„Veit ekki hvort þau hafi algjörlega vanmetið þessa stöðu“ Sindri Sverrisson skrifar 27. september 2022 16:01 Blikar urðu undir í baráttunni við Val um Íslandsmeistaratitilinn og nú virðist 2. sætið dýrmæta einnig runnið þeim úr greipum. VÍSIR/VILHELM Innan við ári eftir að hafa spilað við sum af bestu liðum Evrópu í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu er útlit fyrir að Blikakonur missi af Evrópusæti í Bestu deildinni í ár. Í Bestu mörkunum á Stöð 2 Sport í gærkvöld var því velt upp hvort Blikar hefðu mögulega gert dýrkeypt mistök með því að sækja sér ekki meiri liðsstyrk í félagaskiptaglugganum í sumar. Eftir tapið gegn Selfossi um helgina og sigur Stjörnunnar gegn Þór/KA í gær er Breiðablik komið niður í 3. sæti fyrir lokaumferð Bestu deildarinnar um næstu helgi. Blikar hafa misst öfluga leikmenn út á leiktíðinni af ýmsum ástæðum, eins og Hildi Antonsdóttur, Alexöndru Jóhannsdóttur, Ástu Eir Árnadóttur og fleiri, eftir að lykilmenn fóru einnig í atvinnumennsku fyrir tímabilið. „Ég hélt að Breiðablik myndi gera eitthvað pínu í sumarglugganum. Mér fannst það ekki vera. Þá hugsaði ég að þau væru greinilega svona ofboðslega „confident“ [örugg með sig] að geta klárað þetta. Ég held að þau hafi alls ekki ætlað að gefa frá sér þetta 2. sæti. Ég veit ekki hvort þau hafi algjörlega vanmetið þessa stöðu,“ sagði Lilja Dögg Valþórsdóttir í Bestu mörkunum. Var þetta tímapunkturinn til að gefa ungum tækifæri? „Eða bara treyst þessum ungu stelpum til að leysa þetta,“ skaut Harpa Þorsteinsdóttir inn í og hélt áfram: „Við erum oft beggja megin borðs í þessari umræðu og skömmum þessa uppeldisklúbba eins og Breiðablik er fyrir að gefa ekki ungu leikmönnunum tækifæri. Núna þegar það stefnir í að leikmenn detti út ætlum við þá að kalla eftir því að leikmenn séu keyptir inn og fyllt í þessi stæði, eða var þetta bara tímapunkturinn til að gefa ungum leikmönnum eins og Birtu [Georgsdóttur], sem hafa alveg gæði en þurfa spiltíma, tækifæri? Þá er sú ákvörðun tekin og afleiðingarnar þær að 2. sætið er ekki öruggt, en vissulega voru möguleikar fyrir því.“ Klippa: Bestu mörkin - Blikar styrktu sig ekki nóg Besta deild kvenna er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Besta deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 4.990 krónur á mánuði. Besta deild kvenna Bestu mörkin Breiðablik Fótbolti Mest lesið Hefur fest rætur á Íslandi eftir örlagaríkt símtal Íslenski boltinn Gamli Íslandsvinurinn kraftaverkamaður í Mainz Fótbolti Jón Arnar grét það ekki að sjá Daníel slá þrjátíu ára Íslandsmet sitt Sport Meistararnir úr leik eftir stærstu endurkomu sögunnar Körfubolti Kvaddi stuðningsmennina og kenndi þeim lag um nýja stjórann Fótbolti Endurkoma í lagi hjá BKG og elleftu heimsleikarnir í röð Sport Guardiola um framtíðina: Nær því að hætta en vera áfram Enski boltinn Klopp: Ulla konan mín mun segja mér hvað við erum að fara að gera Enski boltinn Mark Quansah fyrir Liverpool bætti markametið Enski boltinn Kristján Guðmundsson: Aldrei brot og mjög slök frammistaða hjá dómurum leiksins Íslenski boltinn Fleiri fréttir Í beinni: Vestri-Víkingur | Nýliðarnir taka á móti meisturunum Mikel Arteta missti af möguleikanum Klopp: Ulla konan mín mun segja mér hvað við erum að fara að gera 23 ára og búinn að vinna deildina oftar en Rooney, Agüero og Terry Besiktas segist vera að ræða við Mourinho „Rúnar skilur fótbolta og skilur fólk“ Guardiola um framtíðina: Nær því að hætta en vera áfram Mark Quansah fyrir Liverpool bætti markametið Gamli Íslandsvinurinn kraftaverkamaður í Mainz Hefur fest rætur á Íslandi eftir örlagaríkt símtal „Við erum búnir að skrifa okkur í sögubækurnar“ Kristján Guðmundsson: Aldrei brot og mjög slök frammistaða hjá dómurum leiksins Hákon skoraði en Lille er á leið í umspil Kvaddi stuðningsmennina og kenndi þeim lag um nýja stjórann Lærisveinar Freys einum leik frá því að takast hið ómögulega Meistararnir köstuðu frá sér þriggja marka forystu Uppgjörið og viðtöl: Stjarnan - Breiðablik 3-4 | Rangur dómur réði úrslitum í framlengingu Albert kom inn af bekknum er Genoa tapaði gegn tíu Rómverjum Valur og Þróttur flugu inn í átta liða úrslit Þetta gerðist í lokaumferðinni í enska | City meistari og Jóhann Berg kvaddi Manchester City Englandsmeistari fjórða árið í röð United skemmdi kveðjupartý De Zerbi Skytturnar gerðu sitt en horfa samt á eftir titlinum Klopp kvaddi með sigri Ísak lagði upp mark í fyrsta byrjunarliðsleiknum Missti af rauðvínsglasi með Sir Alex Klopp segir að Liverpool verði í góðum höndum hjá Slot Ten Hag segir United í betri stöðu en fyrir ári Tapið í gær þýðir að Kane missir af enn einum titlinum Chelsea sækir undrabarn frá Brasilíu Sjá meira
