Telja Ísland öruggasta áfangastaðinn í heimsfaraldri Kristín Ólafsdóttir skrifar 2. maí 2021 20:01 Strati Hvartos og Caroline Fiorito, ferðalangar frá Los Angeles, voru spennt fyrir Íslandsferðinni. Vísir/Sigurjón Hundrað og þrjátíu ferðamenn frá Bandaríkjunum, langflestir bólusettir, lentu á Keflavíkurflugvelli í dag. Þeir hafa sumir beðið í rúmt ár eftir Íslandsferðinni og eru sammála um að landið sé öruggur áfangastaður í heimsfaraldri.
Þetta er í fyrsta sinn síðan 2019 sem Delta flýgur farþegum til landsins en félagið mun nú í maí hefja daglegt áætlunarflug milli Bandaríkjanna og Íslands. Jóhannes Þór Skúlason framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar sagði að koma ferðamannanna marki mögulega upphaf íslenska ferðasumarsins. Einhverra áhrifa virðist mögulega þegar farið að gæta í ferðaþjónustunni. „Ætli það hafi ekki selst jafnmikið síðustu viku og er búið að vera að seljast núna frá áramótum,“ sagði Hallgrímur Lárusson, bílstjóri hjá Snælandi Grímssyni. Hann var mættur á Keflavíkurflugvöll í morgun til að sækja ferðamann sem kom með Delta-fluginu og aka honum á dvalarstað hans í Reykjavík. Hallgrímur Lárusson bílstjóri hjá Snælandi Grímssyni.Vísir/Sigurjón Fréttastofa fylgdist með ferðamönnum streyma gegnum flugvöllinn í morgun. Flestir voru á því að Ísland væri öruggur valkostur í heimsfaraldri. „Við kusum Ísland því það virðist besti kosturinn nú í faraldrinum. Við teljum landið öruggasta staðinn að ferðast til. Einnig eru mjög fáir ferðamenn hér nú,“ sagði Strati Hvartos, ljósmyndari frá Los Angeles, sem stefnir á að vera hér á landi í tvær vikur ásamt kærustu sinni, leikmyndahönnuðinum Caroline Fiorito. Og allir sem fréttastofa ræddi við hlökkuðu til ferðalagsins um Ísland. Þær Yasmine Kim og Megan Newsom læknanemar voru mjög spenntar fyrir ferð sinni en þær stefndu á Suðurland. „Við vorum að ljúka læknanámi og þetta er því útskriftarferð,“ sagði Megan. Flugmaðurinn Rohan Bahtia var loks mættur í langþráð frí. „Við höfum beðið í eitt og hálft ár eftir því að komast til Íslands. Landið er í miklu uppáhaldi hjá okkur og við erum glöð að vera komin.“ Koppa-fjölskyldan frá Bandaríkjunum; Sarah og Corey ásamt dætrum sínum þremur, þeim Sophiu, Ameliu og Annalise.Vísir/Sigurjón Tilhlökkunin gerði strax vart við sig í flugvélinni að sögn Koppa-fjölskyldunnar; Söruh, hjúkrunarfræðings, Corey, iðnaðarmanns, og dætra þeirra þriggja; Sophiu, Ameliu og Annalise. „Allir voru mjög spenntir að komast á annan stað en í Bandaríkjunum. Við hlökkum til að heimsækja annað land. Stemningin var mjög góð. Vélin var full,“ sagði Sarah. Elsta dóttirin Sophia kvaðst hlakka til ferðarinnar. Innt eftir því hverju hún væri spenntust fyrir sagði hún að það væru líklega fossarnir.
Ferðamennska á Íslandi Fréttir af flugi Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Ætlaði að koma upp um barnaníðing en lenti í klóm hans Innlent Segir lág laun leikskólakennara mýtu Innlent Steinunn Ólína segir landráðamál í uppsiglingu Innlent Hafi líka reynt að bana eldri syni sínum Innlent Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Innlent Leikskólakennarar ósáttir við vettlingagjörning Innlent Steinunn Ólína skýtur föstum skotum á Katrínu Innlent Kínversk ferðaskrifstofa mátti sín lítils gegn TM Innlent Mikill reykur þegar kviknaði í einangrunarplasti Innlent Alvarlegt umferðarslys í Eyjafirði Innlent Fleiri fréttir „Dapurlegt“ að andstæðingar bólusetninga hafi svo mikil áhrif Stefnir í sólríkan og hlýjan sumardag fyrsta víða um land Eigendur sjókvíaeldis þurfa ekki að greiða auðlindagjald Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Veturinn sá kaldasti síðan 1999 Vill rjúfa framkvæmdastopp í orkumálum Kári Stefánsson, ákall um vaxtalækkun og hinsegin list Skemmtiferðaskip um tíu metrum frá strandi við Viðey Kínversk ferðaskrifstofa mátti sín lítils gegn TM Komu litlum fiskibáti til bjargar Þyrlan í loftið vegna slasaðs vélsleðamanns Ætlaði að koma upp um barnaníðing en lenti í klóm hans Alvarlegt umferðarslys í Eyjafirði Segir lág laun leikskólakennara mýtu Alltof mörg börn misstu af bólusetningu við mislingum Leyfisveitingin ekki brot á EES-samningnum Með 19 þúsund MDMA-töflur í ferðatöskunni Hafi líka reynt að bana eldri syni sínum Steinunn Ólína segir landráðamál í uppsiglingu Stofnaði lífi átta manna í hættu „í ábataskyni og á ófyrirleitinn hátt“ Fleiri löggur á leiðinni Seðlabankinn geti ekki annað en lækkað vexti Krefja Seðlabankann um vaxtalækkun Eldur í gámi við Sundabakka Alls konar fabúleringar um vinskapinn við Bjarna Ben Lætur staðar numið í pólitíkinni Mikill reykur þegar kviknaði í einangrunarplasti Leikskólakennarar ósáttir við vettlingagjörning Alþjóðasamvinna á krossgötum: Hvert stefnir Ísland? Þátttaka nemenda í „verkföllum“ skráð sem „óheimil fjarvist“ Sjá meira