Lið Beckhams bæði það dýrasta og slakasta vestanhafs Valur Páll Eiríksson skrifar 19. júlí 2021 23:16 Staðan er strembin hjá félögunum Phil Neville og David Beckham vestanhafs. Michael Reaves/Getty Images Ævintýri fyrrum knattspyrnuhetjunnar David Beckham með lið sitt Inter frá Miami í bandarísku MLS-deildinni í fótbolta hefur ekki gengið að óskum enn sem komið er. Liðinu er stýrt af félaga Beckhams, Phil Neville, fyrrum liðsfélaga hans hjá Manchester United, og gengið verið vægast sagt brösugt þrátt fyrir rándýran leikmannahóp liðsins.
Beckham fór fyrir hópi fjárfesta sem tók yfir liðið árið 2014 og fékk leyfi til þátttöku í MLS-deildinni frá og með tímabilinu 2020, í fyrra. Úrúgvæinn Diego Alonso var fyrsti þjálfari félagsins en var rekinn eftir fyrsta árið, í janúar á þessu ári, þar sem hann hafði unnið aðeins sjö leiki af 24 við stjórnvölin. Inn í hans stað kom Phil Neville, fyrrum liðsfélagi Beckhams hjá Manchester United, sem hefur gengið litlu betur. Inter Miami er með fæst stig í deildinni það sem af er yfirstandandi leiktíð, átta stig eftir ellefu leiki, og aðeins skorað níu mörk. Neville hefur aðeins unnið tvo leiki af ellefu við stjórnvölin. Despite having MLS s highest payroll*, Inter Miami now has the lowest points (8) and goals scored (9) in the entire league. (* per the most recent MLSPA release) pic.twitter.com/bS1kw3CxYI— Grant Wahl (@GrantWahl) July 19, 2021 Fjölmiðlamaðurinn Grant Wahl hjá Sports Illustrated greinir frá því á Twitter að liðið sé það dýrasta í deildinni ef marka má tölur frá MLS. Á mála hjá Inter-liðinu eru meðal annars Frakkinn Blaise Matuidi, mexíkóski landsliðsmaðurinn Rodolfo Pizarro, Bretinn Ryan Shawcross og bræðurnir Federico og Gonzalo Higuaín. Í maí á þessu ári var félagið sektað vegna brota á félagsskiptareglum deildarinnar þar sem það var fundið sekt um að hafa farið á svig við reglur um launaþak er við kom skiptum Matuidi og Kólumbíumannsins Andrésar Reyes til liðsins. Liðið var sektað um tvær milljónir bandaríkjadala og verður með lægra launaþak tímabilin 2022 og 2023 vegna málsins. Útlitið er því ekki bjart fyrir framhaldið hjá drengjunum hans Beckham í Miami.
MLS Mest lesið Harma auglýsingar á gólfi og vilja banna þær eftir meiðsli Martins Körfubolti „Þið eruð lið fullt af feitabollum“ Enski boltinn Sjáðu dramatísku vítakastskeppnina í Eyjum Handbolti Drakk átta bjóra fyrir beina útsendingu Fótbolti Sló í myndavél og gæti fengið bann Körfubolti Aron í myndatöku í dag vegna meiðslanna Handbolti Vatnaskil hjá Red Bull og risafréttir fyrir Formúlu 1 Formúla 1 Segir aðeins þau hlutlausu hafa skemmt sér yfir fótbolta Ten Hag Enski boltinn Fengið nóg af því að vera ruslakista fyrir viðbjóð frá fólki Körfubolti Rangnick hafnar Bayern München Fótbolti Fleiri fréttir Sjáðu mark Füllkrugs sem kom Dortmund í bílstjórasætið „Þið eruð lið fullt af feitabollum“ Besta upphitunin: „Finn ekki fyrir pressunni“ Tekur fyrir að starfsfólk Manchester United vinni að heiman Skúrkurinn endaði sem hetjan Drakk átta bjóra fyrir beina útsendingu Dortmund tók aukasætið sem ensku liðin dreymdi um Rangnick hafnar Bayern München Segir aðeins þau hlutlausu hafa skemmt sér yfir fótbolta Ten Hag FH fékk tvær sektir frá KSÍ Dortmund leiðir þökk sé þrumuskoti Füllkrug Logi kom inn af bekknum og skoraði í stórsigri Mark dæmt af Bjarka og dramatík hjá Alexöndru Sjáðu mörkin úr stórleiknum í München Júlíus og félagar unnu frækinn bikarsigur á Rosenborg Kenndi gráðugum Kim um bæði mörkin gegn Real Madrid Lewandowski gæti verið seldur á brunaútsölu Barcelona Bellingham reyndi að taka Kane á taugum fyrir vítið Heillaóskum rigndi yfir fimmtán ára hetju Fram í skólanum „Vestri hefur verið að taka leikhlé“ Courtois ekki með Belgíu á EM Einvígið galopið eftir jafntefli í Þýskalandi „Þú veist alveg svarið við þessu“ Sextán ára og skoraði hjá Arsenal eins og Rooney forðum Víkingar bjóða Grindvíkingum í Víkina á morgun „Real Madrid lofaði mér að ég yrði arftaki Modric“ Félögin sömdu um að banna Sigurbergi að spila Tuchel fullyrti að Gnabry muni skora á móti Real Madrid í kvöld Þrír Íslendingar í liði umferðarinnar Gáttaðar á því að fyrirliði Víkings var settur á bekkinn Sjá meira