Myrti konuna sína og brenndi líkið Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 21. nóvember 2020 22:00 Jonathann Daval ásamt tengdaforeldrum sínum á blaðamannafundi eftir að Alexia Daval fannst myrt. EPA-EFE/BRUNO GRANDJEAN
Frakkinn Jonathann Daval hefur verið dæmdur í 25 ára fangelsi fyrir að hafa myrt eiginkonu sína og brennt lík hennar. Breska ríkisútvarpið segir frá. Líkamsleifar Alexiu Daval fundust í skóglendi nærri bænum Gray í norðausturhluta Frakklands í október 2017. Gerð hafði verið tilraun til að brenna líkið en gríðarlega hátt hitastig þarf til þess og var líkið því aðeins brunnið að hluta þegar það fannst. Eiginmaður hennar, Jonathann Daval, hafði tilkynnt hana týnda, og greindi hann lögreglu frá því við tilkynninguna að hún hafi farið út að skokka en ekki snúið aftur. Hann játaði síðar að hafa barið hana til dauða og að hafa í kjölfarið lagt eld að líkinu. Alexia var 29 ára gömul og vann í banka þegar hún hvarf í október 2017. Lík hennar fannst tveimur dögum eftir tilkynninguna, brunnið að hluta og hafði líkið verið hulið með greinum og öðrum gróðri í skóglendi langt frá þeirri leið sem hún fór iðulega þegar hún fór út að skokka. Parísarbúar skokka til minningar Alexiu Daval.Getty/Michel Stoupak Morðið skók samfélagið í bænum Grey og gengu 10.000 bæjarbúar henni til minningar. Þá skipulögðu konur víða í Frakklandi minningarhlaup fyrir hana. Eftir dauða hennar hafði Jonathann talað á blaðamannafundi ásamt foreldrum hennar þar sem hann biðlaði til almennings að hafa samband við lögreglu hefði það einhverjar upplýsingar um morðið. Aðeins þremur mánuðum síðar tilkynntu saksóknarar að hann hefði játað á sig morðið. Til að byrja með neitaði hann því að hafa reynt að brenna líkið en játaði síðan í fyrra. Hann hefur ítrekað breytt frásögn sinni af atburðarrásinni en fyrr í þessari viku játaði hann fyrir dómi að hafa verið einn að verki.
Frakkland Heimilisofbeldi Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Í fangelsi eins og á Litla-Hrauni gerist allt“ Innlent Eldinum í bílnum fylgdi heljarinnar sprenging Innlent „Þetta breytti mér mjög mikið sem persónu“ Innlent Viðurkennir að hafa gengið of hart fram Innlent Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Innlent „Ódýrt“ að gera samningana tortryggilega Innlent Hafi orðið fyrir þrýstingi úr ólíkum áttum Innlent Búast má við slyddu Veður Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Innlent Fleiri fréttir Ísrael samþykkir ekki vopnahlé Ísraelsmenn vísa fréttamönnum á dyr Íhaldsflokkurinn laut í lægra haldi í sveitarstjórnarkosningum Tuga enn saknað og 55 látnir Verður borgarstjóri Lundúna þriðja kjörtímabilið í röð Auka viðbúnað í aðdraganda Eurovision Forseti Argentínu skýtur föstum skotum á spænsku ríkisstjórnina Berlínarborg vill losna við glæsivillu Göbbels Flugvél Atlanta á tæpasta vaði í Ríad Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Kreml fordæmir ummæli Macrons og Camerons Reyna að sækja fyrsta sýnið frá fjærhlið tunglsins Hlustuðu á Trump og Cohen tala um þagnargreiðslu Danir rýmka reglur um þungunarrof Þrjátíu látnir og tuga saknað eftir flóð í Brasilíu Segja frumvarp um gyðingaandúð í andstöðu við Biblíuna Tyrkir stöðva öll viðskipti við Ísrael „Mun ekki halla mér aftur og leyfa deyjandi sjónvarpsstöð að ráðast á mig“ Segir fólk eiga rétt til mótmæla en ekki til óreiðu Umfangsmikil mótmæli vegna „rússneskra“ laga í Georgíu Enn í basli með skemmdir á hitaskildi Orion Vornanen kastað úr þingflokknum Hafa engin varnarvirki til að hörfa í Yfirstandandi kosningar á Englandi prófsteinn fyrir Íhaldsflokkinn Viðbrögð Hamas við vopnahléstillögunum „neikvæð“ Hundruð lögreglumanna í viðbragðsstöðu vegna mótmæla í UCLA Vilja endurupptöku í máli Weinstein Þrjú hundruð handtekin í Columbia-háskóla Stuðningur við dönsku ríkisstjórnina aldrei verið minni Mótmælendur og gagnmótmælendur tókust á Sjá meira