Sjálfkjörinn til næstu fjögurra ára

Lárus Blöndal
Lárus Blöndal mbl.is/Kristinn Magnússon

Lárus Blöndal verður áfram forseti Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands næstu fjögur árin en þing ÍSÍ fór fram um helgina. 

Lárus hefur verið forseti frá því þáverandi forseti Ólafur Rafnsson féll frá árið 2013. Lárus var einn í framboði og var því sjálfkjörinn. 

Á þinginu fóru einnig fram kosningar í framkvæmdastjórn ÍSÍ. Ellefu einstaklingar buðu sig fram í sjö sæti meðstjórnenda.

Eftirfarandi (í stafrófsröð) hlutu kosningu til næstu fjögurra ára:

Garðar Svansson
Hildur Karen Aðalsteinsdóttir
Hörður Þorsteinsson
Úlfur Helgi Hróbjartsson
Valdimar Leó Friðriksson
Viðar Garðarsson
Þórey Edda Elísdóttir

Að auki var fulltrúi Íþróttamannanefndar ÍSÍ, Ásdís Hjálmsdóttir Annerud, staðfest sem meðstjórnandi í framkvæmdastjórn ÍSÍ til næstu tveggja ára.

Fyrir sitja í framkvæmdastjórn ÍSÍ: Ása Ólafsdóttir, Gunnar Bragason, Hafstein Pálsson, Ingi Þór Ágústsson, Knútur G. Hauksson, Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir og Olga Bjarnadóttir.

Þinginu var ekki slitið heldur var því frestað til 9. október nk. Vonast er til að þá verði mögulegt að halda þingi áfram með hefðbundnu sniði. Þingnefndir munu starfa föstudaginn 8. október nk.

Fyrir þinginu lágu níu tillögur og var þeim flestum frestað til framhaldsþingsins í haust.

Nánari upplýsingar frá 75. Íþróttaþing ÍSÍ má finna á heimasíðu ÍSÍ, www.isi.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert