Hillary Clinton gefur út skáldsögu

Hillary Clinton gefur út sína fyrstu skáldsögu á árinu.
Hillary Clinton gefur út sína fyrstu skáldsögu á árinu. AFP

Fyrrverandi forsetaframbjóðandinn og fyrrverandi forsetafrúin Hillary Clinton mun í október gefa út sína fyrstu skáldsögu. Um er að ræða spennusögu sem fjallar um bandaríska ríkisstjórn í kjölfar fjölda hryðjuverka. 

Bókin ber titilinn State of Terror, en aðalsögupersónan er innanríkisráðherrann í ríkisstjórninni. Hún mun koma út þann 12. október 2021. Clinton skrifaði bókina ásamt rithöfundinum Louise Penny. 

Clinton var sjálf innanríkisráðherra í ríkisstjórn Barack Obama árin 2009-2013 og hefur því í djúpan reynslubanka að sækja. 

Clinton hefur skrifað og gefið út fjölda bóka og greina í gegnum árin, en þetta er þó hennar fyrsta skáldsaga.

BBC

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Reyndu að hafa hemil á löngun þinni til að koma illa fram í dag, sama hversu innilega þú telur aðra eiga það inni hjá þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Steindór Ívarsson
2
Lucinda Riley og Lucinda Riely
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lilja Sigurðardóttir
5
Birgitta H. Halldórsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Reyndu að hafa hemil á löngun þinni til að koma illa fram í dag, sama hversu innilega þú telur aðra eiga það inni hjá þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Steindór Ívarsson
2
Lucinda Riley og Lucinda Riely
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lilja Sigurðardóttir
5
Birgitta H. Halldórsdóttir