Vignir og Embla unnu Heiðmerkurhlaupið

Sigurvegarar dagsins í Heiðmerkurhlaupinu.
Sigurvegarar dagsins í Heiðmerkurhlaupinu. Ljósmynd/Skógræktarfélag Reykjavíkur

Skógræktarfélag Reykjavíkur hélt í dag Heiðmerkurhlaupið í þriðja sinn. Tæplega 200 manns tóku þátt í hlaupinu.

Sigurvegari í 12 km hlaupi um Ríkishringinn í karlaflokki var Vignir Már Lýðsson á 47:30, annar var Stefán Pálsson á 48.44 og þriðji var Ólafur Thorlacius Árnason á 54.07.

Í kvennaflokki kom Embla Margrét Hreimsdóttir fyrst í mark á tímanum 56.08, önnur var Guðrún Sigurðardóttir 1:02.01 og þriðja var Sylvi Thorstenson á 1:02:15.

Með Heiðmerkurhlaupinu er fastagestum og nýjum áhugahlaupurum boðið að kynnast stígakerfinu og njóta þess að hlaupa í faðmi skógarins. Á svæðinu var sannkölluð skógarstemmning þar sem boðið var upp á kaffi & kakó yfir varðeldi.

Tvær hlaupavegalengdir voru í boði; Ríkishringurinn sem er 12 km og Guli hringurinn sem er 4 km skemmtiskokk.

„Leiðirnar eru fallegar, fjölbreyttar og skjólgóðar og liggja um hjarta  friðlandsins í Heiðmörk. Vinsældir utanvegahlaupa hafa vaxið mjög undanfarin ár og sífellt fleiri velja að hlaupa á stígum í Heiðmörk,“ sagði meðal annars í tilkynningu frá Skógræktarfélagi Reykjavíkur.

Í 4 km hlaupinu um Gula hringinn ríkti sannkölluð fjölskyldustemmning og ungir upprennandi hlauparar fæddir á aldrinum 9-14 ára röðuðu sér í þrjú efstu sætin.

Aukinn styrkur og betri árangur

Heitið „Ríkishringur“ á 12 kílómetra hlaupaleið í hjarta Heiðmerkur, er frá árunum 2009-2010. Hlaupahringurinn nýtur sífellt meiri vinsælda en margir hafa velt fyrir sér hvaðan þetta sérstaka nafn er komið.

Allt bendir til að það orðið til á árunum 2009-2010 í hlaupahópnum „Afrekshópurinn“ sem Daníel Smári Guðmundsson stofnaði 2009.

„Þegar ég stofnaði Afrekshópinn 2009 fór ég að hafa reglulegar æfingar í Heiðmörkinni og lét félagana hlaupa þann hring sem ég hafði hlaupið reglulega síðan 1993 eða þegar ég fór sjálfur að æfa fyrir maraþonhlaup.

Ég veit ekki hvernig á að útskýra það en það var vælt því hringurinn var erfiður fyrir suma. Þannig að ég setti það upp bæði í gamni og alvöru að ef þú ætlaðir að ná árangri í hlaupum væri skylda að hlaupa þennan hring til að fá styrk og þol í fæturna og að auka andlegan styrk.

Væri bara lög, skylda með samlíkingu við lög og reglur samfélagsins og ríkisins. Virkaði svona flott og allir fóru að æfa og hlaupa ríkishringinn. Síðan versnaði nú dæmið þegar ég lét mitt fólk hlaupa hringinn rangsælis sem var miklu erfiðara.

Í dag eru allir að hlaupa þennan hring sem fáir þekktu áður, sem er frábært og að mínu mati er Ríkishringurinn frábært nafn í alvöru og djóki á frábærum þjálfunarhring,“ sagði Daníel Smári í tilkynningunni.

Reglulegar æfingar á ríkishringnum eða öðrum svipuðum leiðum skila auk þess betri árangri að mati Daníels Smára.

Hann gerði óvísindalega könnun „á hlaupum í Heiðmörkinni hjá okkur sem vorum landsliðsmenn í langhlaupum á árunum 1996-1999 að þeir sem hlupu reglulega einu sinni í viku Ríkishringinn héldu meiri styrk út keppnistímabiið og náðu betri árangri í maí - ágúst heldur en hinir sem bara hlupu á malbikinu og tartaninu.“

Daníel Smári benti einnig á að „Hill Running“ sé ein þeirra æfinga sem hafi verið í hlaupaprógrammi bestu hlaupara heims hér áður fyrr. Æfingarnar eigi meðal annars að auka styrk, minnka líkur á álagsmeyðslum ef mikið er æft á götunni, auka fjölbreytni, bæta hlaupastíl og auka andlegan styrk.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert