Stórleikur á Hlíðarenda

Birkir Már Sævarsson er klár í slaginn.
Birkir Már Sævarsson er klár í slaginn. mbl.is/Árni Sæberg

Valur tekur á móti Víkingi úr Reykjavík í stórleik 7. umferðar úrvalsdeildar karla í knattspyrnu, Pepsi Max-deildarinnar, á Origo-vellinum á Hlíðarenda klukkan 20.

Ríkjandi Íslandsmeistarar Vals eru í efsta sæti deildarinnar með 16 stig á meða Víkingar eru í öðru sætinu með 14 stig.

Birkir Már Sævarsson, leikmaður Vals og landsliðsmaður Íslands, kom til móts við Valsmenn fyrir helgi eftir verkefni með íslenska landsliðinu og ætti því að vera klár í slaginn í kvöld.

Þeir Ingvar Jónsson og Sölvi Geir Ottesen eru frá vegna meiðsla hjá Víkingum en aðrir leikmenn eru heilir heilsu og klárir í slaginn.

Leikur Vals og Víkings verður í beinni textalýsingu á mbl.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert