Hjólastólinn í „tengdamömmuboxi“ á toppi bílsins Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 30. apríl 2024 20:07 Þóra Ósk, sem er með hjólastólinn sinn í „tengdamömmuboxi“ á toppi bílsins síns. Hún brosir allan daginn vegna þessarar flottu tækni, sem gerir henni lífið svo miklu auðveldara. Magnús Hlynur Hreiðarsson Brosið fer ekki af ungri konu, sem glímir við erfiða fötlun á Eyrarbakka. Ástæðan er sú að hún er komin með hjólastólinn sinn í "tengdamömuboxið" uppi á topp bílsins síns og ýtir bara á takka á fjarstýringu til að fá stólinn niður til sín.
Hér erum við að tala um Þóru Ósk Guðjónsdóttur sjúkraliða, sem er alltaf brosandi og svo jákvæð þrátt fyrir erfiðleika vegna fötlunar sinnar, sem gerir ástand hennar alltaf verra og verra. Hún gengur við göngugrind en þarf alltaf að nota hjólastól meira og meira. Og það er alveg magnað að sjá hvað þetta virkar flott hjá Þóru á bílnum. Hjólastólinn kemur bara til hennar sjálfkrafa með aðstoð ákveðins búnaðar enda fer brosið varla af Þóru því hún er svo ánægð með nýju græjuna. „Já, ég er með svona „tengdamömmubox “til að geyma hjólastólinn minn þannig að nú þarf ég ekkert að hafa áhyggjur af því að hafa stólinn í skottinu eða hafa einhvern með mér til að taka stólinn fyrir mig, þetta kemur bara allt svona. Þetta er ótrúlega flott og sniðugt,” segir Þóra Ósk. Þóra Ósk, sem er með hjólastólinn sinn í „tengdamömmuboxi“ á toppi bílsins síns.Magnús Hlynur Hreiðarsson En hvað er það sem amar að hjá Þóru varðandi hennar fötlun? „Ég er sem sagt með einhvern taugahrörnunarsjúkdóm en það er svo einkennilegt að það finnst ekkert af mér. Ég er búin að fara í allskonar blóðprufur, skanna á heila og mænu hvort ég sé með MS þannig að ég er örugglega ekkert fötluð,”, segir hún og hlær. Þóra er með taugahrörnunarsjúkdóm en læknum gengur illa að finna út hvað er nákvæmlega að hjá henni.Magnús Hlynur Hreiðarsson Þóra Ósk á þrjú börn með manni sínum Hlöðveri Þorsteinssyni og una þau hag sínum vel á Eyrarbakka. Hún er í sjúkraþjálfun nokkrum sinnum í viku og í sérstökum þrýstingsbuxum til að auka blóðflæði niður í fætur svo eitthvað sé nefnt. Og þú ert ótrúlega jákvæð þrátt fyrir allt? „Heyrðu já, það hefur hjálpað mér svo rosalega mikið hvernig mér líður að það er bara ekki í boði að draga sængina upp fyrir haus og bara aumingja ég, það er ekki í boði,” segir Þóra Ósk ákveðin. Og Þóra segir að hjólastólinn í „tengdamömmuboxinu breyti öllu fyrir sig. „Já, að vera með hjólastólinn og þurfa ekkert að hugsa, bara að fara eða að fara í búðina og ekkert að spá í þessu, það er alveg geggjað,” segir Þóra Ósk, jákvæð og hress Eyrbekkingur þrátt fyrir erfið veikindi en hún lætur ekkert stoppa sig. Þóra Ósk og Hlöðver una sér vel á Eyrarbakka en hann fékk heilablóðfall 2019 en lætur ekkert stoppa sig eins og Þóra.Magnús Hlynur Hreiðarsson
Árborg Málefni fatlaðs fólks Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið OpenAI hættir notkun raddar eftir inngrip lögmanna Johansson Erlent Fengu ekkert merki frá þyrlunni sem hrapaði með forsetann um borð Erlent Réttað yfir Hinrik XIII og öðrum leiðtogum valdaránstilraunar Erlent Katrín leiðir í nýrri könnun Prósents Innlent Mikill viðbúnaður vegna bráðra veikinda Innlent Biden segir Ísraela saklausa af ásökunum um þjóðarmorð Erlent Fyrsti stríðsþristurinn lentur Innlent Netanjahú hafnar handtökuskipuninni Erlent „Viðurkenning á því að þetta er blaðamennska sem hann var að stunda“ Innlent 80 til 120 herskip lágu í Hvalfirði Innlent Fleiri fréttir Katrín leiðir í nýrri könnun Prósents „Viðurkenning á því að þetta er blaðamennska sem hann var að stunda“ Þolinmæði saminganefnda á þrotum Gæsluvarðhald yfir Davíð Viðarssyni framlengt 80 til 120 herskip lágu í Hvalfirði Fyrsti stríðsþristurinn lentur Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna sé vanhæft til að takast á við aðstæðurnar Handtökuskipun á hendur forsætisráðherra og kjaradeila Séra Eva Björk ráðin biskupsritari Fimm stríðsþristar á leiðinni til landsins Samningur BÍ í höfn í Karphúsinu Ráðherrar hafi verið ítrekað varaðir við gjöf Haraldar Sungið og sungið á Sauðárkróki „Ég stóð bara með sóttvarnalækni“ Mikill viðbúnaður vegna bráðra veikinda Ósk um handtökuheimild og deilur um Erfðagreiningu Erfitt að ímynda sér meiri harðlínumann en Raisi Sat saklaus í unglingafangelsi í tvö ár Frambjóðendur geti nýtt sér skoðanakannanir Glæsilegt fuglasafn í veiðihúsinu við Hítará Varasamt að ferðast á sumardekkjum í kvöld Óttast um afdrif Íransforseta og ferðaveðrið í beinni Stuðningur Katrínar við sóttvarnarlækni sjálfsagður „Fólk er bara að bíða“ Tveir prestar og tveir djáknar vígðir í Skálholti Lægð yfir landinu og snjókoma fyrir norðan Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Aukin skjálftavirkni og erjur um Erfðagreiningu Örlítil aukning í skjálftavirkni undir Svartsengi Forsetakosningar, mansal og samningar Reykjavíkur við olíufélögin Sjá meira