Hringurinn þrengist: Fingraför krónprinsins á vélunum sem fluttu morðingjana Hólmfríður Gísladóttir skrifar 24. febrúar 2021 23:33 Bandaríska leyniþjónustan og rannsakandi Sameinuðu þjóðanna segja nær víst að krónprinsinn hafi átt hlut að máli. epa Tvær einkaþotur sem morðingjar blaðamannsins Jamal Khashoggi notuðu til að komast aftur til Riyadh voru í eigu félags sem Mohammed bin Salman, krónprins Sádi Arabíu, yfirtók aðeins ári áður.
Þetta kemur fram í leynilegum skjölum sem voru lögð fram í tengslum við dómsmál í Kanada en þau þykja renna stöðum undir þá kenningu að krónprinsinn, jafnan kallaður MBS, hafi fyrirskipað morðið á blaðamanninum, sem var afar gagnrýninn á stjórnvöld. Það er ráðherra í ríkisstjórn Sádi Arabíu sem skrifar undir pappírana, þar sem hann biðlar til ónefnds aðila að gera nauðsynlegar ráðstafanir að fyrirmælum krónprinsins. Samkvæmt skjölunum vildi MBS taka yfir Sky Prime Aviation, með því að láta flytja eignarhald fyrirtækisins undir fjárfestingasjóð ríkisins síðla árs 2017. Eins og fyrr segir voru tvær vélar félagsins notaðar til að flytja morðingja Khashoggi heim í október 2018. Khashoggi, sem meðal annars starfaði fyrir Washington Post, er sagður hafa verið pyntaður og limlestur af morðingjum sínum.epa/Erdem Sahin Birta mögulega skýrslu um morðið á morgun Umræddur fjárfestingasjóður er metinn á um 400 milljarða dala en stjórnarformaður hans er krónprinsinn sjálfur. Fyrrnefnd gögn voru lögð fram af félögum í eigu sádiarabíska ríkisins í spillingarmáli gegn háttsettum embættismanni innan leyniþjónustunnar, Saad Aljabri. Félögin höfðuðu málið á hendur Aljabri eftir að hann sakaði krónprinsinn um að hafa sent aftökusveit til að myrða sig í Kanada, aðeins nokkrum dögum eftir að Khashoggi var ráðinn af dögum. MBS hefur neitað því að hafa fyrirskipað morðið en sagst vera ábyrgur að hluta. Átta menn voru fangelsaðir í tengslum við morðið á blaðamanninum en sérlegur rannsakandi Sameinuðu þjóðanna sagði réttarhöldin og dómana hlægilega. Bandarísk yfirvöld hyggjast birta skýrslu um morðið á næstu dögum, mögulega strax á morgun, en bandaríska leyniþjónustan CIA komst að þeirri niðurstöðu að krónprinsinn hefði að öllum líkindum fyrirskipað morðið. Þá sagði rannsakandi Sameinuðu þjóðanna óhugsandi að MBS hefði ekki vitað af aftökunni. Fjölmiðlafulltrúi Joe Biden sagði í síðustu viku að forsetinn hygðist „endurskoða“ samskipti Bandaríkjanna og Sádi Arabíu og eiga í samskiptum við konunginn Salman bin Abdulaziz Al-Saud í stað sonar hans. Bandaríkjaforseti er sagður ætla að sniðganga krónprinsinn og eiga samskipti við konunginn.epa/Toru Hanai Stoppuðu stutt, fluttu böðlana heim CNN hefur eftir lögmanni unnustu Khashoggi að uppljóstanirnar um flugvélarnar hafi komið henni ánægjulega á óvart. Hún hefur barist ötullega fyrir réttlæti til handa ástinni sinni. Vélar Sky Prime Aviaton flugu með stærstan hluta hinar fimmtán manna aftökusveitar til og frá Istanbul, þar sem Khashoggi var myrtur. Eftir að þeir höfðu lokið verki sínu lá leiðin beint út á flugvöll. Önnur vélin, með númerið HZ-SK1, lenti seinni part dags og var komin aftur í loftið rúmri klukkustund síðar með sex sveitarmenn innanborðs. Fjórum og hálfum klukkutímum síðar tók hin vélin á loft, undir númerinu HZ-SK2, með sjö sveitarmenn innanborðs. Fyrri vélin flaug til Riyadh með viðkomu í Kaíró en hin millilenti í Dubai. Tveir ferðuðust á almennu farrými frá Istanbul og heim. Samkvæmt skjölunum var Sky Prime Aviation ekki eina félagið sem flutt var undir fjárfestingasjóð sádiarabísku konungsfjölskyldunnar en þau voru nítján talsins. Krónprinsinn var svo áhugasamur um yfirtökuna að hann bað sérstaklega um að vera upplýstur um gang mála, samkvæmt ráðherranum sem skrifaði undir pappírana. CNN fjallar ítarlega um málið.
Morðið á Khashoggi Tyrkland Sádi-Arabía Bandaríkin Kanada Fjölmiðlar Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Íslendingur á meðal farþega í flugvélinni Erlent „Forsetaframbjóðandi er á villigötum“ Innlent Kviknaði í hverju fjórhjólinu á fætur öðru Innlent „Ber þess merki að eitthvað sé mjög nálægt því að bresta“ Innlent Líst best á Baldur og Höllu en verst á Ástþór Innlent Ástæða fyrir því að spenna beltin í flugi Innlent „Sjálfum leiðast mér þessar nasistalíkingar“ Innlent Íbúar undirbúa hópmálsókn vegna uppkaupa í Grindavík Innlent OpenAI hættir notkun raddar eftir inngrip lögmanna Johansson Erlent Einn látinn eftir mikla ókyrrð í lofti Erlent Fleiri fréttir Kanna hvar Perry fékk ketamínið Æfa notkun „taktískra“ kjarnorkuvopna Íslendingur á meðal farþega í flugvélinni Þurfa ekki að rannsaka eiturtilræði við rússneskan andófsmann Vitnaleiðslum lokið án framburðar Trump Yfirvöld ábyrg fyrir dauða þúsunda einstaklinga sökum mengaðs blóðs Einn látinn eftir mikla ókyrrð í lofti Aldraður eðlisfræðingur sendur í gúlagið fyrir landráð „Stöðvið stuldinn“-fáni á lóð dómara eftir árásina á þinghúsið Mynd fer á flug í kjölfar tilrauna til að láta fjarlægja hana Biden segir Ísraela saklausa af ásökunum um þjóðarmorð Réttað yfir Hinrik XIII og öðrum leiðtogum valdaránstilraunar OpenAI hættir notkun raddar eftir inngrip lögmanna Johansson Fengu ekkert merki frá þyrlunni sem hrapaði með forsetann um borð Netanjahú hafnar handtökuskipuninni Spánverjar kalla sendiherrann heim í kjölfar ummæla Milei Sigur fyrir Assange sem fær að áfrýja framsali Saksóknari Alþjóðlega sakamáladómstólsins vill handtaka Netanjahú og Hamas-liða Komst loks út í geim sextíu árum síðar Íransforseti fórst í þyrluslysinu Leitin enn ekki borið árangur Tveir látnir og fimm saknað eftir slys í Dóná Diddy biðst afsökunar á „ófyrirgefanlegri hegðun“ Óljóst hvort þyrlan sé fundin Íranski forsetinn í óljósu þyrluslysi Færeyingar draga í land með ferðamannaskatt Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Ástand Fico enn alvarlegt Býst við aukinni sókn Rússa Sjá meira