Flóaskóli sigraði í Skólahreysti

Skólarnir í efstu þremur sætum Skólahreysti 2022.
Skólarnir í efstu þremur sætum Skólahreysti 2022. Skjáskot af Rúv

Flóaskóli sigraði í Skólahreysti með 61,5 stig en úrslit keppninnar fór fram í kvöld í Mýrinni í Garðabæ.

Í öðru sæti varð Hraunvallaskóli með 58 stig og í þriðja sæti varð Holtaskóli með 54,5 stig.

Í liði Flóaskóla voru þau Þórunn Ólafsdóttir sem keppti í armbeygjum og hreystigreip, Auðunn Ingi Davíðsson sem keppti í upphífingum og dýfum, Hanna Dóra Höskuldsdóttir og Viðar Hrafn Victorsson kepptu síðan í hraðaþraut.

Varamenn liðsins voru Oddur Olav Davíðsson og Jóhanna Pálmadóttir. 

Sjö undanriðlar fóru fram í keppninni í ár en tólf lið kepptu til úrslita. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert