Þjálfari bikarmeistaranna pirraður á Twitter: Meðan borum við í nefið Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. nóvember 2020 13:31 Arnar Guðjónsson að stýra Stjörnumönnum í bikarúrslitaleiknum á síðustu leiktíð. Vísir/Daníel Þór
Arnar Guðjónsson, þjálfari bikarmeistara Stjörnunnar, er eins og fleiri orðinn þreyttur á því að bíða eftir að körfuboltinn fái aftur grænt ljós á Íslandi. Körfuboltinn hefur verið bannaður á Íslandi síðan í byrjun október eða síðan síðasti leikurinn fór fram 6. október. Arnar Guðjónsson stýrði Stjörnunni í fyrsta og eina leiknum í Domino´s deildinni 2. október síðastliðinn eða fyrir 45 dögum síðan. Arnar hefur verið í smá Twitter herferð á síðustu dögum þar sem hann vekur athygli á því hversu mörg lönd í Evrópu leyfa körfubolta á meðan allt er í frosti hér heima á Íslandi. „Laugardagur til lukku hjá meistaraflokkum þessara landa, fengu að vinna sína vinnu/áhugamál i gær,“ skrifaði Arnar og daginn áður endaði hann upptalingu á þeim löndum sem spiluðu meistaraflokksleiki í körfubolta kvöldið áður með: „Meðan borum við í nefið.“ Í október átti hann líka færsluna „Peð á taflborði Svandísar & Þórólfs.“ Arnar er eins og fleiri íslenskir þjálfarar orðnir mjög pirraður á því að bíða eftir að því að fá að fara aftur af stað. Körfuknattleikssambandið og Handknattleiksambandið hafa eins og önnur íþróttasambönd farið eftir hörðum sóttvarnaraðgerðum vegna kórónuveirufaraldursins. Reglugerðin gildi fyrst frá 31. október til og með 17. nóvember en var síðan framlengd til 1. desember næstkomandi. 1. desember þá verður lið Arnars ekki búið að spila leik í sextíu daga og það er ljóst að ef verður létt á reglunum 1. desember þegar kemur að íþróttakappleikjum þá þurfa liðin að minnsta kosti tvær vikur til æfinga áður en þau spila aftur leiki á Íslandsmótinu. Arnar Guðjónsson er á sínu þriðja tímabili með Stjörnuliðið. Liðið hefur unnið bikarmeistaratitilinn á báðum tímabilunum og í bæði skiptin orðið deildarmeistari. Íslandsbikarinn hefur aftur á móti aldrei komið í Garðabæinn og frábært lið Arnars fékk ekki einu sinni að keppa um hann í fyrra eftir að úrslitakeppninni var aflýst vegna kórónuveirufaraldursins. Hér fyrir neðan má sjá nokkur dæmi um Twitter færslur Arnars á síðustu dögum. þessi lönd spiluðu öll meistaraflokks leiki í körfubolta í gær + eurocup, euroleague + ECW + ABA2 + BIBL + Latvia/estonia league.Meðan borum við í nefið.#korfubolti #handbolti #fótbolti— Arnar Gudjonsson (@ArnarGud) November 14, 2020 Laugardagur til lukku hjá meistarflokkum þessara landa, fengu að vinna sína vinnu/áhugamál i gær. #korfubolti #handbolti #fótbolti #ÍSÍ #UMFÍ— Arnar Gudjonsson (@ArnarGud) November 15, 2020 Vill einhver aðstoða @gaupinn að berjast gegn þessari endaleysu. Af stað með afreksíþróttir. @hjorvarhaflida fyrst fótboltinn er off, ertu til í að vera með okkur í liði. Einu tveir sem segja eitthvað!!!! #korfubolti #handbolti #fotbolti— Arnar Gudjonsson (@ArnarGud) November 13, 2020
Dominos-deild karla Stjarnan Mest lesið Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Enski boltinn Jóhann Berg fer frá Burnley í sumar Enski boltinn Íhuga að reka Xavi sem hætti við að hætta Fótbolti Reykti tvo pakka, át fjögur súkkulaðistykki og drakk tvær kókdósir á fyrsta hringnum Golf Efsti maður heimslistans tók upphitunina í fangaklefanum Golf Schauffele heldur forystunni en Tiger langt frá niðurskurðinum Golf Rekinn tveimur dögum eftir bikarmeistaratitilinn Fótbolti Snorri Barón um Söru: „Ógeð sem enginn á að þurfa að ganga í gegnum“ Sport Valsmenn síðastir inn í átta liða úrslit Fótbolti „Umgjörðin er bara engu lík, gæsahúð að hlaupa inn á völlinn“ Handbolti Fleiri fréttir Indiana svaraði fyrir og knúði fram oddaleik Jóhann: Brotnuðum auðveldlega Kristinn: Varnarleikur, varnarleikur og varnarleikur Valsmenn endurheimta Kára á besta tíma Uppgjör, viðtöl og myndir: Valur - Grindavík 89-79 | Valsmenn leiða í baráttunni um titilinn Martin og félagar hófu úrslitakeppnina á stórsigri 92 prósent sigurvegara leiks eitt frá árinu 2011 hafa orðið Íslandsmeistarar „Það helltust yfir mann bara alls konar tilfinningar“ Jafnaði met mömmu sinnar 29 árum síðar Stærsta tap meistara í sögu úrslitakeppninnar „Frábært að ná sigri í fyrsta leik og í svona svakalegum leik“ „Svíður mjög mikið að við séum ekki nógu klókar til að klára“ Uppgjörið og viðtöl: Keflavík - Njarðvík 94-91 | Tvíframlengdur spennutryllir Besti Belginn í Subway deildinni samdi við Hauka Hafa aðeins meiri trú á Keflavík en Njarðvík í úrslitaeinvíginu Feðgar þjálfa Breiðablik: „Gott fyrir okkur báða að vera saman“ Doncic rankaði við sér og Dallas einum sigri frá úrslitum Vestursins Einbeitir sér að því að komast í NBA frekar en að spila með pabba sínum Birna með slitið krossband og missir af úrslitaeinvíginu Coach K aðstoðar Lakers í þjálfaraleit Rúnar Ingi skiptir um stól í Njarðvík Jokic tók við MVP-styttunni og sýndi svo hver er bestur Óbein yfirlýsing frá DeAndre Kane Hvað var LeBron að gera í Cleveland? Benedikt Guðmundsson hættur með Njarðvík: Ofboðslega þakklátur „Rosalega mikilvægt fyrir okkur og samfélagið í Grindavík“ „Þeir hittu bara ógeðslega vel og við áttum bara engin svör“ Kristófer Acox: „Fokkin passion“ „Ákváðum að byrja fyrstu fimm mínúturnar í þriðja af krafti“ Uppgjörið og viðtöl: Grindavík - Keflavík 112-63 | Grindvíkingar í úrslit eftir ruglaðan síðari hálfleik Sjá meira
Uppgjörið og viðtöl: Grindavík - Keflavík 112-63 | Grindvíkingar í úrslit eftir ruglaðan síðari hálfleik