Þjóðverjinn Serge Gnabry missir af Evrópumótinu í fótbolta sem fram fer þarlendis í sumar.
Gnabry, sem leikur með Bayern München, fór meiddur af velli í fyrri hálfleik er Bæjarar duttu út fyrir Real Madrid í undanúrslitum Meistaradeildarinnar á miðvikudaginn var.
Þýskaland er í riðli með Ungverjum, Skotum og Svisslendingum.