Öll sýnin frá minkabúunum reyndust neikvæð

Öll sýnin sem tekin voru á íslensku minkabúunum reyndust neikvæð.
Öll sýnin sem tekin voru á íslensku minkabúunum reyndust neikvæð. mbl.is/Ómar Óskarsson

Sýni sem Matvælastofnun tók á öllum minkabúum landsins vegna kórónuveirunnar reyndust öll neikvæð. Var farið í sýnatökuna eftir að kórónuveirusmit kom upp á dönskum minkabúum og óttast var að það afbrigði veirunnar gæti borist í fólk. Matvælastofnun hefur jafnframt tilkynnt um hertar sóttvarnir á minkabúum.

Í tilkynningu frá Matvælastofnun kemur fram að sýni hafi verið tekið á öllum níu minkabúum landsins og þau send í greiningu á Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði á Keldum og hjá Íslenskri erfðagreiningu.

Sýnin voru tekin úr dauðum minkum sem lógað var vegna árvissrar pelsunar. Þegar pelsun lýkur á minkabúum hefur minkastofn landsins minnkað í um 15 þúsund lífdýr sem bíða fram á vorið eftir að pörun hefjist.

mbl.isMatvælastofnun hefur gert áætlun um reglubundnar sýnatökur í vetur á öllum minkabúum. Auk þess verða starfsmenn minkabúa skimaðir samkvæmt fyrirmælum sóttvarnalæknis. Þá hafa verið fyriskipaðar hertar sóttvarnaaðgerðir á minkabúum, en markmið aðgerðanna er að verja minka fyrir smiti með kórónaveirunni sem veldur COVID-19. Í þeim felast m.a. hertar kröfur um persónulegar sóttvarnir starfsmanna, flutningur lifandi minka verður óheimill og ónauðsynlegar heimsóknir í minkahús bannaðar. Einnig verður sýningahald með minka bannað og því verða minkarnir í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í Reykjavík ekki til sýnis á opnunartíma garðsins.

Þess má geta að ekki er talið að hið nýja af­brigði veirunn­ar sem kom upp í Danmörku og rakið er til minkanna er ekki talið hættu­legra mönn­um en sú teg­und nýju kór­ónu­veirunn­ar sem við þekkj­um fyr­ir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert