Telur allt í eðilegu ferli varðandi sýkinguna á Landakoti Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 27. október 2020 13:18 Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hefur áhyggjur af stöðunni vegna hópsýkingarinnar á Landakoti. Vísir/Vilhelm
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir forgangsmál að ná utan um hópsýkinguna sem kom upp á Landakoti. Hátt í níutíu manns hafa nú smitast frá því hópsýking á Landakoti hófst. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir tíu hafa bæst í hóp smitaðra í gær og að ekki sé búið að ná utan um sýkinguna. Þórólfur sagði til skoðunar hvort herða þyrfti aðgerðir til að ná betur utan um stöðuna. Núgildandi aðgerðir á höfuðborgarsvæðinu gilda til 3. nóvember. Þær aðgerðir eru harðari en aðgerðir almennt á landsvísu sem gilda til 10. nóvember. Kemur til greina að herða aðgerðir enn frekar á höfuðborgarsvæðinu? „Það er bara eitthvað sem þarf að meta þegar sóttvarnalæknir skilar næst tillögum. Núgildandi aðgerðir á höfuðborgarsvæðinu renna út þann 3. nóvember. Heilbrigðisráðherra var auðvitað að fara yfir stöðuna hér á ríkisstjórnarfundinum áðan,“ sagði Katrín að loknum ríkisstjórnarfundi. Fundur ríkisstjórnar í morgun var langur og lauk ekki fyrr en rétt fyrir klukkan eitt. „Það sem auðvitað brennur á núna er að ná utan um þessa hópsýkingu innan sjúkrahússins,“ sagði Katrín. Kjartan Hreinn Njálsson, aðstoðarmaður landlæknis, sagði í viðtali við mbl.is í gær að það ætti eftir að koma í ljós hvort sýkingin á Landakoti yrði tilkynnt sem alvarlegt atvik en ekki væri tímabært að hugsa um slíkt sem stæði. Már Kristjánsson, yfirlæknir á smitsjúkdómadeild Landspítala segir í samtali við Morgunblaðið í dag að hann sé ósáttur að heyra að svo gæti orðið. Tilkynning um alvarlegt atvik myndi ganga þvert gegn því sem sagt hafi verið hingað til um samstöðu í baráttunni við faraldurinn. Katrín var spurð að sínu áliti á þessari stöðu. „Ég tel þetta allt vera í eðlilegu ferli. Það stendur yfir smitrakning. Þegar allt liggur fyrir úr henni þá auðvitað skýrast þessar línur. Það er forgangsverkefnið því þetta er auðvitað mjög viðkvæmur hópur sem þarna er undir.“
Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Landspítalinn Hópsýking á Landakoti Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Enok ákærður fyrir að fleygja manni niður tröppur og berja annan Innlent Gosið gæti þúsundfaldast við nýjan atburð Innlent Segja „alvarlegar staðreyndavillur“ í umfjöllun Kastljóss Innlent „Ég sé engar staðreyndavillur í þessum þætti“ Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Séra Guðrún kjörin biskup Íslands Innlent „Skítkastið var ógeðslegt“ Innlent Skotárás við heimili Drake Erlent Lífverðir Selenskís sakaðir um að skipuleggja banatilræði Erlent Stillir viðtækið á alheimsdögunina Innlent Fleiri fréttir Borgin gerir úttekt á samning um fækkun bensínstöðva Reynt til þrautar að ná samningum áður en aðgerðir skella á Júróvisíon í skugga stríðsreksturs og sársaukafullar uppsagnir Enok ákærður fyrir að fleygja manni niður tröppur og berja annan Undirbúa hópuppsögn hjá Grindavíkurbæ Töluverð óvissa um framvindu jarðhræringanna Gæsluvarðhald yfir manninum framlengt „Við þurfum ekki að verjast neinu“ „Ég sé engar staðreyndavillur í þessum þætti“ Aðstæður fyrir stýrivaxtalækkun á morgun Gosið gæti þúsundfaldast við nýjan atburð Séra Guðrún kjörin biskup Íslands Segja „alvarlegar staðreyndavillur“ í umfjöllun Kastljóss SA og SSF skrifuðu undir langtímakjarasamning Agnes segir nýjan biskup taka við annarri kirkju en hún tók við Stýrivextir, Eurovision og biskupskjör „Skítkastið var ógeðslegt“ Fiskadauði í einni af mestu sjóbirtingsveiðiám landsins Valtýr ráðinn yfirlæknir Ný nálgun Samfylkingar í orkumálum konfekt í eyrum Jóns Vilja tryggja öryggi starfsfólks í vegavinnu „Massíf slysaslepping á vondu frumvarpi“ Stillir viðtækið á alheimsdögunina Þrír handteknir vegna vopnalagabrota og tveir vegna líkamsárásar Beinagrindur og ástarsorg á Bessastöðum Alþjóðanemar neyðist til að vinna svart á Íslandi „Tjónið af þessum slóðaskap hleypur á fleiri milljörðum“ Stóra stundin að renna upp: Bjartsýn en með báða fætur á jörðinni Sanngirnisbótafrumvarpið sé blekking Faðir mannsins sem lést á Litla-Hrauni krefst umbóta Sjá meira