Spánarmeistarar Atletico Madrid sóttu Espanyol heim í spænsku úrvalsdeildinni í dag. Antoine Griezmann gekk aftur til liðs við Atletico á dögunum og byrjaði í framlínunni ásamt Luis Suarez.
Það voru heimamenn í Espanyol sem tóku forystuna á 40. mínútu með marki frá Raúl de Tomas. Diego Simeone gerð þrjár breytingar í hálfleik og henti meðal annars Thomas Lemar og Angel Correa inn á í stað Kieran Trippier og Renan Lodi.
Yannick Carrasco tókst að jafna metin fyrir Atletico þegar rúmar tíu mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma og allt stefndi í jafntefli þegar að Thomas Lemar, sem hafði fengið mark sitt dæmt ógilt fyrr í leiknum, skoraði sigurmark Atletico á níundu mínútu uppbótartíma.
Alls voru 12 mínútum bætt en við en Atletico tókst að halda út sigurinn og er á toppi deildarinnar með 10 stig eftir fjóra leiki. Espanyol er í 16. sæti með 2 stig.