fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Fréttir

Nóg til hjá ASÍ – Eyddu 40 milljónum í kosningaauglýsingar – SA eyddu aðeins milljón

Heimir Hannesson
Miðvikudaginn 13. október 2021 11:30

Drífa Snædal er forseti ASÍ.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Alþýðusamband Íslands setti 40 milljónir króna í auglýsingar fyrir síðustu kosningar. Þetta kemur fram í svari Höllu Gunnarsdóttur, framkvæmdastjóra ASÍ við fyrirspurn Markaðarins, viðskiptablaðs Fréttablaðsins.

Þar kemur jafnframt fram að Samtök atvinnulífsins hafi aðeins sett eina milljón króna.

Í samtali við Markaðinn segir Halla það ekkert óeðlilegt að ráðstafa fjármunum sambandsins með þeim hætti, enda hafi tilgangurinn verið að kalla eftir upplýsingum frá stjórnmálaflokkum. „Maður heyrir þau sjónarmið að svona samtök ættu ekki að vera að skipta sér af kosningabaráttu en ég er persónulega ósammála því. Við í ASÍ vinnum að almannahag og mér þykir bara eðlilegt að við köllum eftir upplýsingum frá stjórnmálaflokkunum. Með því reynum við að draga fram þá þætti sem skipta launafólk máli,“ hefur Markaðurinn eftir henni.

BSRB rak einnig sína eigin kosningaherferð í aðdraganda kosninga, en neitaði að veita upplýsingar um kostnaðinn við hana þegar Markaðurinn leitaði eftir því.

Árið 2007 tóku gildi lög um fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda. Eru þar að finna ítarlegar reglur um fjárframlög til stjórnmálaflokka, til dæmis hámarks fjárhæð styrkja til einstakra frambjóðenda og stjórnmálahreyfinga. Er þar jafnframt að finna bann við nafnlausum auglýsingum.

Hins vegar eru engar reglur á Íslandi um þátttöku í pólitískri umræðu og birtingu pólitískra auglýsinga hjá öðrum en beinum þátttakendum í pólitík, þ.e. áðurnefnd lög um fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda. Víða erlendis, og þá einna helst í Bandaríkjunum, hefur verið mikil umræða um einmitt slíkt. Þar hafa frambjóðendur og stjórnmálaflokkar sett upp svokallaða „PAC“ (e. political action committee) og farið þannig fram hjá reglum um hámarksfjárframlög til einstaka frambjóðenda og upplýsingaskyldu þeirra. Samskonar reglur er að finna víða um Evrópu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Maður á sjötugsaldri í gæsluvarðhald vegna andláts konu á Akureyri

Maður á sjötugsaldri í gæsluvarðhald vegna andláts konu á Akureyri
Fréttir
Í gær

Manndrápsmálið á Suðurlandi – Hinn látni sagður hafa hringt í kærustu sína skömmu fyrir andlátið og sagst hafa fallið úr stiga

Manndrápsmálið á Suðurlandi – Hinn látni sagður hafa hringt í kærustu sína skömmu fyrir andlátið og sagst hafa fallið úr stiga
Fréttir
Í gær

Jólaskotárásin á Hvaleyrarholti – Faðirinn skýldi 9 ára dóttur sinni fyrir skothríðinni

Jólaskotárásin á Hvaleyrarholti – Faðirinn skýldi 9 ára dóttur sinni fyrir skothríðinni
Fréttir
Í gær

Íbúar brjálaðir út í Hafnarfjarðarbæ: „Þetta er til háborinnar skammar og engin lausn“

Íbúar brjálaðir út í Hafnarfjarðarbæ: „Þetta er til háborinnar skammar og engin lausn“
Fréttir
Í gær

Kristján Berg veit betur núna og biðst afsökunar: „Það verður að hlúa betur að fólki með geðræn vandamál“

Kristján Berg veit betur núna og biðst afsökunar: „Það verður að hlúa betur að fólki með geðræn vandamál“
Fréttir
Í gær

Þingmaður bendir á athyglisverða staðreynd – „Með brotabroti af útgjöldum okkar til hersins höfum við náð þessum árangri gegn Rússlandi“

Þingmaður bendir á athyglisverða staðreynd – „Með brotabroti af útgjöldum okkar til hersins höfum við náð þessum árangri gegn Rússlandi“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Harmleikurinn á Akureyri – Nágranni ber fólkinu vel söguna – „Það fer rosalega lítið fyrir þeim“

Harmleikurinn á Akureyri – Nágranni ber fólkinu vel söguna – „Það fer rosalega lítið fyrir þeim“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ásdís Rán komin með lágmarksfjölda meðmælenda – „Þetta var auðveldara fyrir hina“

Ásdís Rán komin með lágmarksfjölda meðmælenda – „Þetta var auðveldara fyrir hina“