Arnar hefur áhuga á A-landsliðsstarfinu: „Ekki til stærra starf á Íslandi“ Anton Ingi Leifsson skrifar 21. nóvember 2020 16:51 Arnar Þór á hliðarlínunni með U21-árs landsliðinu. vísir/bára
Arnar Þór Viðarsson, yfirmaður knattspyrnumála hjá KSÍ og þjálfari U21-árs landsliðsins í fótbolta, hefur áhuga á því að verða næsti A-landsliðsþjálfari. Þetta staðfesti hann í útvarpsþættinum Fótbolti.net X-inu í dag. Guðni Bergsson, formaður KSÍ, og stjórn sambandsins velta nú vöngum yfir því hver eigi að taka við íslenska karlalandsliðinu í fótbolta eftir að Erik Hamrén lét af störfum á dögunum. Arnar er búinn að koma U21-árs landsliðinu á stórmót á næsta ári og hann var einfaldlega spurður hvort að hann hefði áhuga á A-landsliðsstarfinu. „Akkúrat í dag er ég byrjaður að undirbúa lokamót U21. Svo einfalt er það. En að ef þið mynduð spyrja alla þjálfara á Íslandi hvort að þeir hefðu áhuga á að verða A-landsliðsþjálfari og það er einn sem segir nei við ykkur. Þá er hann lygari,“ sagði Arnar og hélt áfram: „Það er alveg ljóst að það að vera A-landsliðsþjálfari Íslands og vera Íslendingur, það er ekkert stærra starf til á Íslandi. Það var tekinn ákvörðun um það fyrir tveimur árum þegar ég byrjaði í þessu að allt sem er U21 og niður, þá legg ég línurnar.“ Arnar hefur ekki skipt sér af starfi A-landsliðsþjálfarana en hann segir að verksvið sitt sé frá U21-árs landsliðinu og niður. „A-landsliðsþjálfarastöðurnar; bæði karla og kvennamegin, er ekki mitt að ákveða hver það verður. Ef að Guðni og stjórnin telur að ég sé besti aðilinn í það, að sjálfsögðu hef ég áhuga á því. Ég endurtek; ef að það er eitthvað sem segir ekki, þá er hann að ljúga,“ en hann mun ekki koma að ráðningu næsta A-landsliðsþjálfara. „Nei, það er ekki þannig. Þegar við vorum að setja saman starfið þá töldum við það óeðlilegt að ef ég er U21 árs landsliðsþjálfari - að ég sé að ákveða hver kemur inn eða í versta falli þurfa að reka einhvern. Það er óeðlilegt fyrir A-landsliðsþjálfara að vera með „technical director“ yfir sér og svo U21-árs þjálfara undir sér.“ „Það er hins vegar á mínu sviði að ræða málin við stjórnina og Guðna og Klöru, hvernig sé best að stýra skipinu og öllu batteríinu næstu árin. Orðið kynslóðaskipti en það kemur inn á hvernig viljum við vinna vinnuna okkar, hvernig við viljum vinna það næstu árin. Það er munur að ráða A-landsliðsþjálfara og búa til einhverja stefnu fyrir yngri landsliðin og þjálfarana.“ Þegar hann var spurður hvort að það væri hægt að vera yfirmaður knattspyrnumála og þjálfari A-landsliðsins lá FH-ingurinn ekki á svörum: „Já. Roberto Martinez gerir það hjá Belgíu. Þeir ætluðu að ráða inn yfirmann knattspyrnumála en gerðu það ekki því þeir voru svo ánægðir með þetta „duo-job“, hvernig hann er að gera þetta. Ef að það er hægt einhvers staðar annars staðar þá ætti það að vera hægt á Íslandi.“ „Ég er búinn að vera U21 landsliðsþjálfari og yfirmaður knattspyrnusviðs. Þetta eru tvær vinnur en vinnur sem tengjast miklu að mörgu leyti.“ Allt viðtalið við Arnar má hlusta á hér að ofan.
KSÍ Fótbolti Íslenski boltinn EM U21 í fótbolta 2021 Mest lesið Bakgarðshlaupið í beinni útsendingu Sport Sigríður Á. Andersen varð Íslandsmeistari Sport Markasúpa þegar Liverpool komst á sigurbraut Enski boltinn Leik lokið: KA-KR 1-1 | Smit stelur fyrirsögnunum enn og aftur Íslenski boltinn Féllu á meðan þjálfarinn sem þeir ráku hélt Blackburn uppi Enski boltinn Fengu myndsímtal frá Ed Sheeran í búningsklefanum Enski boltinn Hetja Keflvíkinga hafði aldrei áður skorað svona flautukörfu á ferlinum Körfubolti Búið að fjarlægja auglýsingarnar af gólfinu í Smáranum Körfubolti „Ég sakna hennar á hverjum degi“ Handbolti Segir „mjög líklegt“ að Guðlaug Edda komist á ÓL í París í sumar Sport Fleiri fréttir Samherjar Alberts náðu í stig í Mílanó Leik lokið: KA-KR 1-1 | Smit stelur fyrirsögnunum enn og aftur Markasúpa þegar Liverpool komst á sigurbraut Hilmir Rafn kominn á blað í Noregi Sjáðu frábært mark hjá Arnóri Ingva sem dugði þó skammt Í beinni: Stjarnan - ÍA | Nær Stjarnan að skína gegn Skaganum? Langt hlé gert á leik hjá Guðrúnu vegna mikillar rigningar Jón Dagur lagði upp mark Birkir skoraði fyrir Brescia Katla tryggði Kristianstad sigur Markaveisla hjá Chelsea á móti nágrönnum sínum Andri Lucas skoraði og Andri Fannar fagnaði sigri á toppliðinu PSV Eindhoven hollenskur meistari í fyrsta sinn í sex ár Lehmann keypti „Invincibles“ nafnið eftir að Arsenal sofnaði á verðinum Sjáðu Andra Rúnar opna reikninginn og mörkin sem færðu FH sigur Messi með ótrúlegt stoðsendingmet í MLS deildinni í nótt Fengu myndsímtal frá Ed Sheeran í búningsklefanum Segir að móðurhlutverkið hafi gert sig að betri leikmanni Féllu á meðan þjálfarinn sem þeir ráku hélt Blackburn uppi Sú markahæsta með tár á hvarmi er hún tilkynnti brotthvarf sitt frá Chelsea Enginn náð í fleiri stig en McKenna síðan hann tók við Ipswich „Við þurfum níu stig til að vinna titilinn“ Girona í fyrsta sinn í Meistaradeild Evrópu og tryggði Real í leiðinni titilinn Skoraði fernu og Englandsmeistararnir halda í við Skytturnar „Lítur ekki vel út með Elmar, ég er hræddur um að þetta sé svipað og hjá Eiði“ Real Madrid náði fjórtán stiga forskoti á toppnum Kane skoraði en Bayern tapaði Newcastle fór illa með Jóa Berg og félaga á Turf Moor Uppgjörið: FH - Vestri 3-2 | FH kom til baka og vann fjórða leikinn í röð Eyjamenn byrja fótboltasumarið ekki vel Sjá meira