Seltjarnarnesbær sýknaður af öllum kröfum feðginanna Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 23. maí 2023 13:11 Feðginin Margrét Lillý og Einar Björn vilja tryggja að ekkert barn upplifi það sem Margrét þurfti að ganga í gegnum í æsku. Þau krefjast breytinga á barnaverndarkerfinu og bóta frá Seltjarnarnesbæ. Vísir/Bjarni Seltjarnarnesbær var í hádeginu sýknaður af tólf milljóna skaðabótakröfu sem feðgin höfðuðu á hendur bænum. Héraðsdómur Reykjavíkur taldi ekki sannað að starfsfólk bæjarfélagsins hefði sýnt af sér saknæma og ólögmæta háttsemi. Faðirinn segir að málinu verði áfrýjað til Landsréttar.
Í lok árs 2019 steig Margrét Lillý Einarsdóttir fram í Kompás og opnaði sig um uppvaxtarár sín á Nesinu sem einkenndust af vanrækslu og ofbeldi af hálfu móður. Síðan þá hafa bæjaryfirvöld Seltjarnarnesbæjar beðist opinberlega afsökunar og Barnaverndarstofa gefið út skýrslu þar sem fram kemur að verulegir annmarkar hafi verið á meðferð barnaverndaryfirvalda í máli Margrétar. Tilkynningar hafi ekki verið skráðar og málið rannsakað með ómarkvissum og óskýrum hætti. Frestur var gerður á aðalmeðferð málsins þann 16. mars til sáttaumleitana en sættir náðust ekki og hófst aðalmeðferð í málinu að nýju 2. maí. Fréttastofa hitti feðginin áður en þau héldu í dómsal þann 16. mars og frestur var gefinn í málinu. Þá mátti finna á þeim báðum að þau væru enn bæði sár og reið. „Það var komið svo illa fram við okkur af Seltjarnarnesbæ. Þau brutu svo rosalega á rétti okkar. Að hugsa sér, að fólk sem á að vinna með börnum skuli ekki geta haft þau í fyrsta sæti. Það er ótrúlegt,“ sagði Einar Björn Tómasson, faðir Margrétar, í viðtali þann 16. mars. Enginn efi um erfiðar aðstæður á heimilinu Í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur sem fréttastofa hefur undir höndum segir að ekki sé ástæða til að efast um að Margrét hafi búið við erfðar aðstæður vegna veikinda móður sem hafi vafalaust haft mikil áhrif á hana og hún muni þurfa tíma til að vinna úr. Þá sé heldur ekki ástæða til að efast um erfiðar tilfinningar Einars Björns, föður hennar, vegna þeirra aðstæðna. Dómurinn telur hins vegar að virtum gögnum málsins ekki hægt að álykta að þeir erfiðleikar sem voru á heimilinu og Margrét lýsti, og ætlaður miski vegna þeirra, sé afleiðingar af ólögmætri og saknæmri háttsemi af hálfu starfsmanna Seltjarnarnesbæjar við meðferð máls hennar. Ítarlegri og formlegri skráning um meðferð málsins hefðu ekki endilega leitt til þess að viðbrögð bæjarins hefðu verið önnur í veikindum móður Margrétar árin 2007 og 2012 í atriðum sem skiptu verulegu máli fyrir heill Margrétar. Ekki víst að atburðarásin hefði orðið önnur Ekki yrði staðhæft að atburðarásin og uppeldisaðstæður Margrétar hefðu farið á annan og betri veg ef öllum formreglum hefði verið fylgt. Þá væri ekki talið að misbrestur á eða ófullnægjandi skráning upplýsinga og ritun greinagerða um meðferð málsins gæti orðið sjálfstæður grundvöllur miskabóta. Hafnaði dómurinn því að málsmeðferð starfsmanna bæjarins hefði valdið Margréti og föður hennar líkamstjóni af ásetningi eða stórfelldu gáleysi eða falið í sér ólögmæta meingerð gegn frelsi, frið, æru eða persónu þeirra í skilningi skaðabótalaga. Ekki væru heldur fyrir hendi skilyrði til greiðslu miskabóta sem krafist væri. Krafist var níu milljóna króna í skaðabætur fyrir Margréti og þriggja milljóna króna fyrir Einar Björn. Hann segir málinu ekki lokið og að dómnum í dag verði áfrýjað til Landsréttar.
Barnavernd Seltjarnarnes Dómsmál Kompás Tengdar fréttir „Þetta rændi æsku minni og það er þessu fólki að kenna“ Stúlka, sem ólst upp við vanrækslu og ofbeldi móður án eiginlegra afskipta barnaverndaryfirvalda á Seltjarnarnesi, fagnar gagnrýnum úrskurði Barnaverndarstofu um slæleg vinnubrögð á Nesinu. Hún ætlar að berjast fyrir því að börn geti treyst kerfinu. 8. febrúar 2021 20:01 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Engin veit hver hún er“ Erlent Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Erlent Með vopn og fíkniefni í útistöðum við dyravörð Innlent Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Innlent Gular viðvaranir víðs vegar um landið Veður Ástand Fico enn alvarlegt Erlent Fleiri fréttir Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Með vopn og fíkniefni í útistöðum við dyravörð Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Sjá meira
„Þetta rændi æsku minni og það er þessu fólki að kenna“ Stúlka, sem ólst upp við vanrækslu og ofbeldi móður án eiginlegra afskipta barnaverndaryfirvalda á Seltjarnarnesi, fagnar gagnrýnum úrskurði Barnaverndarstofu um slæleg vinnubrögð á Nesinu. Hún ætlar að berjast fyrir því að börn geti treyst kerfinu. 8. febrúar 2021 20:01