„Kerfisbundið og síendurtekið dýraníð“ Vésteinn Örn Pétursson skrifar 22. nóvember 2021 21:37 Myndin tengist fréttinni ekki með beinum hætti. Vísir/Vilhelm Formaður Félags hrossabænda segist telja fólk úr sínum röðum vera slegið yfir þeim myndum sem sáust í myndbandi sem birt var í morgun af slæmri meðferð mera við blóðtöku. Félag tamningamanna kallar eftir úrbótum og skorar á MAST að taka sig á í eftirliti. „
Ég segi bara, það er ástæða til. Auðvitað þarf að fara ofan í saumana á þessu og sjá hvernig almennt er staðið að þessu,“ segir Sveinn Steinarsson, formaður Félags hrossabænda. Hann segist ekki vilja trúa því að almennt sé staðið svona að málum hjá yfir 90 aðilum sem stundi hrossabúskap. „Maður vill ekki trúa því.“ Talsmenn tamningamanna hér á landi virðast vera á sama máli, en Félag tamningamanna sendi í dag frá sér yfirlýsingu vegna málsins, þar sem skorað er á MAST að bæta eftirlit með blóðtökum úr fylfullum hryssum. Þar er því sjónarmiði lýst að hryssurnar sem sjást í myndinni hafi greinilega ekki fengið undirbúning og hafi ekki geðslag sem henti í starfsemina, það er að segja blóðtökuna. Að mati félagsins sé um að ræða kerfisbundið og síendurtekið dýraníð sem sjáist í myndbandinu. „Aðalmarkmið Félags Tamningamanna er að stuðla að réttri og góðri tamningu og meðferð íslenska hestsins. Stjórn Félags Tamningamanna ályktar að við þessar vafasömu aðgerðir sé lágmarkskrafa að hryssan sé tamin og róleg. Ef hún hefur ekki fengið nauðsynlegan undirbúning eða hefur ekki geðslag til þess ætti dýralæknir að vera skyldugur að neita að framkvæma aðgerðina. Að nota deyfilyf við þessa aðgerð ætti ekki að koma í stað tamningar.“ Þá telur félagið að MAST þurfi að tryggja að viðurkenndar aðferðir við að bandvenja hryssurnar og venja þær við aðstæður verði notaðar, sem og að hætt verðir við blóðtöku ef fyrir liggur að hryssa henti ekki íverkefnið, hvort sem er vegna ónógs undirbúnings eða vegna óhentugs geðslags. „Stjórn Félags Tamningamanna álítur þessa birtingarmynd vera kerfisbundið dýraníð og ekkert betra en hryllingsmyndbönd sem hafa verið birt úr sláturhúsum víða erlendis, nema síður sé þar sem hryssurnar fara ítrekað í sömu kringumstæður.“
Dýraheilbrigði Hestar Dýr Blóðmerahald Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Innlent Einhver í herberginu segi ekki satt Innlent Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Innlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Innlent Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju Erlent Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Innlent „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Innlent Magnús Geir vill fimm ár í viðbót í Þjóðleikhúsinu Innlent Treysta sér til þess að vernda þjóðkirkjuna Innlent Fleiri fréttir Treysta sér til þess að vernda þjóðkirkjuna Magnús Geir vill fimm ár í viðbót í Þjóðleikhúsinu Telur ekki óeðlilegt að sýna mótmælendum samstöðu Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Einhver í herberginu segi ekki satt „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Vendingar í nýrri könnun og mannbjörg á ögurstundu Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Spyr hvort eðlilegt sé að ráðherrar taki þátt í erlendum mótmælum Viktor hvetur forsetaframbjóðendur til að sniðganga Stöð 2 Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Skipuð aðstoðarlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu Valdimar Hermannsson nýr sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps Bjarni ætlar að geta Katrínar í formálanum Þórey í Konukoti hlaut mannréttindaverðlaun Reykjavíkur Nafnið Hroði of hroðalegt Fékk sting í hjartað þegar hann sá nafnið á bátnum Um 920 mál óafgreidd hjá kærunefnd útlendingamála Færa almannavarnastig niður á óvissustig vegna vatnslagnarinnar Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Vísbending um að flutningaskip hafi hvolft bátnum Skikkar lögreglu til að rannsaka stjórn aðventista Sjóslys, Þórkatla og framtíð Play Kvikusöfnunin áfram stöðug Tóku niður íslenska svikasíðu með FBI Hafna tilboðum í áætlunarflug milli Reykjavíkur og Hornafjarðar Sjá meira