Segir aðgerðum í Tigray lokið Samúel Karl Ólason skrifar 29. nóvember 2020 07:48 Abiy Ahmed, forsætisráðherra Eþíópíu. EPA/STR Abiy Ahmed, forsætisráðherra Eþíópíu segir að stjórnarher landsins stjórni nú að fullu Mekelle, höfuðborg Tigrayhéraðs. Hann segir einnig að hernaðaraðgerðum gegn Frelsishreyfingunni, sem stjórnað hafa héraðinu, sé lokið.
Leiðtogi Frelsishreyfingarinnar segir þó að þeir muni berjast til síðasta manns. Talið er að þúsundir hafi dáið í átökunum, sem hafa staðið yfir í rúmar þrjár vikur og nærri því 44 þúsund manns hafa flúið til Súdan. Erfiðlega hefur þó gengið að sannreyna fregnir af svæðinu vegna átakanna og að lokað hefur verið fyrir bæði síma og internet þar. Í tísti sem hann birti í gærkvöldi sagði Abiy að átökum væri lokið og að nú yrði áhersla lögð á enduruppbyggingu, hjálparstarf og að handsama forsvarsmenn Frelsishreyfingarinnar. I am pleased to share that we have completed and ceased the military operations in the #Tigray region. Our focus now will be on rebuilding the region and providing humanitarian assistance while Federal Police apprehend the TPLF clique. #EthiopiaPrevails https://t.co/WrM2BAPCD6— Abiy Ahmed Ali (@AbiyAhmedAli) November 28, 2020 Debretsion Gebremichael, leiðtogi Frelsishreyfingarinnar, segir þó í skilaboðum til blaðamanna Reuters að bardögum sé ekki lokið og að þeir hafi ekki gefist upp. Hann sagði að bardagar myndu halda áfram og átökin snerust um rétt íbúa Tigrayhéraðs til að taka eigin ákvarðanir. Meðlimir Frelsishreyfingarinnar myndu berjast til síðasta manns. Hann staðfesti þó að sveitir Frelsishreyfingarinnar hefðu hörfað frá Mekelle. Heimildarmenn fréttaveitunnar segja útlit fyrir að það hafi gerst áður en sókn stjórnarhersins hófst gegn borginni og það gæti mögulega leitt til langvarandi skæruhernaðar gegn stjórnarhernum. Abiy, sem vann friðarverðlaun Nóbels í fyrra vegna friðarsamnings Eþíópíu og Erítreu, segir að árás stjórnarhersins gegn Frelsishreyfingunni sé löggæsluaðgerð. Frelsishreyfingin var ráðandi í ríkisstjórn Eþíópíu um árabil þar til Abiy tók við völdum árið 2018. Hann hefur reynt að auka miðstýringu í landinu, sem hefur lengi verið skipt niður meðal þjóðarhópa. Mikil spenna hefur verið á milli Frelsishreyfingarinnar og Abiy frá því sá síðarnefndi tók við völdum, í kjölfar umfangsmikilla mótmæla. Þá voru voru ráðmenn og embættismenn sem tilheyra Tigrayfólkinu reknir úr störfum og margir voru sóttir til saka vegna ásakana um spillingu. Spennuna má rekja til ýmissa annarra deilna og þá kannski sérstaklega til þess að Abiy frestaði kosningum fyrr á árinu vegna faraldurs nýju kórónuveirunnar. Eftir að forsætisráðherrann frestaði kosningum sögðu ráðamenn í Tigray hann umboðslausan og héldu samt þingkosningar í september. Það féll ekki í kramið í Addis Ababa, höfuðborg Eþíópíu, og samþykktu þingmenn þar í október að takmarka opinbert fjármagn sem færi til Tigray. Abyi hefur lagt mikla áherslu á að auka miðstýringu í Eþíópíu og þar með draga úr völdum héraðsstjórna. Ráðamenn í Tigray hafa berist gegn því og forsvarsmenn annarra héraða og þjóðarhópa hafa lýst yfir áhyggjum af viðleitni Abyi.
Eþíópía Hernaður Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Rúður skotnar í spað í verslun innflytjenda Innlent Quang Le hakkaður á Facebook Innlent Íslendingur sem lúbarði lögreglumenn í Varsjá þarf að borga brúsann Erlent Þrettán ára drengur stunginn til bana með sverði Erlent Hver er Kári Hansen? Innlent Særði minnst fimm með sverði í Lundúnum Erlent Lítilsvirðing gagnvart konum eigi ekki að líðast hjá RÚV Innlent Aukin virkni í gosinu Innlent Umferðartafir vegna elds í tengivagni Innlent Spurningar til Baldurs minni á árið 1980 Innlent Fleiri fréttir Trump sektaður um meira en milljón króna Rússar sagðir nota skotflaugar frá Norður-Kóreu Þrettán ára drengur stunginn til bana með sverði Særði minnst fimm með sverði í Lundúnum Íslendingur sem lúbarði lögreglumenn í Varsjá þarf að borga brúsann Fjórir lögreglumenn skotnir til bana í Charlotte Rostungur sem fannst í fyrra drapst af völdum fuglaflensu Hvetur Hamas til að ganga að rausnarlegum tillögum Ísrael Flugvöllur Færeyinga fær að taka við stærri þotum Yousaf segir af sér sem ráðherra og formaður Skoska þjóðarflokksins Sánchez hættir við að segja af sér Grafið undan fjölmiðlafrelsinu víða í Evrópu Vopnahlé í sjónmáli? Tveir látnir eftir að bíll hafnaði í sjónum við Stokkhólm Fjölmenn mótmæli vegna ofbeldisbylgju í Ástralíu Vasaúr ríkasta manns Titanic seldist á 210 milljónir Þúsundir hvöttu Sánchez til að segja ekki af sér Skoða að færa Mónu Lísu í eigið herbergi Harvey Weinstein lagður inn á spítala Þingmaður hleypti af skoti fyrir utan skemmtistað Rýma dómshús vegna sprengjuhótunar Dómstóll fyrirskipar handtöku landbúnaðarráðherra Selenskís Ákvörðun áfrýjunardómstólsins áfall og stórt skref aftur á bak Trump líklegur til að græða á úrskurði Hæstaréttar Dómi Harvey Weinstein snúið við Tekur fyrir að hafa verið „hermaður Hitlers“ Maður á sextugsaldri sagður hafa stungið grunnskóladreng Sánchez íhugar að segja af sér vegna meintrar spillingar Spaðar Rauðu myllunnar hrundu til jarðar í nótt Skipulögðu árásir í Þýskalandi og víðar í nafni ISKP Sjá meira