Starfsmaður Base Parking á 170 á bíl viðskiptavinar Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 29. mars 2024 13:51 Skjáskot af myndbandinu, sem sjá má neðar í fréttinni. Aðsend Karlmanni sem nýtti sér þjónustu Base Parking á dögunum brá í brún þegar hann kíkti á upptöku úr hraðamyndavél bílsins og sá að honum hefði verið ekið á 170 kílómetra hraða í átt að bílageymslu fyrirtækisins.
Jóhann Ágústsson bókaði þjónustu Base Parking í tvær vikur meðan hann fór í frí til Tenerife. Í samtali við fréttastofu segist hann áður hafa nýtt sér þjónustuna án nokkurra vandræða. Í þetta skipti hafi honum hins vegar blöskrað þegar hann kíkti á upptöku myndavélarinnar í bílnum, sem skráir bæði hraða og staðsetningu. Bílnum, Mercedes-Benz GLE jeppa, hafði verið ekið á allt að 170 kílómetra hraða. „Hann var ekki á beinum og breiðum vegi, heldur hlykkjóttum og með nokkur hringtorg fyrir utan umferðina sem var talsverð,“ segir Jóhann. Myndband af akstrinum má sjá hér að neðan. Þá hafi bílnum að auki verið ekið á 114 kílómetra hraða þegar hann var færður á flugvöllinn á ný í gær fyrir komu Jóhanns. „Þetta er í fyrsta skipti sem ég sé svona tölur. Þetta er bara ótrúlegt,“ segir Jóhann. Hann veltir því fyrir sér hvað fyrirtækið hefði gert ef slys hefði orðið og bíllinn skemmst. Tryggingafélagið myndi sennilega ekki bæta svona gáleysi. „Maður gerir þetta ekki aftur. Ég get ekki ímyndað mér að fólk skipti við svona fyrirtæki,“ segir hann. Nýlega var fjallað um óvönduð vinnubrögð fyrirtækisins þegar James Weston, viðskiptavinur Base Parking, beið ásamt fjölskyldu sinni í klukkutíma á Keflavíkurflugvelli eftir bílnum sínum. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir náði hann engu sambandi við fyrirtækið um afhendingu bílsins. „Þá fáum við loks SMS frá Base parking þar sem stendur eingöngu: we lost your keys“! sagði James í samtali við Vísi. Hægt er að lesa viðtalið í heild sinni hér að neðan. Daginn eftir sagði formaður verkalýðsfélags Keflavíkur og nágrennis áhyggjur hafa verið uppi um starfsemi bílastæðaþjónustunnar Base Parking á Keflavíkurflugvelli í fjöldamörg ár. Grunur væri um að brotið sé á réttindum starfsmanna og að þeir fái greitt undir borðið. Fjölmargir viðskiptavinir hafa lýst slæmri reynslu sinni af viðskiptum við fyrirtækið, en lesa má um nokkur slík dæmi hér að neðan.
Bílastæði Bílar Keflavíkurflugvöllur Ferðalög Neytendur Umferðaröryggi Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Ók blindfullur við Grímsvötn og hótaði að drepa alla Innlent Langt í að þeir nái sér að fullu Innlent Vopnuð rán tíðari en fólk gerir sér grein fyrir Innlent Tveir látnir eftir að bíll hafnaði í sjónum við Stokkhólm Erlent Óttast að saga slökkviliða á Íslandi glatist Innlent Á ofsahraða undir áhrifum fíkniefna Innlent Karlremba sé komin í tísku Innlent Arnar Þór vantaði sex meðmæli upp á Innlent Fengu aðstoð sérsveitar og Gæslunnar við handtöku við Grímsvötn Innlent Svakalegt að sjá fylgisaukningu Höllu Hrundar Innlent Fleiri fréttir Vopnuð rán tíðari en fólk gerir sér grein fyrir Óttast að saga slökkviliða á Íslandi glatist Plokkdagurinn mikli haldinn hátíðlegur um land allt Á ofsahraða undir áhrifum fíkniefna Efnahagsstefnan sé að ýta fólki í verðtryggð lán Ók blindfullur við Grímsvötn og hótaði að drepa alla Langt í að þeir nái sér að fullu Lögregla með eftirför í Vogahverfi Íslandsferðin sem breyttist í martröð Fundu hræ fimm hvolpa í Mosfellsbæ Fengu aðstoð sérsveitar og Gæslunnar við handtöku við Grímsvötn Sigurvin dró smábát í land Vill að fréttastofa RÚV biðji Maríu Sigrúnu afsökunar Lögreglan lofar góðu vegaeftirliti á Suðurlandi í sumar Landskjörsstjórn tilkynnir á morgun hvaða listar eru gildir Mögulega að hægjast á landrisi í Svartsengi Karlremba sé komin í tísku Voru með stæla og neituðu að fara upp úr fyrr en löggan mætti Arnar Þór vantaði sex meðmæli upp á Sprengisandur: Peningastefna, ESB og lagareldi Lögregla kölluð út vegna ungmenna til leiðinda í sundlaug Svakalegt að sjá fylgisaukningu Höllu Hrundar Minni lyfjanotkun og meiri vellíðan í sérstöku heilabilunarþorpi Mennirnir tóku annan starfsmannanna hálstaki Líklegt að það styttist í brotmörk Helga lenti einnig í vandræðum Eiríkur og Ástþór fá frest til að bæta við undirskriftum Hættuástand í Grindavík og æsispennandi forsetakosningar Gefur lítið fyrir útskýringar fréttastjórans Handteknir á hlaupum eftir vopnað rán í Reykjavíkurapóteki Sjá meira