„Það er ekki hægt að íslensk móðir sýni dóttur sinni ekki eldgos“ Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 8. apríl 2021 17:49 Svava, Brian og Rannveig gengu að eldgosinu í dag. Það er fyrsta skiptið sem Brian og Rannveig berja eldgos augum. Vísir/Egill Stríður straumur fólks hefur verið að gosstöðvunum í Geldingadölum í dag og eru margir að berja eldgos augum í fyrsta sinn á æfinni. Veðrið í dag hefur líklega ekki skemmt fyrir enda sólríkt þó kuldinn sé mikill og rok á svæðinu. „
Þetta var stórkostlegt en það var mjög kalt,“ segir Rannveig Marta Sarc þegar fréttamann bar að garði. „Og mikill vindur.“ Rannveig kom til landsins fyrir rúmri viku ásamt kærasta sínum, Brian Hong, en þau komu hingað alla leið frá Chicago. „Það eru engin eldfjöll þar,“ segir Brian og hlær. Hann segir að sjónarspilið hafi verið stórfenglegt. „Það vall svo mikið hraun úr sprungunum. Við komumst ekki svo nálægt í dag vegna gassins og öryggisreglna en þetta var alveg stórkostlegt,“ segir Brian. Hann segir að gangan hafi tekið nokkuð á. „Á leiðinni niður hélt ég stundum að ég gæti dáið en við lifðum þetta af,“ segir Brian og hlær. Fékk að sjá Heklu gjósa árið 1970 Þetta er annað skiptið sem Brian heimsækir Ísland. Móðir Rannveigar, Svava Bernharðsdóttir, segir ekki annað hafa verið hægt en að sýna unga fólkinu eldgosið. „Dóttir mín og tengdasonur komu til landsins og ég var með mikinn móral yfir því að hafa aldrei sýnt henni eldgos. Það er ekki hægt að íslensk móðir sýni dóttur sinni ekki eldgos. En núna get ég hakað við það, nú er ég útskrifuð, nú getur hún farið að heiman,“ segir Svava. Þetta er ekki fyrsta skiptið sem Svava ber eldgos augum en hún var búsett austur á Skeiðum þegar Hekla gaus árið 1970. „Við sáum það bara út um stofugluggann. Reyndar var ég að horfa á sjónvarpið þegar Eiður Guðnason fréttamaður stöðvaði útsendinguna, fölur í framan, og sagði að Hekla væri byrjuð að gjósa,“ segir Svava. „Við flugum út í stofu og horfðum á. Við fórum svo næsta dag alveg upp að hrauninu, það var ógleymanlegt. Nú fengu þau allan pakkann, eld og ís, Ísland í hnotskurn,“ segir Svava.
Eldgos í Fagradalsfjalli Eldgos og jarðhræringar Tengdar fréttir Sprunga númer tvö bjargaði tjaldinu frá bráðum dauða Fyrsta nýja sprungan sem myndaðist á annan í páskum í Fagradalsfjalli til viðbótar við upphaflega gíginn má segja að hafi verið lán í óláni fyrir björgunarsveitir á svæðinu, sem ákváðu vegna hennar að færa tjaldið sem komið hafði verið upp á svæðinu. 8. apríl 2021 14:27 Hraunbreiðurnar úr gosunum þremur ná nú saman „Það er ennþá gos,“ segir Bryndís Ýr Gísladóttir, náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, nú í morgunsárið en fátt annað sé að frétta af gosstöðvunum. 8. apríl 2021 06:20 Auðveldari gönguleið stikuð að gosinu framhjá kaðlinum Aðalgönguleiðinni að eldgosinu í Fagradalsfjalli, svokallaðri A-leið, hefur verið breytt þannig að ekki þarf lengur að notast við kaðal í bröttustu brekkunni. Jafnframt er búið að lengja stikuðu leiðina svo hún nái að nýju gígunum, sem opnuðust síðastliðna nótt. 7. apríl 2021 23:37 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Nöfn þeirra sem létust í Eyjafirði Innlent Apple biðst afsökunar á auglýsingu fyrir nýjan iPad Erlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Krefjast þess að HÍ beiti sér með sama hætti gegn Ísrael og Rússlandi Innlent Flóttamannastofnun SÞ gerir athugasemdir við útlendingafrumvarpið Innlent Makar mætast í Pallborðinu Innlent Laus úr haldi en enn grunaður um græsku Innlent Segja lögregluþjón hafa bankað á rangar dyr og skotið ungan mann Erlent Raðrúðubrjóturinn enn á ferð í miðborginni Innlent Stöðugt landris og hugað að rýmingu Innlent Fleiri fréttir Óska eftir frekara gæsluvarðhaldi Skjálftahrina og skyndilegt brotthvarf þjálfara Raðrúðubrjóturinn enn á ferð í miðborginni Makar mætast í Pallborðinu Mögulegt strok á laxi úr landeldi Laus úr haldi en enn grunaður um græsku Opna Laugardalslaug á ný Nöfn þeirra sem létust í Eyjafirði Flóttamannastofnun SÞ gerir athugasemdir við útlendingafrumvarpið Krefjast þess að HÍ beiti sér með sama hætti gegn Ísrael og Rússlandi Tveir fluttir á Landspítala eftir árekstur á mótorkrossbrautinni í Mosfellsbæ Skjálftavirkni aukist í kjölfar gosloka Stöðugt landris og hugað að rýmingu Ræktar 95 tegundir af túlípönum í Mosfellsdal Dýrin séu dauð, veik, horuð og í miklum vanhöldum Ríkisstjórn þurfi að gera meira í þágu vopnahlés Dauð lömb á túni, árás á Rafah og Eurovision Maður sem áreitir börn í Hafnarfirði til rannsóknar Sýknaður af nauðgun en enginn vafi að konan telji á sér brotið Fylgi Höllu hrundi eftir kappræðurnar á RÚV Sinubruni við Hellisskóg á Selfossi 150 þolendum sinnt vegna ofbeldis í nánu sambandi Meintur fjárdráttur mikið áfall fyrir starfsfólk skólans Stóra Svört bar fimm svörtum lömbum Eldgosinu lokið, meintur fjárdráttur og manndrápsrannsókn Eldvörp líkleg næst Rannsókn vegna meints manndráps í Kiðjabergi miðar vel Samanburður við lóðamál olíufélaganna eins „fjarri sannleikanum og hægt er“ Guðríður Hrund skipuð skólameistari MK Eldgosinu lokið eftir 54 daga Sjá meira
Sprunga númer tvö bjargaði tjaldinu frá bráðum dauða Fyrsta nýja sprungan sem myndaðist á annan í páskum í Fagradalsfjalli til viðbótar við upphaflega gíginn má segja að hafi verið lán í óláni fyrir björgunarsveitir á svæðinu, sem ákváðu vegna hennar að færa tjaldið sem komið hafði verið upp á svæðinu. 8. apríl 2021 14:27
Hraunbreiðurnar úr gosunum þremur ná nú saman „Það er ennþá gos,“ segir Bryndís Ýr Gísladóttir, náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, nú í morgunsárið en fátt annað sé að frétta af gosstöðvunum. 8. apríl 2021 06:20
Auðveldari gönguleið stikuð að gosinu framhjá kaðlinum Aðalgönguleiðinni að eldgosinu í Fagradalsfjalli, svokallaðri A-leið, hefur verið breytt þannig að ekki þarf lengur að notast við kaðal í bröttustu brekkunni. Jafnframt er búið að lengja stikuðu leiðina svo hún nái að nýju gígunum, sem opnuðust síðastliðna nótt. 7. apríl 2021 23:37