Samtök atvinnulífsins „hafa stigið út fyrir öll velsæmismörk í samskiptum“

Formaður Rafiðnaðarsambands Íslands segist hafa staðfestingu fyrir því að Samtök atvinnulífsins hafi ráðlagt fyrirtækjum að ganga gegn kjarasamningum.

Kristján Þórður Snæbjarnarson
Kristján Þórður Snæbjarnarson
Auglýsing

Krist­ján Þórður Snæ­bjarn­ar­son, for­maður Raf­iðn­að­ar­sam­bands Íslands og 1. vara­for­seti Alþýðu­sam­bands Íslands, telur að kjara­bar­átta á Íslandi sé að herðast, að því er fram kemur í ítar­legu við­tali við hann á Kjarn­anum sem birt­ist á dög­un­um.

„Ef við horfum nokkur ár aftur í tím­ann – segjum ára­tug – þá var vissu­lega tek­ist á um mál­efni og var það ekki þannig að það hefði verið auð­velt að gera kjara­samn­inga eða semja um bætt kjör. En hins vegar var ákveð­inn skiln­ingur á því innan Sam­taka atvinnu­lífs­ins að það þyrfti að eiga góð sam­skipti og eiga sam­talið um þau mál­efni sem skipta máli. Það var ákveð­inn skiln­ingur á því hvernig hlut­irnir þyrftu að ganga fyrir sig en það er í raun gjör­breytt í dag.

Sam­tök atvinnu­lífs­ins hafa stigið út fyrir öll vel­sæm­is­mörk í sam­skiptum og það er auð­vitað að hluta til að koma fram í þeirri stöðu sem hefur verið uppi núna að und­an­förnu þar sem þeir segja að ekk­ert sam­tal hafi orðið um þessi við­brögð við kjara­samn­ing­um. Það er hins vegar ekki rétt hjá þeim. Það er þannig að ef þú vilt fara í sam­talið þá verður þú að gera það á heild­stæðum nót­um. Sam­tök atvinnu­lífs­ins hafa kallað eftir sam­tali á þeirra for­sendum og ef þú ferð inn í sam­tal ein­göngu á for­sendum ann­ars aðil­ans þá skilar það aldrei neinni jákvæðri nið­ur­stöðu fyrir heild­ina,“ sagði hann.

Auglýsing

Krist­ján Þórður tók undir orð margra innan verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar að harkan væri að aukast til muna. „Þegar við sjáum dæmi um að fyr­ir­tæki brjóta á starfs­fólki þá virð­ast þau oft og tíðum ganga eins langt og mögu­legt er til þess að athuga hversu langt þau kom­ast. Ég hef stað­fest­ingu fyrir því hjá nokkrum fyr­ir­tækjum að Sam­tök atvinnu­lífs­ins hafi ráð­lagt fyr­ir­tækjum að ganga lengra en kjara­samn­ingar leyfa. „Sjáðu hversu langt þú kemst,“ er sagt.

Bara það að full­trúi fyr­ir­tækj­anna sé að ráð­leggja þeim að ganga í raun gegn kjara­samn­ing­um, sem þeir hafa sjálfir skrifað und­ir, er auð­vitað ávísun á slæm sam­skipti. Það er þessi þáttur sem veldur því að í dag er ekk­ert traust á milli sam­tak­anna eða sára­lítið – og sam­skiptin verða því erfið við þessar aðstæð­ur,“ sagði hann.

Þá sagð­ist Krist­ján Þórður hafa miklar áhyggjur af því að fram­koma Sam­taka atvinnu­lífs­ins ylli því að það yrði meiri harka í sam­skiptum og erf­ið­ara að ná sam­komu­lagi um atriði sem skipta máli. „Ef þú getur ekki treyst því að samn­ingur sem þú gerir standi þá auð­vitað gerir þú ekki samn­ing.“

Hægt er að lesa við­talið í heild sinni hér

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent