Árshækkun íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu ekki verið meiri frá 2006

Samkvæmt vísitölu húsnæðisverðs fyrir höfuðborgarsvæðið hefur íbúðaverð nú hækkað um 24 prósent á síðustu 12 mánuðum. Árshækkunin er nú orðin meiri en hún var nokkru sinni á hækkanaskeiðinu á árunum 2016-17.

Sérbýliseignir hafa hækkað um 25,5 prósent á síðustu 12 mánuðum, en íbúðir í fjölbýli um 23,7 prósent.
Sérbýliseignir hafa hækkað um 25,5 prósent á síðustu 12 mánuðum, en íbúðir í fjölbýli um 23,7 prósent.
Auglýsing

Íbúða­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur ekki hækkað meira á 12 mán­aða tíma­bili síðan árið 2006. Árs­hækk­un­in, sam­kvæmt nýbirtri vísi­tölu íbúða­verðs á höf­uð­borg­ar­svæð­inu fyrir maí­mán­uð, nemur nú 24 pró­sent­um.

Vísi­talan hækkar um 3 pró­sent á milli mán­aða og hefur hækkað um 9,1 pró­sent á síð­ustu þremur mán­uðum og 15,7 pró­sent á síð­ustu sex mán­uð­um, sam­kvæmt því sem fram kemur á vef Þjóð­skrár.

Á síð­ustu 12 mán­uðum hafa sér­býli hækkað meira en íbúðir í fjöl­býli, en hækkun sér­býla nemur 25,5 pró­sentum og á meðan að eignir fjöl­býli hafa hækkað um 23,7 pró­sent að með­al­tali.

Auglýsing

Hækk­un­ar­takt­ur­inn orð­inn meiri en árin 2016-17

Sem áður segir þarf nú að fara aftur til árs­ins 2006 til þess að finna við­líka hækk­anir íbúða­verðs á höf­uð­borg­ar­svæð­inu á 12 mán­aða tíma­bili, en þá var að ganga niður sú mikla bylgja verð­hækk­ana á mark­aði sem átti sér stað á árunum 2005 og 2006.

Árs­hækk­unin er nú orðin meiri en hún var á hæsta punkti verð­hækk­ana­bylgj­unnar sem átti sér stað á árunum 2016 og 2017, en í maí 2017 hafði íbúða­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hækkað um 23,5 pró­sent á 12 mán­aða tíma­bili.

Enn bjart­sýn á að mark­að­ur­inn róist um mitt árið

Grein­ing Íslands­banka telur for­sendur fyrir því að íbúða­verði haldi áfram að hækka á allra næstu mán­uð­um, sam­kvæmt því sem fram kemur í umfjöllun Berg­þóru Bald­urs­dóttur hag­fræð­ings um þróun hús­næð­is­verðs, sem birt­ist á vef bank­ans í dag.

Bergþóra Baldursdóttir er hagfræðingur hjá Íslandsbanka. Mynd: Íslandsbanki.

Í umfjöll­un­inni segir að „von­andi“ verði fram­boð nýrra íbúða auk dvín­andi eft­ir­spurnar „nóg til að hægja á verð­hækk­unum síðar á þessu ári“. Grein­ing Íslands­banka spáði því í þjóð­hags­spá sinni í maí að hægja myndi á hækk­un­ar­takt­inum þegar liði á árið og að um mitt ár yrði komin ró á mark­að­inn.

„Við erum enn bjart­sýn að það verði nið­ur­stað­an,“ segir í grein­ing­unn­i.

Þar er einnig fjallað um vænt áhrif aðgerða Seðla­banka Íslands á hús­næð­is­mark­að­inn, en eins og greint var frá í síð­ustu viku hefur lána­stofn­unum verið bannað að lána fyrstu kaup­endum meira en 85 pró­sent af kaup­verði eigna og auk þess hefur verið hert að greiðslu­byrð­ar­hlut­falli, sem þýðir að erf­ið­ara verður fyrir fólk að kom­ast í gegnum greiðslu­mat.

„Þetta mun vænt­an­lega hafa þau áhrif að eft­ir­spurn dvíni en hve mikið er stóra spurn­ing­in,“ segir í grein­ing­unni frá Íslands­banka.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent