað. Fólk verður að taka þessu alvarlega, ég er skíthrædd við þetta en við hugsuðum, „það kemur ekkert fyrir mig“, bætir Birna við. En hver er lærdómur fjölskyldunnar af brunanum? „Ég sagði að það yrði aldrei keypt svona rafmagnshjól aftur og þá sagði Ívar maðurinn minn „Þú færð ekki heldur rafmagnsbíl“. Svo kom í ljós að við erum ekki tryggð fyrir þessu og það var náttúrulega einn einn skellur en málið er að fólkið hérna í kringum okkur, fólk, sem við þekkjum ekki einu sinni er að hjálpa okkur og við erum bara búin að vera rosalega klökk,“ segir Birna og bætir við. „Mig langar svo að fólkið setji sig í samband við mig á Facebook því ég verð að geta þakkað því stuðninginn og hlýjar kveðjur.“ Rafmangshlaupahjólið, sem kviknað í en það er af gerðinni Tt-2t Electric Scooter.Magnús Hlynur Hreiðarsson Og þetta er ekki í fyrsta sinn, sem kviknar í húsinu. „Nei, heyrðu, ég er nú búin að biðja alla guði, sem eru til að kvótinn okkar sé nú búin í þessu því það kviknaði í hjá okkur út frá rafmagni í þvottahúsinu 2014, einmitt í mars, 31. mars, ég vona bara að þetta sé búið, þetta er komið gott,“ segir Birna. Söfnun er hafin fyrir fjölskylduna en ekki er vitað hvenær hún getur flutt aftur inn í húsið. Það eru foreldrar barna í 7. bekk Barnaskólans á Eyrarbakka og Stokkseyri, sem settu hana af stað. Öllum er velkomið að styrkja fjölskylduna með fjárframlagi og minnt er á að margt smátt gerir eitt stórt. Reikningsupplýsingar söfnunarinnar eru eftirfarandi: Reikningsnúmer: 0370-26-025500 Kennitala: 0607862409
Árborg Rafhlaupahjól Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Erlent Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Innlent Ástand Fico enn alvarlegt Erlent Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Innlent Býst við aukinni sókn Rússa Erlent „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Fleiri fréttir Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn „Alls ekki svo að við tútturnar séum að taka yfir“ Sjá meira