Forgangur Strætó á gatnamótum eina svarið við mögulegum áhrifum Kristín Ólafsdóttir skrifar 15. apríl 2021 12:46 Strætó velti því upp í umsögn við boðaða lækkun hámarkshraða hvort hún gæti haft neikvæð áhrif á rekstrarkostnað. Vísir/vilhelm Verið er að greina hvort boðuð lækkun hámarkshraða á götum í Reykjavík hafi neikvæð áhrif á ferðatíma og rekstrarkostnað Strætó. Eina mótvægisaðgerðin við mögulegum áhrifum væri þó forgangur strætisvagna á umferðarljósum, að sögn framkvæmdastjóra.
Hámarkshraði á götum í eigu borgarinnar verður hvergi yfir fimmtíu kílómetrum á klukkustund samkvæmt nýsamþykktri áætlun borgarinnar. Stefnan er að inni í hverfum verði hámarkshraði 30 en 40 á stofnæðum. Jóhannes Svavar Rúnarsson framkvæmdastjóri Strætó segir að uppi hafi verið áhyggjur um að lækkunin gæti haft neikvæð áhrif á ferðatíma og rekstrarkostnað Strætó. „Það felst þá í því að leiðirnar eru skipulagðar þannig að við reynum að nýta vagnana sem best. Þar af leiðandi ef meðalhraðinn lækkar nær sá vagnafjöldi sem er notaður í dag ekki til að keyra leiðina og þá þyrfti að bæta við vögnum.“ Jóhannes Rúnarsson, framkvæmdastjóri Strætó.Mynd/Strætó Bent er á það í svari Reykjavíkurborgar við umsögn Strætó um hraðalækkunina að aksturshraði strætisvagna nái oft ekki núverandi hámarkshraða, til dæmis vegna umferðarljósa, biðstöðva, gatnamóta og annarrar umferðar. Greining á mögulegum áhrifum, sem ættu þó samkvæmt fyrstu niðurstöðum að vera óveruleg, stendur nú yfir. „Eina mótvægisaðgerðin til þess að þá allavega lágmarka algjörlega þessi áhrif ef einhver eru er náttúrulega bara að Strætó fái forgang á umferðarljósum. Við höfum séð það í gegnum tíðina í okkar gögnum að mestu stoppin eru í kringum gatnamót og ef við getum minnkað þau hef ég ekkert verulegar áhyggjur af þessu,“ segir Jóhannes. Jóhannes kveðst sjálfur jákvæður gagnvart boðuðum breytingum en þær þurfi að ígrunda vel. „Rökin eru allavega mjög skýr og það vita það svosem flestir að minni meðalhraði hefur góð áhrif á öryggi annarra í umferðinni. Þannig að út frá því er þetta hið besta mál en það þarf auðvitað að skoða allar hliðar teningsins.“
Umferðaröryggi Skipulag Reykjavík Borgarstjórn Strætó Tengdar fréttir Eyþór um lækkun hámarkshraða: „Umferðin getur hreinlega leitað frekar inn í íbúðabyggð“ Eyþóri Arnalds, oddvita Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, hugnast ekki áform meirihlutans um að hámarkshraði á mörgum af helstu samgönguæðum borgarinnar verði lækkaður. Hann telur að lækkun hámarkshraða muni tefja fyrir almenningssamgöngum auk þess sem það geti skapað hættu á aukinni umferð um íbúðagötur. 14. apríl 2021 21:11 Lífi og heilsu verður ekki fórnað fyrir minni umferðartafir Hámarkshraði á götum í eigu borgarinnar verður hvergi yfir fimmtíu kílómetrum á klukkustund samkvæmt nýsamþykktri áætlun borgarinnar. Formaður skipulags- og samgönguráðs segir öryggi ganga framar mögulegum umferðartöfum. 14. apríl 2021 18:41 Hámarkshraði verði hvergi yfir 50 km/klst á borgargötum Dregið verður úr umferðarhraða á götum í eigu Reykjavíkurborgar og verður hámarkshraði hvergi yfir 50 km/klst samkvæmt tillögu að hámarkshraðaáætlun sem var samþykkt í skipulags- og samgönguráði borgarinnar í dag. Stefnt er að því að enginn slasist alvarlega eða látist í umferðarslysum í borginni. 14. apríl 2021 15:10 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Vitni gefur ekki upp nafn vegna ótta við hefndaraðgerðir Innlent Þurftu að farga 30 þúsund eintökum vegna forsetaframboðs Innlent „Heill vinnustaður er dreginn sundur og saman í háði“ Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Megrunarlyfin nýjasta vopnið gegn hjartasjúkdómum? Erlent Sáu ekki andlit huldumanns sem þeir telja vera Pétur Jökul Innlent Álftin breyttist í dreka og rak hundinn upp úr með látum Innlent Umgengni og viðhorf til fatagáma hafi farið hríðversnandi Innlent Losnar af réttargeðdeild eftir allt saman Erlent Fjórum nígerískum ríkisborgurum flogið til Frankfurt Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Sigurði Fannari „Við lögleiðum heróínið en bönnum áfengið. Þetta er galið“ Koma á fót framkvæmdanefnd um málefni Grindavíkur Vonleysi veðmálanna og eiginmanni vísað úr landi Álftin breyttist í dreka og rak hundinn upp úr með látum Sóttu veikan mann á skemmtiferðaskip umkringt hafís Settur forstjóri skipaður forstjóri „Heill vinnustaður er dreginn sundur og saman í háði“ Breyttar forsendur kalli á nýjan unglingaskóla í Laugardal Ævintýralandið Ísland séð úr háloftunum Dæmdir fyrir ofbeldishrinu Hefur áhyggjur af nýfæddum lömbum á Höfða Uppflettingar í sjúkraskrá: Segir málinu alls ekki lokið Ítrekar afsökunarbeiðni til vöggustofubarna og fjölskyldna þeirra Helmingi dræmari kjörsókn nú en í síðustu forsetakosningum Fulltrúar Stígamóta reyna að tryggja öryggi kvennanna í Nígeríu Heimsótti Julian Assange í Belmarsh-öryggisfangelsið Brottvísun hælisleitenda og dræm þátttaka í utankjörfundi Bein útsending: Má ég taka þátt... í lífinu? Vitni gefur ekki upp nafn vegna ótta við hefndaraðgerðir Beint streymi: Uppfinningar og einkaleyfi Landris heldur áfram á sama hraða Þurftu að farga 30 þúsund eintökum vegna forsetaframboðs Friðlýsir hluta Fjaðrárgljúfurs Fjórum nígerískum ríkisborgurum flogið til Frankfurt Nær einróma ánægja en spurningum ósvarað um þjóðleikhússtjóra Fækka þeim tilvikum þar sem skrifa þarf tilvísanir fyrir börn Stefnt að því að ljúka samningaviðræðum um Ölfusárbrú nú í maí Umgengni og viðhorf til fatagáma hafi farið hríðversnandi „Erum hér í kvöld svo þetta gerist ekki í þögn“ Sjá meira
Eyþór um lækkun hámarkshraða: „Umferðin getur hreinlega leitað frekar inn í íbúðabyggð“ Eyþóri Arnalds, oddvita Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, hugnast ekki áform meirihlutans um að hámarkshraði á mörgum af helstu samgönguæðum borgarinnar verði lækkaður. Hann telur að lækkun hámarkshraða muni tefja fyrir almenningssamgöngum auk þess sem það geti skapað hættu á aukinni umferð um íbúðagötur. 14. apríl 2021 21:11
Lífi og heilsu verður ekki fórnað fyrir minni umferðartafir Hámarkshraði á götum í eigu borgarinnar verður hvergi yfir fimmtíu kílómetrum á klukkustund samkvæmt nýsamþykktri áætlun borgarinnar. Formaður skipulags- og samgönguráðs segir öryggi ganga framar mögulegum umferðartöfum. 14. apríl 2021 18:41
Hámarkshraði verði hvergi yfir 50 km/klst á borgargötum Dregið verður úr umferðarhraða á götum í eigu Reykjavíkurborgar og verður hámarkshraði hvergi yfir 50 km/klst samkvæmt tillögu að hámarkshraðaáætlun sem var samþykkt í skipulags- og samgönguráði borgarinnar í dag. Stefnt er að því að enginn slasist alvarlega eða látist í umferðarslysum í borginni. 14. apríl 2021 15:10