Skoraði fyrstu mörkin í MLS gegn stjörnuliði Inter og trónir á toppnum Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 22. júlí 2021 07:31 Carles Gil fagnar Arnór Ingva eftir annað af mörkum hans í leiknum. @NERevolution Arnór Ingvi Traustason skoraði tvö mörk í sigri New England Revolution á Inter Miami í MLS-deildinni í fótbolta í Bandaríkjunum í nótt. Voru þetta fyrstu mörk hans fyrir félagið. Er liðið því enn á toppi Austurdeildar.
Guðmundur Þórarinsson spilaði nær allan leikinn í 1-0 sigri New York City á CF Montréal en Róbert Orri Þorkelsson var ekki í leikmannahóp síðarnefnda liðsins. Fyrrum fótboltamaðurinn David Beckham á Inter Miami en liðið er á sínu fyrsta tímabili í MLS-deildinni. Lítið hefur gengið hjá lærisveinum Phil Neville það sem af er tímabili og gæti sæti Neville verið heitt eftir útreiðina sem liðið fékk í nótt. Arnór Ingvi skoraði fyrsta mark leiksins eftir stundarfjórðung með frábærum skalla af stuttu færi. That's got to feel so good for @NoriTrausta pic.twitter.com/fG7X7XqPfO— New England Revolution (@NERevolution) July 21, 2021 Staðan var orðin 2-0 eftir tæplega hálftíma leik og Arnór Ingvi gerði í raun út um leikinn á 36. mínútu með öðru marki sínu. Staðan var hins vegar orðin 4-0 í hálfleik og sigurinn svo gott sem kominn í hús. He's cool as ice The goals keep coming @NoriTrausta! pic.twitter.com/OM7Y9IFmiO— New England Revolution (@NERevolution) July 22, 2021 Revolution fullkomnaði niðurlæginguna með fimmta marki leiksins á 83. mínútu, lokatölur 5-0. Í liði Inter Miami voru Blaise Matuidi, Ryan Shawcross og Gonzalo Higuaín. Guðmundur Þórarinsson var í vinstri bakverði New York City og spilaði 83 mínútur í góðum 1-0 sigri á CF Montréal. Sigurmark leiksins skoraði Ismael Tajouri eftir tæplega hálftíma leik. Róbert Orri Þorkelsson gekk nýverið í raðir Montréal en hann var ekki í leikmannahóp liðsins í leiknum. Thanks for rocking with us We move pic.twitter.com/KUfLg2WtAC— New York City FC (@NYCFC) July 22, 2021 Arnór Ingvi og félagar tróna sem fyrr á toppi Austurdeildar MLS með 30 stig að loknum 15 umferðum. CF Montréal eru í 5. sæti með 22 stig eftir 14 leiki á meðan New York City er í 7. sæti með 20 stig eftir 13 leiki.
Fótbolti MLS Mest lesið Úr húsvarðarstarfi í atvinnumennsku Handbolti Slys á æfingu fyrir fjórum árum er enn að eyðileggja fyrir Söru Sport Rooney segir United losa sig við nær allan leikmannahópinn Enski boltinn Einbeitir sér að því að komast í NBA frekar en að spila með pabba sínum Körfubolti Neitaði að svara spurningum um skilnaðinn Sport „Núna ætla ég að klára þetta þar sem þetta er síðasta tímabilið mitt hérna“ Sport Albert gáttaður á Lárusi Orra: „Hvað meinarðu? Hvað er í gangi hérna?“ Íslenski boltinn Tiger trúir enn á sjálfan sig: „Líður enn eins og ég geti unnið golfmót“ Golf Doncic rankaði við sér og Dallas einum sigri frá úrslitum Vestursins Körfubolti Feðgar þjálfa Breiðablik: „Gott fyrir okkur báða að vera saman“ Körfubolti Fleiri fréttir Kona brýtur blað í sögunni áður en Jói Kalli tekur við Man. United sagði konunum ekki frá ákvörðuninni Allegri afklæddist á hliðarlínunni „Sá að þeim leið aldrei illa“ Mætti á þing FIFA úr fangaklefanum Rooney segir United losa sig við nær allan leikmannahópinn Gerir sér grein fyrir erfiðu tímabili: „Þið eruð bestu stuðningsmenn í heimi“ „Þetta var ótrúlega erfitt“ Vlahovic tryggði Juventus bikarmeistaratitilinn United lyfti sér upp að hlið Newcastle Evrópudraumurinn lifir góðu lífi eftir fjórða sigurinn í röð KA sneri taflinu við í seinni hálfleik Gísli lagði upp í Íslendingaslag og Elfsborg vann risasigur Uppgjörið og viðtöl: Fylkir - Breiðablik 0-2 | Blikar enn með fullt hús Ásdís Karen kom Lilleström á bragðið Kjósa um hvort notkun VAR verði hætt Uppgjörið: Þróttur - Víkingur 0-1 | Þróttarar enn án sigurs Everton boðið neyðarlán til að klára nýja heimavöllinn Gæti haldið áfram eftir allt saman FIFA íhugar að leyfa deildarleiki í öðrum löndum Félagaskiptaglugganum lokað fyrr en vanalega í sumar Fækka landsleikjagluggum og koma á fót HM félagsliða Segja að Mbappé og forseti PSG hafi öskrað á hvor annan Stjóri Spurs ósáttur við viðhorfið: „Þetta er utan félagsins, innan þess, alls staðar“ Jói Kalli hættir hjá landsliðinu og fer til Danmerkur Illa orðað samningsákvæði varð KA að falli Albert gáttaður á Lárusi Orra: „Hvað meinarðu? Hvað er í gangi hérna?“ Segir að Ortega hafi unnið titilinn fyrir City Ten Hag vísar gagnrýni Rooneys til föðurhúsanna United íhugar að ráða stjóra Ipswich sem eftirmann Ten Hags Sjá meira