Jota hetjan gegn Sheffield

Anton Ingi Leifsson skrifar
Jota, Firmino og Trent fagna sigurmarkinu.
Jota, Firmino og Trent fagna sigurmarkinu. Peter Byrne/PA Images/Getty Images

Ensku meistararnir í Liverpool unnu svokallaðan vinnusigur gegn Sheffield United á heimavelli í kvöld en lokatölur urðu 2-1. Sigurmarkið skoraði Diogo Jota.

Það voru liðnar þrettán mínútur er gestirnir fengu vítaspyrnu. Fabinho var þá talinn brotlegur. Fyrst var þó dæmd aukaspyrna en síðan breytt í vítaspyrnu eftir skoðun í VAR.

Norðmaðurinn Sander Berge fór á punktinn og skoraði. Gestirnir vildu fá aðra vítaspyrnu skömmu síðar er boltinn virtist fara í hönd Andy Robertson en ekkert var dæmt.

Roberto Firmino hefur ekki verið iðinn við kolann á leiktíðinni en hann skoraði sitt fyrsta mark á leiktíðinni á 41. mínútu og jafnaði metin fyrir Liverpool. Þannig stóðu leikar í hálfleik.

Liverpool menn héldu að þeir væru að komast yfir á 62. mínútu er Mo Salah skoraði eftir lagleg tilþrif en VARsjáin dæmdi markið af. Einungis tveimur mínútum síðar kom hins vegar sigurmarkið er Diogo Jota stangaði fyrirgjöf Sadio Mane í netið.

Liverpool er í öðru sætinu með þrettán stig, jafn mörg stig og grannar þeirra í Everton sem eru á toppnum, en Everton spilar gegn Southampton á morgun. Sheffield er með eitt stig eftir sex leiki og situr í 19. sætinu.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira