Segir Hannes okkar besta markvörð frá upphafi og vill halda honum í landsliðinu Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 19. nóvember 2020 12:30 Hannes Þór Halldórsson lék sinn 74. landsleik þegar Ísland tapaði fyrir Englandi í gær, 4-0. vísir/hulda margrét
Bjarni Guðjónsson segir engan vafa leika á því að Hannes Þór Halldórsson sé besti markvörður sem íslenska fótboltalandsliðið hefur átt. Hann vill að hann haldi áfram í landsliðinu, þótt hlutverk hans verði kannski annað en það hefur verið. Hannes lék seinni hálfleikinn í 4-0 tapinu fyrir Englandi í gær og jafnaði þar með met Birkis Kristinssonar sem leikjahæsti markvörður íslenska landsliðsins frá upphafi. Leiddar voru líkur að því að þetta væri hans síðasti landsleikur en hann vildi ekki staðfesta það eftir leikinn og sagði að framhaldið væri óljóst. „Leikjafjöldinn sem slíkur finnst mér ekki skipta máli í afrekum þessa manna, heldur hvað þeir hafa gert inni á vellinum. Þeir hafa komið okkur á tvö stórmót. Þetta eru okkar bestu leikmenn og hafa myndað okkar bestu landslið. Á því leikur ekki nokkur vafi. En hjá okkur öllum kemur að því að við þurfum að hætta. Það verður aldrei tekið af þessum strákum hversu mikið þeir hafa afrekað og gert fyrir okkur,“ sagði Bjarni eftir leikinn gegn Englandi í gær. „Hannes er svo ofboðslega stór hluti af þessu liði. Hann er besti markvörður íslenska landsliðsins frá upphafi. Ég held að það sé ekki neinum blöðum um það að fletta. Þótt við höfum átt marga ágæta markverði er Hannes okkar besti markvörður.“ Ekki er víst hvort Hannes haldi áfram með landsliðinu en Bjarni vill halda honum í íslenska hópnum. „Persónulega teldi ég farsælast að Hannes héldi áfram með íslenska landsliðinu, kannski í öðru hlutverki en hann hefur verið í undanfarin ár. Ég þekki Hannes ágætlega og hvernig karakter hann er og vinnusemin sem hann sýnir getur nýst þessu liði áfram. Það væri ómetanlegt fyrir leikmann eins og Rúnar Alex [Rúnarsson] og hugsanlega annan ungan markvörð að hafa Hannes við hlið sér,“ sagði Bjarni. Allir markverðirnir í íslenska hópnum fengu að spreyta sig í þessari landsleikjahrinu. Hannes lék gegn Ungverjalandi og seinni hálfleikinn gegn Englandi, Rúnar Alex gegn Danmörku og Ögmundur Kristinsson fyrri hálfleikinn gegn Englandi. Klippa: Umræða um Hannes
Þjóðadeild UEFA Mest lesið Hulunni svipt af nýrri treyju íslenska landsliðsins Fótbolti „Bjóst ekki við að þetta myndi enda svona“ Fótbolti Danirnir ánægðir með Guðmund: „Enginn að kvarta yfir þessu hér“ Handbolti Menn fái sér páskaegg númer tvö en ekki tíu Handbolti „Ég er tilbúinn“ Fótbolti Viktor Gísli sagður á leið til Barcelona Handbolti Segir von á mikilvægum tilboðum í Albert Fótbolti Dagskráin í dag: Grannaslagur og körfuboltaveisla Sport Ætlar að kynna ensku úrvalsdeildina fyrir sundlaug í stúkunni Enski boltinn Djokovic segir þjálfaranum upp Sport Fleiri fréttir Segir von á mikilvægum tilboðum í Albert Ákærður og horfir fram á fangelsisdóm fyrir kossinn óumbeðna Ætlar að kynna ensku úrvalsdeildina fyrir sundlaug í stúkunni Hulunni svipt af nýrri treyju íslenska landsliðsins „Ég er tilbúinn“ „Bjóst ekki við að þetta myndi enda svona“ „Flottur sigur og heilt yfir fín frammistaða“ Fimmtu undanúrslitin á sjö árum Umfjöllun: Breiðablik - ÍA 4-1 | Blikar unnu Lengjubikarinn með sigri gegn Skaganum Lyon nokkuð örugglega í undanúrslit Grindvíkingar leggja niður yngri flokka Rasmus til Eyja Messi: Ég hætti þegar ég get ekki lengur hjálpað mínum liðsfélögum Skagamenn geta unnið fyrsta titil sinn í meira en tvo áratugi Meiðslavandræði á Man. City fyrir stórleikinn á móti Arsenal Sigurinn á Íslandi var „gjöf til úkraínsku þjóðarinnar“ Man. United sagt vilja fá stjóra Úlfanna í þjálfarateymið sitt Albert átti ekki bara eitt heldur tvö af flottustu mörkum umspilsins Haaland baðst afsökunar eftir leik Myndasyrpa frá tapinu grátlega gegn Úkraínu Þór/KA sækir markvörð til Bandaríkjanna Pólland síðasta þjóðin inn á EM „Mér finnst ég hafa nóg fram að bjóða í þessu liði“ Åge Hareide: Framtíðin er björt „Vorum svo ógeðslega nálægt þessu“ „Hann var alltaf mættur“ Einkunnir Íslands: Albert og Hákon bestir í grátlegu tapi „Vorum grátlega nálægt þessu“ Umfjöllun: Úkraína - Ísland 2-1 | EM-draumurinn úti „Eins og gæi sem var með vesen á Astró svona 2002“ Sjá meira