Innlent

Ekki auðvelt að feta í fótspor Þórólfs

Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar
Guðrún Aspelund tekur við af Þórólfi Guðnasyni sóttvarnalækni í haust. 
Guðrún Aspelund tekur við af Þórólfi Guðnasyni sóttvarnalækni í haust.  Vísir/Arnar

Það verður ekki auðvelt að fylla í það skarð sem Þórólfur Guðnason skilur eftir. Þetta segir Guðrún Aspelund nýráðinn sóttvarnalæknir. Starfið sé krefjandi en hún kveðst treysta sér í verkefnið. Það sem sé mest aðkallandi nú sé að hvetja aldraða og fólk í áhættuhópum til að fara í bólusetningu gegn COVID-19.

Guðrún starfar nú sem yfirlæknir á sviði sóttvarna hjá embætti landlæknis en hún var eini umsækjandinn um starfið. Hún tekur við af Þórólfi Guðnasyni í september. Guðrún hefur embættispróf í læknisfræði frá Háskóla Íslands og sérfræðimenntun í bæði almennum skurðlækningum og barnaskurðlækningum. Guðrún hefur þá lokið meistaranámi í líftölfræði. Hún starfaði sem lektor og barnaskurðlæknir við Columbia-háskóla á árunum 2007 til 2017.

„Þetta er auðvitað krefjandi starf. Ég hef séð það vel síðustu ár með því að vinna náið með Þórólfi. Þessu fylgir mikil ábyrgð en ég tel mig vera reiðubúna og hafa þá reynslu og þekkingu sem þarf til að taka við þessu.“

En mega landsmenn eiga von á áherslubreytingum undir forystu Guðrúnar?

„Ég held að það verði ekki neitt stórkostlegt og alls ekki í byrjun. Ég geri mér alveg grein fyrir því að ég er að fylgja í fótspor Þórólfs og það er ekkert endilega auðvelt. Ég tek við góðu búi og ég mun taka minn tíma í að leggja línurnar eftir því sem mér finnst, það gætu auðvitað orðið einhverjar áherslubreytingar.“

Alvarlegum COVID-sýkingum hefur farið fjölgandi síðustu vikur en þeim hafa fylgt fleiri innlagnir á spítala. Guðrún segist vera meðvituð um alvarleika málsins.

„Þarf að fylgjast vel með þessu og hvernig spítalinn ræður vel við þetta. Það er enginn á gjörgæslu núna sem er jákvætt en við sáum núna tvö andlát núna nýlega. Þannig að við erum ekki að leggja til að grípa til neinna harkalegra aðgerða eins og er en eins og við höfum oft sagt áður þá þarf að huga að heilbrigðisþjónustunni og það þarf að efla hana og það þarf að hafa aðstöðu til að sinna þessu.“

Hennar skilaboð nú eru fyrst og fremst að hvetja aldraða og fólk sem er viðkvæmt fyrir til að fara í bólusetningu.

„Það verndar ekki endilega gegn smiti en það verndar gegn alvarlegum veikindum.“


Tengdar fréttir

Þór­ólfur hafi ekki bara vísað veginn í far­aldrinum

Forsætisráðherra segir Þórólf Guðnason, fráfarandi sóttvarnalækni, líklega vera þann mann sem hún hefur átt flest símtöl við undanfarin tvö ár. Hún rifjar upp skemmtilega sögu af því þegar Þórólfur vísaði henni og fjölskyldu hennar veginn til Borgarfjarðar eystri.

Þórólfur Guðnason segir upp störfum

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir hefur sagt upp störfum frá og með 1. september næstkomandi. Hann segir ástæður uppsagnarinnar bæði persónulegar og faglegar.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×