Ætla að sitja við sinn keip Eiður Þór Árnason skrifar 12. janúar 2022 17:39 Lögreglan mun áfram birta færslur og myndir á Facebook. Vísir/Vilhelm Lögreglustjórinn á Suðurnesjum tilkynnti í gær til stæði að loka Facebook-síðu embættisins með vísan til persónuverndarsjónarmiða. Um sólarhring síðar er síðan orðinn óaðgengileg almenningi og tíu ár af Facebook-færslum á bak og burt. Engin önnur lögregluembætti hafa tekið ákvörðun um að feta í fótspor Suðurnesjamanna.
Í rökstuðningi lögreglunnar á Suðurnesjum var vísað til athugasemda sem Persónuvernd gerði á seinasta ári við samfélagsmiðlanotkun lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Niðurstaða Persónuverndar sneri einkum að móttöku upplýsinga frá almenningi í gegnum miðilinn. Vinnsla lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu á persónuupplýsingum, þar sem óskað var eftir upplýsingum og ábendingum frá almenningi í gegnum einkaskilaboð á Facebook, vegna atvika sem kunnu að varða við lög og/eða vörðuðu tiltekna einstaklinga sem birt var mynd af, var sögð ekki samrýmst lögum um vinnslu persónuupplýsinga í löggæslutilgangi. Um var að ræða frumkvæðisathugun vegna færslu þar sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskaði eftir upplýsingum frá almenningi í gegnum einkaskilaboð Facebook. Þær upplýsingar tengdust glæp sem hafði verið framinn. Lögreglan á Suðurlandi tekur ákvörðun á næstunni Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu tilkynnti í gær að embættið ætli ekki að hætta á Facebook þrátt fyrir niðurstöðu Persónuverndar. Þess í stað hafi verið ákveðið að hætta að óska eftir upplýsingum frá almenningi í gegnum einkaskilaboð á samfélagsmiðlinum. Sú athugasemd Persónuverndar byggði á því að upplýsingar og gögn sem lögreglan fengi í gegnum Facebook endaði í höndum erlenda stórfyrirtækisins. Í morgun var svo greint frá því að lögreglan á Suðurlandi lægi undir feldi og hefði ekki tekið ákvörðun um framtíð Facebook-síðu sinnar. Oddur Árnason yfirlögregluþjónn á Suðurlandi sagði að málið yrði rætt á næsta fundi yfirstjórnar og niðurstöðu að vænta eftir þann fund. „Það er alveg ljóst er að almenn upplýsingagjöf í gegn um samfélagsmiðla er mjög árangursrík en skoða þarf hvert tilvik fyrir sig í þeim efnum og einnig þarf að gæta að því að sá farvegur sem er fyrir almenning til að koma upplýsingum til lögreglu sé í samræmi við gildandi lagaumhverfi hverju sinni,“ bætti Oddur við. Vel hægt að starfrækja síður innan takmarkananna Vísir leitaði svara hjá lögreglustjórum á Austurlandi, Norðurlandi eystra, Norðurlandi vestra, Vestfjörðum, Vesturlandi, og í Vestmannaeyjum. Þeir voru einróma um það að þeirra embætti ætluðu að halda áfram að miðla upplýsingum til almennings í gegnum Facebook. Minntust margir á það að miðilinn væri mjög góð leið til að koma tilkynningum hratt til fólks, þar sem stærstur hluti Íslendinga noti Facebook og fjölmargir fylgist með síðum lögreglunnar. Birgir Jónasson, lögreglustjóri á Norðurlandi vestra, segir að það hafi ekki verið til skoðunar að loka Facebook-síður embættisins. „Þetta álit persónuverndar laut að því að það var verið að tilkynna um refsiverða háttsemi sem eru viðkvæmar upplýsingar og við höfum ekki verið að nota Facebook þannig að upplýsingar séu persónugreinanlegar. Við höfum fyrst og fremst notað þetta bara sem samfélagsmiðil til að miðla a upplýsingum til almennings og við hyggjumst gera það áfram.“ Birgir Jónasson, lögreglustjóri á Norðurlandi vestra.Vísir/Vilhelm/Stjórnarráðið Telur Birgir vera reginmun á því hvort miðilinn sé notaður til að miðla almennum upplýsingum til almennings eða hugsanlega persónugreinanlegum upplýsingum vegna refsiverðrar háttsemi. „Því þeim upplýsingum höfum við ekki stjórn á þegar varðar Facebook, þær eru vistaðar einhvers staðar allt annars staðar. Þetta er ekki áhyggjuefni hér og við ætlum bara að sitja við okkar keip og halda áfram að nota Facebook með þessum hætti.“
Samfélagsmiðlar Facebook Lögreglan Tengdar fréttir Lögreglan á Suðurnesjum lokar Facebook-síðu sinni Lögreglan á Suðurnesjum er hætt á Facebook og hyggst loka síðu sinni eftir um sólarhring. Frá þessu greinir lögregluembættið í færslu á miðlinum sem er sögð verða sú síðasta. 11. janúar 2022 15:14 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Viktor og Kári heltast úr lestinni Innlent Halla Hrund fremst í nýrri könnun og Katrín dottin niður í þriðja sæti Innlent Segir upp hjá RÚV og snýr sér að pólitík Innlent Dramatík þegar tveimur var tilkynnt um ólögleg framboð Innlent Ástand hinnar látnu bar þess merki að henni hefði verið ráðinn bani Innlent Ætlaði að ganga frá álverinu og upp á Keflavíkurflugvöll Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Ók blindfullur við Grímsvötn og hótaði að drepa alla Innlent Guðrún á Glitstöðum segir vaðið yfir vilja almennings Innlent Best ef forseti hefur ekki verið í stjórnmálastarfi Innlent Fleiri fréttir Baldurs og Felix-fáni falur Guðrún á Glitstöðum segir vaðið yfir vilja almennings Helmingurinn af búslóðinni í ruslið Fyrstu tilnefningar til Vigdísarverðlauna Evrópuráðsþingsins kynntar á Alþingi Segir upp hjá RÚV og snýr sér að pólitík Ellefu verða í framboði til embættis forseta Íslands Landlæknir fer með ákvörðun Persónuverndar fyrir dóm Stór hópur fanga sem ekki treystir stofnunum Viktor og Kári heltast úr lestinni Ástand hinnar látnu bar þess merki að henni hefði verið ráðinn bani Dramatík þegar tveimur var tilkynnt um ólögleg framboð Best ef forseti hefur ekki verið í stjórnmálastarfi Ráðherra kynnir nýtt mælaborð farsældar barna Skjálfti við Bláfjöll í morgun og óbreytt við Sundhnúk Ætlaði að ganga frá álverinu og upp á Keflavíkurflugvöll Halla Hrund fremst í nýrri könnun og Katrín dottin niður í þriðja sæti Vopnuð rán tíðari en fólk gerir sér grein fyrir Óttast að saga slökkviliða á Íslandi glatist Plokkdagurinn mikli haldinn hátíðlegur um land allt Á ofsahraða undir áhrifum fíkniefna Efnahagsstefnan sé að ýta fólki í verðtryggð lán Ók blindfullur við Grímsvötn og hótaði að drepa alla Langt í að þeir nái sér að fullu Lögregla með eftirför í Vogahverfi Íslandsferðin sem breyttist í martröð Fundu hræ fimm hvolpa í Mosfellsbæ Fengu aðstoð sérsveitar og Gæslunnar við handtöku við Grímsvötn Sigurvin dró smábát í land Vill að fréttastofa RÚV biðji Maríu Sigrúnu afsökunar Lögreglan lofar góðu vegaeftirliti á Suðurlandi í sumar Sjá meira
Lögreglan á Suðurnesjum lokar Facebook-síðu sinni Lögreglan á Suðurnesjum er hætt á Facebook og hyggst loka síðu sinni eftir um sólarhring. Frá þessu greinir lögregluembættið í færslu á miðlinum sem er sögð verða sú síðasta. 11. janúar 2022 15:14