Við vorum verri en við áttum von á

Max Verstappen var ósáttur við frammistöðuna í gær.
Max Verstappen var ósáttur við frammistöðuna í gær. AFP

Hol­lenski ökuþór­inn Max Verstapp­en, sem keyr­ir fyr­ir lið Red Bull í Formúlu 1, var ósátt­ur við frammistöðu liðsins á fyrsta degi æf­inga fyr­ir kapp­akst­ur­inn í Singa­púr sem fram fer um helg­ina.

Red Bull liðið hef­ur verið óstöðvandi á tíma­bil­inu en tím­arn­ir sem ökuþór­arn­ir skiluðu á æf­ing­um 1 og 2 í gær voru ekki upp á marga fiska. Max Verstapp­en endaði átt­undi og Sergio Perez sjö­undi á seinni æf­ing­unni og því ljóst að það var mikið verk að vinna ætli liðið sér að ná góðum ár­angri í tíma­tök­un­um sem hefjast í dag klukk­an 13.00.

Verstapp­en sagði í viðtali eft­ir æf­ing­arn­ar að hann hefði átt í vand­ræðum með bíl­inn.

 „Það eru nokkr­ir hlut­ir sem við skilj­um ekki. Við þurf­um að gera bet­ur en það er mikið bil milli okk­ar og hröðustu bíl­anna. Við vor­um bara verri en við átt­um von á.“

Kapp­akst­ur­inn í Singa­púr hefst á sunnu­dag klukk­an 12.00.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert