Modi tapaði lykilríki þrátt fyrir umdeilda kosningabaráttu Kjartan Kjartansson skrifar 3. maí 2021 10:57 Modi forsætisráðherra lét skegg sitt vaxa sítt til að koma sér í mjúkinn hjá kjósendum í Vestur-Bengal. Stuðningsmenn hans líktu honum við dáðasta son ríkisins, Nóbelsverðlaunaskáldið Rabindranath Tagore. Vísir/EPA Flokkur Narendra Modi, forsætisráðherra Indlands, tapaði ríkisþingskosningum í Vestur-Bengal þrátt fyrir að hann hefði lagt ofurkapp á það í kosningabaráttunni. Modi var jafnvel sakaður um að láta kosningarnar sig meiru varða en kórónuveirufaraldurinn sem geisar nú stjórnlaust víða um landið.
Kosningarnar í Vestur-Bengal og fjórum öðrum ríkjum fóru fram í skugga ófremdarástands vegna faraldursins. Fleiri en 300.000 manns hafa nú greinst smitaðir af veirunni á hverjum einasta degi í tíu daga í röð. Í gær var slegið met um dauðsföll á einum degi þegar greint var frá 3.689 dauðsföllum. Svo svart er ástandið að sjúkrahús skortir fleiri pláss og súrefni til að gefa sjúklingum í andnauð. Að minnsta kosti tólf sjúklingar létust þegar súrefni kláraðist á sjúkrahúsi í Delí í gær, að sögn breska ríkisútvarpsins BBC. Þrátt fyrir stöðu faraldursins háði BJP-flokkur Modi forsætisráðherra umfangsmikla kosningabaráttu í Vestur-Bengal. Modi sjálfur ferðaðist ítrekað þangað á kosningafundi. Fjöldafundirnar og kosningarnar hafa verið tengdar við fjölgun smitaðra þar og Modi hefur sætt harðri gagnrýni fyrir að vanrækja skyldur sínar sem forsætisráðherra með tíðum ferðum sínum til að vinna hugi og hjörtu Bengala. BJP-flokkur Modi hélt fjölda kosningafunda í aðdraganda ríkisþingkosninganna. Þeir hafa meðal annars verið tengdir við fjölgun kórónuveirusmita undanfarnar vikur.Vísir/EPA Allt kom þó fyrir ekki og fór Mamata Banjeree, sitjandi ríkisstjóri Vestur-Bengal, og flokkur hennar með sigur af hólmi. Banjeree hefur verið harður gagnrýnandi Modi. Sigur hennar kom stjórnmálaskýrendum á óvart í ljósi þess hversu miklu flokkur Modi tjaldaði til í kosningabaráttunni, bæði tíma og peningum, að því er BBC segir frá. Banjeree sagði að úrslitin í Vestur-Bengal hefðu bjargað Indlandi og að hún ætlaði að gerast baráttuna við faraldurinn að helsta forgangsmáli sínu. Sjálf tapaði hún þó sæti sínu á ríkisþinginu fyrir fyrrverandi aðstoðarmanni sem gekk til liðs við BJP. Segist Banjeree ætla að skjóta úrslitum til dómstóla.
Indland Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Tengdar fréttir Aldrei fleiri dauðsföll á einum degi Alls létust 3.689 manns úr kórónuveirunni á Indlandi í gær. Er þetta mesti fjöldi sem hefur látist í landinu á einum degi frá því að faraldurinn hófst og fundaði forsætisráðherra landsins með heilbrigðisráðherranum í morgun til að fara yfir stöðu mála. 2. maí 2021 11:14 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Í fangelsi eins og á Litla-Hrauni gerist allt“ Innlent Eldinum í bílnum fylgdi heljarinnar sprenging Innlent „Þetta breytti mér mjög mikið sem persónu“ Innlent Viðurkennir að hafa gengið of hart fram Innlent Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Innlent Hafi orðið fyrir þrýstingi úr ólíkum áttum Innlent „Ódýrt“ að gera samningana tortryggilega Innlent Búast má við slyddu Veður Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Innlent Fleiri fréttir Ísrael samþykkir ekki vopnahlé Ísraelsmenn vísa fréttamönnum á dyr Íhaldsflokkurinn laut í lægra haldi í sveitarstjórnarkosningum Tuga enn saknað og 55 látnir Verður borgarstjóri Lundúna þriðja kjörtímabilið í röð Auka viðbúnað í aðdraganda Eurovision Forseti Argentínu skýtur föstum skotum á spænsku ríkisstjórnina Berlínarborg vill losna við glæsivillu Göbbels Flugvél Atlanta á tæpasta vaði í Ríad Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Kreml fordæmir ummæli Macrons og Camerons Reyna að sækja fyrsta sýnið frá fjærhlið tunglsins Hlustuðu á Trump og Cohen tala um þagnargreiðslu Danir rýmka reglur um þungunarrof Þrjátíu látnir og tuga saknað eftir flóð í Brasilíu Segja frumvarp um gyðingaandúð í andstöðu við Biblíuna Tyrkir stöðva öll viðskipti við Ísrael „Mun ekki halla mér aftur og leyfa deyjandi sjónvarpsstöð að ráðast á mig“ Segir fólk eiga rétt til mótmæla en ekki til óreiðu Umfangsmikil mótmæli vegna „rússneskra“ laga í Georgíu Enn í basli með skemmdir á hitaskildi Orion Vornanen kastað úr þingflokknum Hafa engin varnarvirki til að hörfa í Yfirstandandi kosningar á Englandi prófsteinn fyrir Íhaldsflokkinn Viðbrögð Hamas við vopnahléstillögunum „neikvæð“ Hundruð lögreglumanna í viðbragðsstöðu vegna mótmæla í UCLA Vilja endurupptöku í máli Weinstein Þrjú hundruð handtekin í Columbia-háskóla Stuðningur við dönsku ríkisstjórnina aldrei verið minni Mótmælendur og gagnmótmælendur tókust á Sjá meira
Aldrei fleiri dauðsföll á einum degi Alls létust 3.689 manns úr kórónuveirunni á Indlandi í gær. Er þetta mesti fjöldi sem hefur látist í landinu á einum degi frá því að faraldurinn hófst og fundaði forsætisráðherra landsins með heilbrigðisráðherranum í morgun til að fara yfir stöðu mála. 2. maí 2021 11:14