Grísk lögregla rænir og misþyrmir hælisleitendum kerfisbundið Jóhann Hlíðar Harðarson skrifar 19. mars 2023 14:31 Frá flóttamannabúðum í Eleonas í Grikklandi. Konstantinos Zilos/Getty Images Gríska lögreglan misþyrmir og rænir flóttafólk með skipulögðum hætti. Hún hefur á síðustu árum stolið meira en tveimur milljónum evra af fólkinu. Grísk stjórnvöld hafa ennfremur flutt meira en 20.000 flóttamenn yfir til Tyrklands með ólögmætum hætti.
Rannsóknarblaðamenn spænska dagblaðsins El País og gríska blaðsins Solomon hafa á undanförnum sex mánuðum rannsakað meðferð grískra stjórnvalda og lögreglunnar á flóttafólki og hælisleitendum og niðurstöðurnar eru sláandi. Meira en 20.000 manns flutt ólöglega yfir til Tyrklands Á síðustu sex árum hefur lögreglan flutt yfir 20.000 manns með ólögmætum hætti yfir til Tyrklands, yfirleitt í skjóli nætur. Mannréttindasamtök á svæðinu hafa skráð hjá sér 374 tilvik þar sem þetta er gert. Áður en til þessara ólöglegu flutninga kemur hefur lögreglan safnað saman flóttafólki og hælisleitendum, bæði fólki sem komið hefur ólöglega inn í landið, sem og fólki sem er með pappírana í lagi og er með umsóknir sem hælisleitendur í gangi, lögreglan hirðir fólkið beinlínis upp af götunni og kemur því fyrir á afviknum stöðum, gömlum lögreglustöðvum eða herskálum, svo dæmi séu tekin. Þar er það geymt í nokkra daga, þar til búið er að safna 80-100 manns og þá er farið með það á litlum plastbátum yfir til Tyrklands. Lögregla hefur rænt meira en 2 milljónum evra af flóttafólki Andrés Mourenza, fréttaritari El País í Tyrklandi, og einn þeirra sem rannsakað hefur málið, lýsti meðferðinni sem þetta fólk fær áður en því er komið úr landi í nýlegu hlaðvarpi blaðsins Hann segir að lögreglumennirnir berji og misþyrmi fólkinu, dæmi eru um kynferðislegt ofbeldi og þeir hirði allar eigur þess, peninga, síma og önnur verðmæti. Varlega áætlað, segja blaðamennirnir, hafa lögreglumenn rænt á milli 2,2 til 2,8 milljónum evra af fólkinu. Í rannsókn sinni ræddu blaðamennirnir við hælisleitendur, starfsfólk opinberra stofnana sem vinnur að málefnum hælisleitenda, gríska lögreglumenn, lögfræðinga, íbúa Evros-héraðsins, austasta héraðs Grikklands, þaðan sem fólkið er flutt yfir til Tyrklands og starfsmenn mannréttindasamtaka sem starfa að málefnum flóttafólks á svæðinu. Krafa um að ESB rannsaki málið Málið hefur vakið mikla athygli innan Evrópusambandsins og nú þegar hafa nokkrir þingmenn Evrópuþingsins beint því til framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins að hafin verði opinber rannsókn á þessum ásökunum. Ísland hefur að undanförnu sent flóttafólk, sem þegar hefur fengið vernd í Grikklandi, aftur til Grikklands og íslensk stjórnvöld fullyrða að þar sé öryggi þeirra tryggt. Athugasemd: Síðustu setningu þessarar fréttar hefur verið breytt eftir að athugasemd barst frá dómsmálaráðuneytinu. Í upprunalegri frétt sagði að Ísland hefði sent hælisleitendur til baka til Grikklands. Það er ekki rétt, fólkið sem hefur verið sent til baka til Grikklands er flóttafólk sem þegar hefur fengið vernd. Beðist er afsökunar á þessum mistökum. Í umfjöllun spænskra og grískra fjölmiðla kemur skýrt fram að gríska lögreglan gerir ekki greinarmun á flóttafólki og hælisleitendum. Báðir hópar eru fórnarlömb ofbeldis og misþyrminga. Hér má kynna sér umfjöllun El País um málið. Hér er hægt að hlýða á hlaðvarp El País um málið. Hér má kynna sér umfjöllun Solomon um málið. Flóttamannaráð Evrópusambandsins (ECRE) hefur einnig fjallað um þetta mál
Grikkland Flóttamenn Hælisleitendur Mest lesið Getur gosið hvenær sem er Innlent Tók upp þegar hann nauðgaði kærustu sinni í tvígang Innlent Að taka afstöðu er einkamál hvers og eins Innlent Íkveikjan ekki talin hafa beinst að Trump eða réttarhöldunum Erlent Þjófunum yfirsást taska með milljónum króna Innlent Tilkynnti sig tvisvar til barnaverndar til að fá aðstoð fyrir einhverfa dóttur Innlent Pollrólegur í viðtali í 45 metra hæð yfir borginni Innlent Besti vinur úlfanna hlakkar til að tengjast áhorfendum í Hörpu Innlent Kveikti í sér fyrir utan dómshúsið þar sem réttað er yfir Trump Erlent Átta forsetaefni klár með listana Innlent Fleiri fréttir Íkveikjan ekki talin hafa beinst að Trump eða réttarhöldunum Kveikti í sér fyrir utan dómshúsið þar sem réttað er yfir Trump Fyrstu loftárásir Ísraela í Íran frá 1979 Fengu aðstoð Demókrata við að koma hernaðaraðstoð úr nefnd Hefur mátt sitja undir svívirðingum um sjálfan sig Segjast hafa skotið niður dýrmæta sprengjuflugvél Handtekinn í tengslum við áform um að ráða Selenskí af dögum Ísraelar gera árás á Íran Kennedy-fjölskyldan lýsir yfir stuðningi við Biden Bandaríkin stöðvuðu fulla aðild Palestínumanna að SÞ Hrunið í gömlu kauphöllinni heldur áfram Afsalta sjó til drykkjar í þurrki í Barcelona Eiginmaður Sturgeon ákærður fyrir fjárdrátt Mega koma til að snæða í Grindavík en aðeins í rútu Johnson í erfiðri stöðu Hafa vitneskju um mögulegan dvalarstað Íslendings sem flýr réttvísina Útsendarar Rússa sakaðir um skipulagningu árása í Þýskalandi Mikill mannskaði eftir sögulegt úrhelli í eyðimörkinni Kjarnorkuknúin drónaþyrla mun leita að lífrænum sameindum á Títan Sendi ösku í allt að þriggja kílómetra hæð Ákærður fyrir að nota slagorð SS-sveitanna á fjöldafundi Stjórnvöld í Katar að endurskoða sáttasemjarahlutverk sitt Réði lífvörð eftir árásina á bandamann Navalnís Borgarstjóri sakaður um brot gegn dóttur sinni Hæsta vindmylla heims á landi reist í Danmörku Þingforsetinn segist ekki ætla að fara fet Ísraelar sagðir búnir að ákveða að svara fyrir sig Boðflennusæfíll hrellir Kanadamenn Mannskæð loftárás Rússa í Norður-Úkraínu Toppurinn á spírunni fundinn: „Margir í sjokki og enn að ná sér“ Sjá meira