Fyrr í dag birtist svokallaður rosabaugur um sólina á himni í höfuðborginni, en hann myndast þegar sólin skín í gegnum þunna skýjabreiðu hátt á lofti, sem gerð er úr ískristöllum.
„Rosabaugur myndast þegar sólin skín í gegnum þunna skýjabreiðu, oftast bliku, sem er hátt á himni. Skýjabreiðan inniheldur ekki vatnsdropa, heldur ískristalla, því yfirleitt er frost svo hátt uppi. Þá brotnar ljósið frá sólinni í kristöllunum og myndast eins konar regnbogi kringum sólina,“ segir meðal annars um fyrirbærið á vef Veðurstofunnar.
Nánar um rosabauga á vef Veðurstofu Íslands.