Í Bestu mörkunum á Stöð 2 Sport í gærkvöld var því velt upp hvort Blikar hefðu mögulega gert dýrkeypt mistök með því að sækja sér ekki meiri liðsstyrk í félagaskiptaglugganum í sumar. Eftir tapið gegn Selfossi um helgina og sigur Stjörnunnar gegn Þór/KA í gær er Breiðablik komið niður í 3. sæti fyrir lokaumferð Bestu deildarinnar um næstu helgi. Blikar hafa misst öfluga leikmenn út á leiktíðinni af ýmsum ástæðum, eins og Hildi Antonsdóttur, Alexöndru Jóhannsdóttur, Ástu Eir Árnadóttur og fleiri, eftir að lykilmenn fóru einnig í atvinnumennsku fyrir tímabilið. „Ég hélt að Breiðablik myndi gera eitthvað pínu í sumarglugganum. Mér fannst það ekki vera. Þá hugsaði ég að þau væru greinilega svona ofboðslega „confident“ [örugg með sig] að geta klárað þetta. Ég held að þau hafi alls ekki ætlað að gefa frá sér þetta 2. sæti. Ég veit ekki hvort þau hafi algjörlega vanmetið þessa stöðu,“ sagði Lilja Dögg Valþórsdóttir í Bestu mörkunum. Var þetta tímapunkturinn til að gefa ungum tækifæri? „Eða bara treyst þessum ungu stelpum til að leysa þetta,“ skaut Harpa Þorsteinsdóttir inn í og hélt áfram: „Við erum oft beggja megin borðs í þessari umræðu og skömmum þessa uppeldisklúbba eins og Breiðablik er fyrir að gefa ekki ungu leikmönnunum tækifæri. Núna þegar það stefnir í að leikmenn detti út ætlum við þá að kalla eftir því að leikmenn séu keyptir inn og fyllt í þessi stæði, eða var þetta bara tímapunkturinn til að gefa ungum leikmönnum eins og Birtu [Georgsdóttur], sem hafa alveg gæði en þurfa spiltíma, tækifæri? Þá er sú ákvörðun tekin og afleiðingarnar þær að 2. sætið er ekki öruggt, en vissulega voru möguleikar fyrir því.“ Klippa: Bestu mörkin - Blikar styrktu sig ekki nóg Besta deild kvenna er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Besta deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 4.990 krónur á mánuði.
Besta deild kvenna er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Besta deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 4.990 krónur á mánuði.
Besta deild kvenna Bestu mörkin Breiðablik Fótbolti Mest lesið Hefur fest rætur á Íslandi eftir örlagaríkt símtal Íslenski boltinn Gamli Íslandsvinurinn kraftaverkamaður í Mainz Fótbolti Jón Arnar grét það ekki að sjá Daníel slá þrjátíu ára Íslandsmet sitt Sport Meistararnir úr leik eftir stærstu endurkomu sögunnar Körfubolti Kvaddi stuðningsmennina og kenndi þeim lag um nýja stjórann Fótbolti Endurkoma í lagi hjá BKG og elleftu heimsleikarnir í röð Sport Guardiola um framtíðina: Nær því að hætta en vera áfram Enski boltinn Klopp: Ulla konan mín mun segja mér hvað við erum að fara að gera Enski boltinn Mark Quansah fyrir Liverpool bætti markametið Enski boltinn Kristján Guðmundsson: Aldrei brot og mjög slök frammistaða hjá dómurum leiksins Íslenski boltinn Fleiri fréttir Í beinni: Vestri-Víkingur | Nýliðarnir taka á móti meisturunum Mikel Arteta missti af möguleikanum Klopp: Ulla konan mín mun segja mér hvað við erum að fara að gera 23 ára og búinn að vinna deildina oftar en Rooney, Agüero og Terry Besiktas segist vera að ræða við Mourinho „Rúnar skilur fótbolta og skilur fólk“ Guardiola um framtíðina: Nær því að hætta en vera áfram Mark Quansah fyrir Liverpool bætti markametið Gamli Íslandsvinurinn kraftaverkamaður í Mainz Hefur fest rætur á Íslandi eftir örlagaríkt símtal „Við erum búnir að skrifa okkur í sögubækurnar“ Kristján Guðmundsson: Aldrei brot og mjög slök frammistaða hjá dómurum leiksins Hákon skoraði en Lille er á leið í umspil Kvaddi stuðningsmennina og kenndi þeim lag um nýja stjórann Lærisveinar Freys einum leik frá því að takast hið ómögulega Meistararnir köstuðu frá sér þriggja marka forystu Uppgjörið og viðtöl: Stjarnan - Breiðablik 3-4 | Rangur dómur réði úrslitum í framlengingu Albert kom inn af bekknum er Genoa tapaði gegn tíu Rómverjum Valur og Þróttur flugu inn í átta liða úrslit Þetta gerðist í lokaumferðinni í enska | City meistari og Jóhann Berg kvaddi Manchester City Englandsmeistari fjórða árið í röð United skemmdi kveðjupartý De Zerbi Skytturnar gerðu sitt en horfa samt á eftir titlinum Klopp kvaddi með sigri Ísak lagði upp mark í fyrsta byrjunarliðsleiknum Missti af rauðvínsglasi með Sir Alex Klopp segir að Liverpool verði í góðum höndum hjá Slot Ten Hag segir United í betri stöðu en fyrir ári Tapið í gær þýðir að Kane missir af enn einum titlinum Chelsea sækir undrabarn frá Brasilíu Sjá meira