Vill leyfa áfengi í stúkunni: „Ýtum fólki út í það að drekka hratt í hálfleik“ Sindri Sverrisson skrifar 24. september 2021 14:31 Stuðningsmenn enska landsliðsins glaðbeittir með bjór í hönd á leið á úrslitaleikinn gegn Ítalíu á EM í London í sumar. Áfengisdrykkja er bönnuð í stúkunni á leikjum á Evrópumótum líkt og í ensku úrvalsdeildinni. Getty/Marc Atkins Bretar skoða það nú að aflétta banni við áfengisdrykkju í stúkunni á fótboltaleikjum. Þingmaður segir bannið stuðla að því að menn þambi hratt fyrir leik og í hálfleik.
Tracey Crouch, fyrrverandi íþróttamálaráðherra, fer fyrir umfangsmikilli endurskoðun á enskum fótbolta sem sett var í gang í vor, eftir að hugmyndir um evrópsku Ofurdeildina höfðu verið kveðnar í kútinn. Á meðal þess sem Crouch hefur skoðað er staða stuðningsmanna og aðstaða þeirra á leikjum. Hún leggur til að prófað verði að leyfa áfengisdrykkju á leikjum í ensku D-deildinni og efstu deild utandeildarinnar, með það í huga að drykkja verði leyfð á leikjum í öllum deildum ef vel gengur. Ekkert bann er í Bretlandi við áfengisdrykkju á krikket- eða ruðningsleikjum, sem einnig eru vinsælar íþróttir í landinu. Einnig má drekka bjór yfir leikjum í utandeildinni í fótbolta, nema í efstu deild hennar. Á leikjum bestu fótboltaliða landsins má hins vegar ekki drekka í stúkunni. „Viðhorf okkar gagnvart áfengi og fótbolta er úrelt,“ sagði Crouch við The Times. Bannið gilt frá árinu 1985 Áfengisbannið sem stuðningsmenn liða í ensku úrvalsdeildinni, og öðrum atvinnumannadeildum í fótbolta í Bretlandi, þurfa að lúta hefur gilt frá árinu 1985, þegar fótboltabullur voru stórt vandamál í landinu. Fótboltabullur settu ljótan svip á úrslitaleik EM á Wembley í sumar en það breytir því ekki að Crouch vill sjá breytingar. „Það hjálpar ekki til að sjá tilvik eins og á Wembley en þess vegna vil ég gera prófanir með þetta fyrst,“ sagði hún. Í dag má drekka áfengi í hálfleik á fótboltaleikjum, á ákveðnum svæðum innandyra, en bannið snýr að drykkju í stúkunni. „Við erum að ýta fólki út í það að drekka hratt í hálfleik. Í því felst þetta óholla samband fótboltastuðningsmanna og áfengis. Þeir drekka mikið á stuttum tíma. Þess vegna vil ég gera prófanir með þetta svo að menn þurfi ekki að skella í sig heilum bjór í hálfleik,“ sagði Crouch sem telur afléttingu bannsins einnig hjálpa félögum í neðri deildum að halda sig réttu megin við núllið í rekstrinum.
Enski boltinn Mest lesið „Það er ekkert sem stoppar Remy Martin“ Sport Arna spilar með FH næstu þrjú árin Íslenski boltinn Þórsara dreymir um heimavallarrétt Körfubolti Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Njarðvík 127-114 | Engin bikarþynnka og sigur sem telur meira en aðrir Körfubolti Bjarki Már og félagar í góðri stöðu Handbolti PSG mætir Lyon í undanúrslitum Fótbolti Umfjöllun og viðtöl: Valur - Breiðablik 106-94 | Toppliðið sýndi klærnar nógu mikið gegn Blikum Körfubolti Arnór frá út tímabilið eftir ömurlega tæklingu Ísraelans Fótbolti „Verð dæmdur fyrir þetta restina af ævi minni“ Sport „Greinilega áherslubreytingar hjá dómurum varðandi ástríðu og tilfinningar“ Körfubolti Fleiri fréttir Tonali ákærður á Englandi fyrir fimmtíu meint brot Ætlar að kynna ensku úrvalsdeildina fyrir sundlaug í stúkunni Meiðslavandræði á Man. City fyrir stórleikinn á móti Arsenal Man. United sagt vilja fá stjóra Úlfanna í þjálfarateymið sitt Henson svarar fyrir sig: „Treyjurnar seljast á 50 þúsund“ Segir búning Henson þann ljótasta í sögunni Þarf að borga grískum auðmanni rúmar sex hundruð milljónir ESPN: Áhugi á Alberti í ensku úrvalsdeildinni Ólöglegt tímamótamark kom City á bragðið gegn United Segja að Ten Hag muni stýra Man United á næstu leiktíð Liverpool strákurinn markahæstur í undankeppninni Hættir hjá Bournemouth og tekur við sem íþróttastjóri Liverpool: „Treysti honum fullkomlega“ „Ég hata þau öll“ Ber engan kala til Jürgen Klopp Klopp hélt áfram að urða yfir fjölmiðlamanninn eftir að strunsa úr viðtalinu Utan vallar: Leikur fyrir snjallsímakynslóðina Núñez meiddist gegn Man United Fjórtán ára undrabarn valdi Man. City Nottingham Forest missir fjögur stig Klopp ósáttur við að fá ekki eina skiptingu í viðbót Fórnaði Arsenal fyrir konu Klopp sagði spurningu blaðamanns heimskulega og gekk burt Sjáðu mörkin úr stórleiknum í lýsingu Gumma Ben Búið að draga í undanúrslit enska bikarsins Ótrúleg dramatík þegar United sló Liverpool út úr bikarnum Arsenal gæti neitað Henry og bannað Saliba að fara Tvö mörk tekin af West Ham gegn Aston Villa Sóttu sigur í uppbótartíma gegn tíu mönnum Grætti boltastrák þegar Coventry skoraði sigurmarkið „Þetta er ótrúlegt“ Sjá meira
Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Njarðvík 127-114 | Engin bikarþynnka og sigur sem telur meira en aðrir Körfubolti
Umfjöllun og viðtöl: Valur - Breiðablik 106-94 | Toppliðið sýndi klærnar nógu mikið gegn Blikum Körfubolti
Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Njarðvík 127-114 | Engin bikarþynnka og sigur sem telur meira en aðrir Körfubolti
Umfjöllun og viðtöl: Valur - Breiðablik 106-94 | Toppliðið sýndi klærnar nógu mikið gegn Blikum Körfubolti