Ekki talinn alvarlega slasaður

Maðurinn klemmdi handlegg í vélinni. Mynd úr safni.
Maðurinn klemmdi handlegg í vélinni. Mynd úr safni. Ljósmynd/Gísli Sigurðsson

Maðurinn sem slasaðist við stillingu á beisli rúllubindivélar í Grímsnesi í gær er ekki talinn alvarlega slasaður.

Frá þessu greinir lögreglan á Suðurlandi. Segir í tilkynningu hennar að maðurinn hafi klemmt handlegg þegar festing í beisli vélarinnar gaf sig. Festist handleggurinn um leið.

Var hann losaður úr vélinni og fluttur á sjúkrahús til aðhlynningar í gær.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert