Innlent

Vonar að nýju þingi takist betur til við stjórnar­skrár­breytingar

Vésteinn Örn Pétursson og Heimir Már Pétursson skrifa
Forseti lýðveldisins gerði tímasetningu þingsetningar meðal annars að umtalsefni sínu í setningarræði sinni í dag.
Forseti lýðveldisins gerði tímasetningu þingsetningar meðal annars að umtalsefni sínu í setningarræði sinni í dag. Vísir/Vilhelm

Forseti Íslands vonar að nýju þingi takist betur til við breytingar á stjórnarskránni en á síðasta kjörtímabili. Meirihluti fulltrúa Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Flokks fólksins í kjörbréfanefnd leggur til að öll kjörbréf sem Landskjörstjórn gaf út að lokinni endurtalningu í Norðvesturkjördæmi verði samþykkt.

Þingsetning hófst að venju með guðsþjónustu í Dómkirkjunni en að henni lokinni var stuttur þingfundur þar sem kosið var í hina formlegu kjörbréfanefnd.

Setning Alþingis fór fram við óvenjulegar aðstæður að þessu sinni þar sem endanleg kosningaúrslit frá kosningunum hinn 25. september liggja ekki fyrir. Þau verða ekki ljós fyrr en í atkvæðagreiðslu á Alþingi á fimmtudag.

Í setningarræðu sinni gerði forseti Íslands það að umtalsefni að þetta væri í þriðja sinn sem þing hæfist að hausti. Núverandi þing gæti setið fram í lok september að fjórum árum liðnum.

„Ræða þarf kosti þess og galla að hafa kjördag að hausti en ekki að vori eins og venja hefur verið. Ekki síst hvaða áhrif það hefur á störf Alþingis. Þungamiðju hins pólitíska valds,“ sagði Guðni Th. Jóhannesson forseti í dag.

Hann hvatti til áframhaldandi samstöðu meðal þjóðarinnar í baráttunni við kórónuveiruna og sagði frelsið til að sýkja aðra væri rangsnúinn réttur.

Forsetinn minntist þess að hann hefði lýsti þeirri von við þingsetningu á síðasta ári að unnt yrði að taka hófsamar tillögur um breytingar á stjórnarskránni til efnislegrar afgreiðslu og að umræður yrðu leiddar til lykta.

„Vonandi gengur betur á þessu kjörtímabili að ræða og ráðast í skynsamlegar umbætur á stjórnarskrá Íslands. Rétt eins og henni hefur áður verið breytt í tímans straumi. Má þar sem fyrr horfa til ákvæða um umhverfi, auðlindir og íslenska tungu. Auk breytinga á þjóðhöfðingjakafla stjórnarskrárinnar.“



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×